Pressan - 02.11.1989, Síða 17
17
Fimmtudagur 2. nóv. 1989
PICTIONARY
— nýjasta æöið í Evrópu
í Ameríku ganga flestir með
þann draum í maganum að verða
frægir og ríkir. Sumum tekst
það, öðrum ekki. ROB ANGEL
eða Róbert Engill er einn þeirra
sem fengu hugmynd, hrintu
henni í framkvæmd og urðu
milijónamæringar.
Fyrir fjórum árum var Rob 26 ára
þjónn sem fékk þá hugmynd að búa
til leikinn Pictionary. Stórveldið
Trivial Pursuit féll fyrir leiknum
og tók að sér dreifinguna. Það var
eins og við manninn mælt: Robbi
gat hætt að þjóna öðrum og lifir nú
í vellystingum. Leikurinn er gjör-
ólíkur Trivial Pursuit. Þú þarft
hvorki að vera vel lesinn né óskap-
lega fróður til að standa aldrei á
gati, hugmyndaflugið er allt sem
þarf. Pictionary-leíkurinn byggist á
að spilafélagar skiptast á að teikna
orð á blað og sá sem fljótastur er að
þekkja orðið sigrar.
Upphaflegi Pictionary-leikurinn
hefur auðvitað fætt af sér afkvæmi
eins og gerist með allt sem vinsælt
er. Þannig er til barna-, biblíu-, ferða-
íþrótta- og rassvasa-pictionary í
Bandaríkjunum. Á Islandi ætla
menn nú að bætast í hóp þeirra
fimmtán milljóna manna sem þegar
hafa eignast kassann sem meðal
annars hefur að geyma 500 orða-
spjöld, blokkir, blýanta, spilakubba
og fleira — að ógleymdu einnar
mínútu stundaglasinu, því fólk fær
að sjálfsögðu ekki ómældan tíma til
að finna hvaða orð það er sem
teikningin felur í sér. Og auðvitað er
búið að þýða Pictionary yfir á ís-
lensku. Hver annar en íslendingur
gæti þekkt teikningu af Eiríki Fjal-
ar, Seyðisfirði eða Davíð Odds-
syni?
■9
ný plata!
Barna- og fjölskylduskemmtun
á sunnudag í
/j/jcz--------
A DAGSKRA:
Kaffi og meðlæti
Hljómsveit André Bachmann leikur log af
nýútkominni plötu hans „TIL ÞÍN".
Trúöurinn Jóki heilsar upp á börnin og dansar a
hjólaskautum.
Skemmtileg og fræöandi ferðakynning i máli,
myndum og músik á vegum NORRÆNU
FERÐASKRIFSTOFUNNAR.
Rokksýning (Joi Bachmann og Maria)
Húsiö verður opnað kl. 14,30
Aðgangur ókeypis meðan húsrými leyfir.
SJAUMST
M
f
<#m “• •
tA*>A
..
góóur kostur í bílukauputn
Bein lina i söludeild 312 36
Framhjóladrifinn bíll á undraveröi.
Viö hjá B & L erum stoltir af að kynna nýja og
endurbætta Lada Samara.
Lada Samara hefur nýja og kraftmikla 1500
cc vél og fæst nú bæði 3 og 5 dyra.
Lada Samara er rúmgóöur, framhjóla-
drifinn fjölskyldubíll, með góöa fjöörun
og aksturseiginleika, sem gerir hann
sérstaklega hentugan fyrir íslenska
staöhætti.
Lada Samara svo sannarlega
kærkomin kjarabót fyrir
íslenskar fjölskyldur.
3 dyra ’90, 1300, 433.640.
3 dyra ’90, 1500, 485.219.
I- -1_ IAA ^AAA JJA * rs-m
* —’---------» * ----
5 dyra ’89, 1500, 470.883.
»Vvv';9;.fs v
BIFREIDAR & LANDBÚNADARVÉLAR HF.
ÁfiiuiIh 13 Ifífl ncykjnvik 681200
a