Pressan - 30.11.1989, Page 9

Pressan - 30.11.1989, Page 9
Fimmtudagur 30. nóv. 1989 9 PRESSU e ^•^ftir að ljóst varð að Mar- íanna Friðjónsdóttir ætlaði að láta af störfum hjá Stöð 2 hafa verið uppi miklar vangaveltur um það hvern Stöð 2 fær í það hlutverk að stjórna kosningasjónvarpi þegar þar að kemur. Ljóst þykir að ekki er á hverju strái fóík með jafn-víðtæka reynslu í útsendingarstjórnun og Maríanna og margir leiða nú getum að því að Ríkissjónvarpið hugsi sér gott til glóðarinnar að fá þennan fyrrum starfsmann í lið með sér. Maríanna mun ætla að starfa sjálf- stætt og eftir því sem heimildir okk- ar herma hyggst hún jafnvel fara út i eigin framleiðslu á sjónvarps- efni ýmiss konar. Sá maður sem Stöð 2 er einkum sögð hafa auga- stað á í stað Maríönnu þegar að viðamiklum útsendingum kemur er Egill Eðvarðsson. . . rskulýðsráðið í Hafnar- firði samþykkti harðorða ályktun vegna fréttar Stöðvar 2 um tólf ára hafnfirskan dreng sem fannst nær dauða en lífi í Hafnarfirði um næst- síðustu helgi. Drengurinn var ofurölvi og sagði í fréttinni að um kvöldið hefði hann verið á dansleik í félags- miðstöðinni Vitanum. í ályktuninni er bent á að drengurinn hafi fundist í Norðurbæ Hafnarfjarðar og ekki verið á Vitanum þetta kvöld... ROYAL SCOT OLIUFATNAÐUR Landsins mesta úrval af byssum, skotfæmm, byssutöskum, hleðslutækjum o.s.frv. o.sfrv. - Besta verðið í bænum <Si------------------------- Nóatún 17,105 Reykjavík Simi 91-84085/622702 SAMKEPPNI UM MERKI/TÁKN ÚTBJÓÐANDI. Handknattleikssamband íslands (H.S.Í) efnir til samkepnni um myndrænt tákn (logo) fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik, sem haldið verður á íslandi 1995. Keppni þessi er haldin samkvæmt samkeppnis- reglum Félags íslenskra auglýsingateiknara. VERKEFNI. Keppendur hafa frjálsar hendur um efnisval, þó er æskilegt að táknið tengist á einhvern hátt handknattleik. Við mat dómnefndar munu verða lögð áhersla á hagkvæmni og útlit táknsins ásamt möguleikum á framsetningu þess í kynningargögnum H.S.Í. fram til ársins 1995, gerð mynjagripa og fleira tengt heimsmeistramótinu. RÉTTUR TIL ÞÁTTTÖKU. Heimild til þátttöku hafa íslenskir ríkisborgarar og útlendingar með fasta búsetu á íslandi. TRÚNAÐARMAÐUR. Trúnaðarmaður dómnefndar er Ólafur Jensson, framkv.stj. Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, 101 Rvk., Póstbox 1191 -121 Rvk., símar: 91-29266 og 91-39036 heima. AFHENDING KEPPNISGAGNA Gögn varðandi keppnina verða afhent af trúnað- armanni dómnefndar í Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, sem veitir nánari upplýsingar umkeppnina. Einnig er hægt að fá gögnin afhent í útibúum og afgreiðslum Landsbankans. MERKING OG AFHENDING TILLAGNA, SKILAFRESTUR. Tillögum skal skila í Byggingaþjónustuna, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, eigi síðaren 20. desember 1989 kl. 18:00. Nægilegt er að tillögum sé komið í póst eða flugafgreiðslu fyrir lok afhendingartímanns, enda skal vottorð frá hlutaðeigandi póst- og afgreiðslumanni sent til trúnaðarmanns. Auk þess skal keppandi tilkynna með símskeyti, að tillagan hafi verið send. Tillögum verður þó ekki veitt viðtaka lengur en sjö dögum eftir að skilafresti lýkur. Auðkenna skal tillögúr með 5 stafa einkennis- tölu í reit í hægra horni að neðan. Ógagnsætt umslag, merkt sömu einkennistölu, skal fylgja tillögunni, en í því sé nafn, heimilisfang og síma- númer tillöguhöfunda. Tillögum skal skila á arkarstærð A4 (29.7 x 21.0 sm.) Hið myndræna tákn skal vera um 10 sm. á hæð og /eða um 10 sm. á breidd. Tillögum skal skila ósamanbrotnum í flötum umbúðum. VERÐL'AUN. Veitt verða verðlaun að fjárhæð kr. 400.000.00. Fyrstu verðlaun verða ekki lægri en kr. 300.000.00. DÓMNEFND. Dómnefnd skipa eftirtalin: Tilnefndir af Handknattleikssambandi íslands. Ólafur Jónsson, Upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar, formaður'dómnefndar. Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri, Landsbanka íslands. - Þorgils Óttar Mathiesen, viðskiptafræðingur. Tilnefnd af Félagi íslenskra auglýsingateiknara: Otto K. Ólafsson, auglýsingateiknari. Ólöf Árnadóttir, auglýsingateiknari. Dómnefnd áætlar að hafa lokið störfum í byrjun janúar 1990. HAGNÝTING KEPPNISTILLAGNA. Útbjóðandi stefnir að því að fela þeim hönnun táknsins er fyrstu verðlaun hlýtur. ÚRSLIT. Sigurvegurum keppninnar verður tilkynnt um úrslit strax og dómnefnd hefur lokið störfum og þau síðan birt í fjölmiðlum. SÝNING. Haldin verður sýning á keppnistillögum í Lands- banka íslands við fyrsta tækifæri eftir að úr^lit liggja fyrir. Tillögurnar verða sýndar undir höfundamafni. SKIL KEPPNISTILLAGNA. Allar tillögur sem hvorki hljóta verðlaun né verða keyptar, verða afhentar í Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, að lokinni sýningu. Útbjóðandi ber ekki ábyrgð á tillögunum lengur en í 14 daga eftir að sýningu lýkur. '+l .. .....

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.