Pressan - 30.11.1989, Síða 29

Pressan - 30.11.1989, Síða 29
Fimmtudagur 30. nóv. 1989 29 spqin 30. nóvember—4. desember (21. murs—20. upril) Pú gætir lent í einhverskonar valdabaráttu vió einhvern sem þú hefur hingaö til litið á sem vin. Eóa jafnvel lent milli steins og sleggju í deilu tveggja manneskja sem þér líkar ámóta vel viö. Þetta getur oröiö nokkuö erfitt en þaö sem gildir er aö beita samn- ingalipuröinni og sáttaviljanum. (21. upril—20. muí) Pú munt eiga í nokkrum erfiöleikum viö aó koma þér áfram í vinnunni. Reyndu aö skipuleggja þig svolítið betur, því þaö er fyrst og fremst þaö sem vantar. Enginn þrýstingur utan frá er fyrirsjáanlegur í nán- ustu framtíð en hinsvegar er gott aö vera á veröi gagnvart sliku. (21. muí—21. júní) Svör viö vandamálum sem hafa verið aö angra þig allt áriö gætu verið í sjónmáli. Sá tími sem þú hefur eytt i rannsókn og um- hugsun um þessi mál mun loks fara aö borga sig. Mundu aö oft er gott sem gamlir kveða. ' (22. júni—22. júli) Pér hættir til aö eyða um efni fram i einhverj- um tilraunum til aö sýnast meiri en þú raun- verulega ert. Taktu þér tak á þessu sviöi enda er þesskonar óhollt fyrir bankareikn- inginn þinn. Faröu þér hægar á kvöldin en undanfarið. Hóf er best í öllu. (22. júlí—22. úyúst) Desember veröur Ijónunum sennilegast hagstæður mánuöur, þau eru full orku sem þau þurfa endilega aö nýta. Hrindiö nýjum hugmyndum í framkvæmd, hristið upp í hefðum og venjum sem kannski eru aðeins til sjálfra þeirra vegna. ‘nmatakmörk eru til aö standa viö þau og þaö mun takast vel í þessum mánuði. i tframhjáhlaupi Guömundur Andri Thorsson ritstjóri og rithöfundur „... litlir hundar sem segje iff — Hvaöa persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Little Walter." — Án hvers gætiröu síst ver- iö? „Munnhörpunnar minnar." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast? „Aö bíöa eftir strætó, aö viö- rinast í eldhúsinu, aö tæma öskubakka, tölvupopp, týpur, tómatar, tómstundir, tannviö- gerðir, ímyndunartilbúningur, vanillubúöingur, viötalsbækur, mér hefur alltaf fundist þú svo..., málræktarátak, menningarfrum- kvæöi, matvælakynningar, kæst skata, íslensk fyndni, íslensk væmni, ríkisstjórnin, stjórnar- andstaöan, allt sem er in, allt sem er out, ónýtir kveikjarar, full- ar ryksugur, sprungnar blöörur, funksjónalisminn, strúktúralism- inn, póstmódernisminn, okkúlt- isminn, níhilisminn og litlir hundar sem segja iff." — En skemmtilegast? „Allt hitt." — Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Þetta er erfitt val — ég held ég velji hundana." — Manstu eftir einhverri ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Þegar ég fékk mér munn- hörpuna." — Hvenær hefurðu orðið glaðastur á ævinni? „Þegar ég fékk mér munn- hörpuna." — Við hvað ertu hræddur? „Leiðtoga." — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvaö vildirðu helst taka þér fyrir hendur? „Ég gæti vel hugsað mér að leggja stund á sýningarstörf." — Áttu þér draum sem þú vilt upplýsa? „Veröa heimsmeistari í suö- ur-amerískum samkvæmis- dönsum." Hugmynd sem þú setur fram veröur vel te iö, betur en þú áttir ef til vill von á. Nú tækifærið til aö byrja á nýjum hlutum i gættu þín aö fara ekki of geyst í sakirn Flas er aldrei til fagnaöar. Vandamál mui leysast meö aöstoö annarra. (23. nóu.—21. des.) Láttu tilfinningarnar ráöa aö þessu sinni. Paö mun reynast þér happadrjúgt. Skynsemin getur stundum oröiö til trafala. Á hinn bóg- inn má viljastyrkurinn aldrei bregöasvt. Hann mun á næstu dögum afla þér virðingar fólks sem ekki er þér sammála. Vilji er allt sem þarf. (22. des.—20. jun.) Þú hefur of mörg verkefni á þinni könnu. Faröu fram á aðstoð, þaö veröur þér ekki til minnkunar og fólki finnst sjálfsagt aö liö- sinna þér. Ekki taka ákvarðanir í skyndi, um þessar mundir er heilladrýgst aö yfirvega mál vel og vandlega og gera langtimaáætl- anir. w j M (21. junuur—19. febrúur) Þaó er óliklegt að þér takist að finna lausn á öllum þeim vandamálum sem viö þér blasa á einum degi. Reyndu aö finna þeim for- gangsröö og taka eitt fyrir í einu. Gleymdu vinnunni þegar þú kemur heim á kvöldin og settu þig í rómantískar stellingar. Þaö kann alltaf góðri lukku aö stýra. (20. febrúur—20. murs) Leggöu þig enn frekar fram en þú hefur gert aö undanförnu. Nú er ekki rétti timinn til aö slaka á. Pú átt margt ógert en ef þú vinnur vel næstu daga og vikur mun þaö skila sér. Ef til vill veröuröu knúinn til aö taka djarfa ákvöröun sem er þér á móti skapi en láttu slag standa. Ef þú fylgir henni fast eftir mun allt ganga vel. lófalestur OTU (24. okt.—22. nóu.) (kona, fædd 8.8. 1961) Þessi kona hefur sterkt ímynd- unarafl og sköpunarhæfileika, svo þaö kæmi ekki á óvart ef hún sneri sér aö einhverjum listum. Til aö byrja meö (fram yfir þrítugt!) skortir hana hins vegar úthald og hættir til aö vera of áhrifagjörn. Upp úr 27—30 ára aldri fær hún áhuga á aö grúska eöa læra eitt- hvaö. Hún getur verið afar dugleg, en fær líka mikil letiköst. Konan hefur möguleika á aö bindast tvívegis og þegar hún er 37 til 42 ára gömul veröa einhverj- ar breytingar á högum hennar, t.d. búsetuskipti. Hún fær góð tæki- færi til aö komast áfram í lífinu, þegar hún er rúmlega þrítug, 37 —38 ára og um fimmtugt. Næstu árin veröa mikil vinnuár og hún endurskipuleggur líf sitt og starf. í einkalífinu veröur gott tímabil árin 1991 til 1994. Þaö eru líkur á því aö konan veröi ekkja á seinni hluta ævinnar. AMY ENGILBERTS (% Wjv í . . .Að sitja kyrr á sama stað og samt að vera að ferðast. .. Draumar um ferdalög hafa mönn- um löngum þótt athyglisverðir og brotið um þá heilann. Allgömul mun sú túlkun að líkja ferðalagi í draumi við lífsleiðina. Þá má nærri geta að ekki er gott að dreyma mik- ið torleiöi, ekki heldur snjó og ófœrö á veginum sem maður fer. Að ganga í gljúfri bendir til þess að dreymandinn muni eiga erfiða ævi. Þyki honum gljúfrið fagurt mun hann mun fá bæði gleði og þrautir. Að ganga eftir langri fjallshlíö er einnig sagt tákna ævi manns, sem verður því lengri sem hlíðin er og ævikjör manns svipuð því sem um- horfs er í hlíðinni. Að ganga beint upp fjall eða sjá aðra gera það þykir alltaf marktæk- ur draumur um æviskeið. Að hverfa yfir fjallsbrún eða tind er þá ævi- lok. Þykist maður horfa á margt fólk ganga upp fjall eða tind mun sá verða langlifastur sem manni þykir vera neðst í hlíðinni og sennilega mun fólkið falla frá í þeirri röð sem það er í fjallgöngunni. Sumir vilja hins vegar ráða slíka drauma fyrir því hverjum vegnar best í lífinu, nær hæst sem kallað er. Við höfum áður talað um feröalög á hestum — að það er góður draum- ur að hleypa fallegum hesti en ef hann er særður eða veikur eða fest- ir sig í keldu boðar það sorg. Svipað gildir um feröalög á bílum og bát- um, að það táknar áföll á lífsleiðinni ef manni þykir farartækið verða fyr- ir áfölium. Að búa sig undir feröalag í draumi er fyrir mikilli breytingu, annaðhvort veraldlegri eða hug- arfarslegri, sumir segja skammlífi. Að dreyma sig kominn heim á œsku- stöövar sínar eftir langa fjarveru er sagt boða friðsælt ævikvöld. Að einhver vilji verða manni sam- feröa yfir fjallveg eða til útlanda ræðst oft af nafni, nafn samferða- mannsins þýðir þá meðlæti eða mótlæti á lífsleiðinni eftir atvikum (við komum seinna að þýðingum nafna). En oft þýðir slíkur draumur, ef um kunnuga er að ræða, að ævi dreym- andans og samferðamannsins verð- ur svipað löng. Að dreyma sig ferða- mann á ókunnum staö sem manni þykir fallegur eða sjá landslag eða borgir þar sem það er ekki í vökunni segir dreymandanum að hann eigi að prófa eitthvað áður óþekkt á sínu æviskeiði, máske hefur hann ein- hverja ónýtta hæfileika. Sumir telja slíka drauma vitranir sem bendi til sambands við dularheima. Má það og vera. Víst er um það að ferðalög í draumheimum geta tekið ferðum vökuheimsins langt fram að fegurð — fyrir utan hvað þau eru miklu ódýrari! Steinunn Eyjólfsdóttir (23. óíiúst—23. sept.) Reyndu aö vinna upp verkefni sem þú hefur látið sitja á hakanum. Áhugi og andríki sam- starfsmanna og/eöa vina munu hjálpa þér aö ná viðunandi árangri. Ef þú átt erfitt meö aö skilgreina tilfinningar þínar í garö ein- hverrar manneskju skaltu reyna aó setja þær niður á blaö til aö fá meira skipulag á hugs- unina. í þessari viku: Flatkaka (23. sept.—2't. okt.) Pú ert of upptekinn af fortíðinni. Eitthvert at- vik, lykt, mynd eða annað hefur orðið til þess að minningar hafa streymt fram i hug- ann. Petta er ágætt i hófi en gáðu að þvi að lifið gerist i nútiðinni, ekki i þvi sem liðið er. Horfðu fram á veginn. draumar

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.