Pressan - 30.11.1989, Síða 32

Pressan - 30.11.1989, Síða 32
PRESSU <#• I fjárlagafrumvarpinu er gert ráö fyrir 3ja milljarða kr. halla. Nú höf- um viö fregnað að frekari endur- skoðun og hækkanir hjá einstökum ráðuneytum sýni að nú stefni í mun stærra gap á milli tekna og gjalda eða allt að þreföldun hallans frá því sem frumvarpið gerir ráð fyrir í dag. Og fjárlagaárið ekki einu sinni hafið enn. . . Ífyrir nokkrum vikum fékk Björgólfur Guðmundsson, fyrr- um framkvæmdastjóri Hafskips sáluga, atvinnuleyfi í Englandi. Björgólfur hélt utan á dögunum en hann mun þar hafa einhvern starfa í tengslum við breskt skipafélag(l). Hér heima hefur Björgólfur komið sér upp skrifstofuaðstöðu í Hafnar- stræti og vinnur þar af kappi meö verjanda sínum, Guðmundi Ingva Sigurðssyni hrl., fyrir dómsmeð- ferð Hafskipsmálsins í sakadómi, en yfirheyrslur hefjast í réttinum í næstu viku. . . A ^^ins og tiundað hefur verið hlaut Jón Ottar Ragnarsson, sjón- varpsstjóri á Stöð 2, heiðurstitilinn „markaðsmaður ársins" á Norð- urlöndum. Formaður Markaðs- klúbbsins íslenska, sem tilnefndi Jón Óttar af íslands hálfu, er Frið- þjófur Johnson en vakið hefur at- hygli að hann mun vera stór eigandi Heimilistækja sem selja afruglarana fyrir Stöð 2 eins og kunnugt er. .. Í^maritið Heimsmynd, sem er að koma á götuna, kynnir niður- stöður úr mikilli skoðanakönnun á áliti 150 kvenna á körlum sem standa framarlega á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Spurt var hverjir féllu þeim helst í geð og hverjir væru óþolandi. Könnunin var skrifleg og er niðurstaðan byggð á svörum 110 kvenna á aldrinum 19—70 ára. Með- al þeirra sem komust á blað má nefna Steingrím Hermannsson, sem hlaut titilinn „umdeildasti karl- inn". Þá hefur Steingrímur hrapað niður vinsældastigann skv. könnun- inni. Davíð Oddsson hefur aukið vinsældir sínar og er vinsælastur ís- lenskra stjórnmálamanna en er engu að síður umdeildur. Óiafur Ragnar er mjög umdeildur og Þor- steinn Pálsson mjög óvinsæll. Halldór Ásgrímsson og Jón Sig- urðsson ráðherrar eru á venjulegu róli í vinsældastiganum en Jón Baldvin þykir frekar óvinsæll skv. könnuninni. Sverrir Hermanns- son og Stefán Valgeirsson íá harða útreið og sömu sögu er að segja af Þórarni V. Þórarinssyni VSl og Jóni Óttari sjónvarpsstjóra. Á lista yfir menn í atvinnulífinu fær Pálmi Jónsson í Hagkaup mest lof og Gorbatsjof hefur yfirburði yfir aðra á alþjóðavettvangi. í þessari út- tekt blaðsins fylgja einnig athuga- semdir kvennanna um einstaka karla. . . rátt fyrir deilurnar um virðis- aukaskattinn innan ríkisstjórnar- innar tifa lögin um virðisaukann sem samþykkt voru á síðasta þingi og ganga í gildi að óbreyttu um næstu áramót. Frumvarpið það var upphaflega samið af Jóni Baldvini Hannibalssyni, þáverandi fjár- málaráðherra, og skv. lögunum er gert ráð fyrir 22% skatti í einu þrepi en ekki 26% eins og nú er mest rætt um. í deilu stjórnarliða virðist helst sem niðurstaðan verði sú að láta 22% verða ofan á með gildistöku um áramót, í stað 26% skattbreytingarinnar, og tvö þrep. Yrði þá Ólafur Ragnar að vinna að frekari undanþágum frá skattinum sem skv. lögunum, eins og þau eru nú, taka m.a. til bókaútgáfu og blaöa. . . b ^^^orgaryfirvöld virðast ekki hafa mikinn áhuga á að glæða gamla miðbæinn lífi, ef marka má frásagnir fólks sem þangað sækir mikið. Fólk hefur lengi kvartað yfir hörðum aðgerðum stöðumæla- varða sem oft virðast bíða færis til að sekta ökumenn. Nú er mönnum orðið heitt í hamsi; jólin nálgast og ein af nýjum aðgerðum borgarinnar er sú að stytta tímann sem fólk fær fyrir fimmtíu krónurnar, úr klukkustund niður í hálftíma. Þessi 100% hækkun stöðugjalda mun einkum vera við Skólavörðu- stíginn og þar um kring. . . B^íýlega var opnaður nýr veit- ingastaður í Reykjavík, Argentína, sem byggja átti upp á sama hátt og samskonar veitingahús í Hollandi. Á nýja staðinn var ráðinn erlendur matreiðslumeistari sem getið hafði sér gott orð á argentínsku steikarhúsi í Amsterdam, en nú heyrum við að íslenska nautakjöt- ið slái ekki eins í gegn og það sem boðið er upp á í Hollandi. Eigendur argentínska veitingastaðarins hafa því tekið til ráðs að hafa matseðilinn „blandaðri“, þ.e. bjóða jafnhliða upp á lambakjöt, enda nokkuð ör- uggt að íslenska lambið svíkur eng- an. . . erslunarhúsið nýja á horni Laugavegar og Frakkastígs fær formlegt heiti nú um helgina. Hefur verið ákveðið að skíra húsið Kúl- una, en önnur hugmynd sem kom upp var að húsið héti Gullkúlan. Hús þetta teygir anga sína frá Laugavegarhorninu niður á Hverfis- götu og við heyrum að í desember- mánuði verði opnaður nýr dans- staður í þeim hluta hússins. . . L Heyrst hefur að stefni í uppgjör innan Alþýðubandalagsins í Nes- kaupstað á milli fylkinga vegna landsfundar flokksins á dögunum. Félagsfundur er yfirvofandi og er sagt að sterkir flokksliðar sem hall- ast að Ólafsarminum, og eru þar nefndir til Einar Már Sigurðsson, Smári Geirsson og Guðmundur Bjarnason o.fl., hyggist setja stuðn- ingsmönnum Hjörleifs Guttorms- sonar stólinn fyrir dyrnar. Niður- staða slíkra átaka kann að reynast Hjörleifi skeinuhætt en hann er sem kunnugt er fyrsti þingmaður flokks- ins í kjördæmi austurlands. . . c ^^jónvarpsmaðurinn Hermann Gunnarsson er með afbrigðum vinsæll hér á landi og auglýsendur keppast um að fá hann til að lesa inn á auglýsingar sínar. Hermann sýnir slíkum verkum lítinn áhuga, enda talið að hann vilji gæta þess að þjóð- in fái ekki of mikið af sér í einum skammti. Nokkrar undantekningar hefur Hermann þó gert og þá eink- um lesið inn á auglýsingar fyrir vini og vandamenn. Nú höfum við frétt að Hermann hyggist gera undan- þágu frá reglu sinni á auglýsinga- lestri og ætli aö lesa inn texta við auglýsingu á nýrri unglingabók eftir Þorgrím Þráinsson. Eitthvað í þeirri bók hefur snert Hermann enda fjallar hún um ungan fótbolta- kappa. . . b,. fundi Byggingarfélags verka- manna sem haldinn verður í kvöld á Hótel Lind. Félagsmenn eru sumir hverjir óánægðir með hvernig stað- ið er að rekstrinum. Þannig er full- yrt að stjórnin líði það að einstakir félagsmenn borgi ekki skuldirnar og vanskilin séu látin bitna á þeim skilvísu. . . o ^^ftir því sem vanskil aukast í þjóðfélaginu verður ábatasamara að stunda innheimtu. Á síðustu misserum hafa skotið upp kollinum þó nokkur fyrirtæki sem bjóðast til að taka í innheimtu vanskilaskuldir. Sum fyrirtækin vinna samkvæmt gjaldskrá Lögmannafélagsins, en það er þeim óheimilt. . . il stóð að innheimta vangoldnar stöðumælasektir með því að festa víravirki á bílhjól vanskilamanna og taka þannig bílinn í „gíslingu". Eftir því sem næst verður komist var horfið frá þessari innheimtuað- ferð þar sem hún þótti ekki standast lög. . . f KRINGLUNNI OG Á SPRENGISANDI Frábær barnabox meö Ofurjarlinum og félögum hans, hamborgara, frönskum og kók, skemmtilegum leikjum og þrautum. Já, Ofurjarlinn er mættur til leiks í Jarlinum, bæði í Kringlunni, og á Sprengisandi. Þú ættir að kynnast Ofurjarlinum og félögum hans, snæða með þeim köppum og taka þátt í leikjum þeirra og þrautum. F»ú finnur þá í JARLINUM Kringlunni og á Sprengisandi.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.