Pressan - 08.03.1990, Síða 4

Pressan - 08.03.1990, Síða 4
4 Fimmtudagur 8. mars 1990 litilræði af rannsóknastofu i karlafræðum Þeir sem láta sér annt um andlega velferö ís- lensku þjóöarinnar fylgjast jafnan grannt meö öllum hræringum og væringum í virtustu mennta- og vísindastofnun landsins, Háskóla íslands, minnugir þess aö „vísindin efla alla dáö". Þaö hefur þessvegna löngum þótt saga til næsta bæjar þegar dregur til tíðinda í sjálfri akademíunni. Nú er frá því aö segja aö á dögunum, nánar tiltekið 25. janúar sl. kl. 12.45, var haldinn fund- ur í háskólaráði og er á flestra vitorði, vegna stórmerkrar tillögu sem þar var lögð fram og olli umtalsverðum deilum. Þetta var tillaga um reglugerð um RANN- SÓKNASTOFU I KVENNAFRÆÐUM. Flestir, bæöi leikir og læröir, munu víst Ijúka upp einum munni um þaö aö fátt sé brýnna í Háskóla íslands en aö hefja umfangsmiklar kvennarannsóknir og engan þekki ég sem ef- ast um þaö eitt andartak aö þessi grein vísind- anna hafi verið stórlega vanrækt til skamms tíma. Um það var heldur ekki deilt á janúarfundin- um í háskólaráði, heldur öllu fremur hitt hvort ný háskóladeild sem helgaði sig kvennarann- sóknum ætti aö heita RANNSOKNASTOFN- UN í kvennafræðum eöa RANNSÓKNA- STOFA í kvennafræðum. Um þetta var lengi deilt og af miklum tilfinn- ingahita. Ofaná varö aö kvennarannsóknir viö Há- skóla íslands skyldu stundaðar í RANN- SÓKNASTOFU í kvennafræðum. Guð láti gott á vita. „En hér er hængur á", einsog Hamlet sagöi foröum. Þaö er einsog enginn viti hvaö kvennafræði eru. Vísindagreinin, eða réttara sagt viðfangs- efniö, viröist ekki hafa verið skilgreint. Og þaðanaf síöur „kvennarannsóknir". Hætt viö aö prófessorarnir og kandídatarnir í „Rannsóknastofu kvennafræöa" verði einsog tungl í fyllingu, þegar á aö fara aö kenna og nema óskilgreind fræöi sem enginn veit haus né sporö á, pensúm sem ekki er til, vísindi sem varla hafa veriö skilgreind öðruvísi en aö þau séu „þverfagleg". Þaö er því ekki aö undra þó allir sem af ein- hverri einlægni og alvöru hugsa um kvenna- rannsóknir séu talsvert þungbúnir þessa dag- ana og hugsi sem svo: Hvaö eru kvennarannsóknir? Eru kvennarannsóknir þaö þegar karlar eru að rannsaka konur, eða konur eru að rannsaka TUIagn aö reghigerö Rannsóknnstofa í kv«nnafræOum í.r* Ranníóknastofa í lcvennafræöum fæst viö rannsóknir og miölun þekkingar á »viöi kvennafracöa. Rannsóknastofa I kvennafrsöum heyrir beint undir hðskólaráö. 2.gr. Hlutverk rannsóknastofu í kvennafraeöum er: a) aö eíla og samhæfa rannjóknir í kvcnnafræöum, m.a. meö •tyrkveltingum. b) aö hafa larmtarf vfö innlenda og erlenda rannsóknaraöila á rdöl kvennafraeöa, c) aö koma á fót gagnabanka um kvennarannsóknir, d) aÖ gefa ót og kynna niöuritöður rannsókna f kvennafræöum, e) að velta upplýsingar og ráögjöf varöandi rannsóknlr í kvennafrcöum, 0 aö lcita samstarfs viö deildir h&skótans um aö auka þátt kvennaftxöa (kennslu fræöigreina. g) aö gangast fýrir námskeiðum og fyrirlcstrum um kvennafrcöi og kvennarannsóknir. karla, eða aö konur aö rannsaka konur, eöa kon- ur aö rannsaka sjálfar sig? Hugsanlegt er líka aö kvennarannsóknir séu rannsóknir á því hvaö konur hafa veriö aö rann- saka gegnum tíöina. Og hvaöa nafn er þá hægt aö gefa þeim rannsóknum ef þær hafa haft það aö megin- markmiði aö rannsaka fúlmennsku karla, sem hefur svo sannarlega lengi verið verðugt rann- sóknarefni og að margra dómi mun meira aö- kallandi en kvennarannsóknir? Hvort eiga slíkar rannsóknir aö heita „karla- rannsóknir" af því veriö er að rannsaka karla, eða „kvennarannsóknir" af því þaö eru konur sem stunda rannsóknirnar. Kvennarannsóknir á körlum? Eða karlarannsóknir kvenna? Hver veit? Auövitaö er endalaust, á akademísku plani, hægt aö velta vöngum yfir því á hvorum end- anum rétt sé að byrja þegar varpa á nýju vís- indalegu Ijósi á lífið og tilveruna. Sumir halda því fram aö afleiðinguna eigi að skoða í samhengi við orsökina og jafnvel kanna orsökina fyrst. Og hver er orsökin í þessu tiltekna máli? Karlar. Karlar og öll sú ómælda ógæfa sem þeir hafa frá upphafi steypt yfir konur. Frá því aö rifbeinið var tekiö úr Adam og bú- in til úr því kona hafa karlar valdið allri þeirri bölvun sem dunið hefur á konum og væri of langt mál aö fara aö rekja hér allt þaö svínarí. Og þessvegna er það nú aö sumir þeirra sem á annaö borö eru vísindalega innstilltir og vilja huga aö orsökinni á undan afleiðingunni hugsa sem svo: Karlarannsóknir eru í raun og veru brýnni en kvennarannsóknir. Og þess vegna ætti það í raun og veru aö hafa algeran forgang í hinni virtu vísindastofn- un, Háskóla íslands, aöfara aö rannsaka orsök- ina aö ógæfu kvenna. Hefja karlarannsóknir. Stofna RANNSÓKNASTOFU í KARLA- FRÆÐUM. NV/R BÍLAR Á HAGSTÆÐU VERÐI HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN • Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor- olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station • FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta- tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol, Toyota Landcruiser, Ford Econoline #5-12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5-7), Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11), Toyota Litace (8), Ford Econoline (12) BÍLALEIGAN í GEYSIR sími: 688888 Suðurlandsbraut 16, Reykjavík, gengið inn frá Vegmúla.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.