Pressan


Pressan - 08.03.1990, Qupperneq 6

Pressan - 08.03.1990, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 8. mars 1990 Hagen þegar Pressan sýnir honum mynd af Jóni Magnússyni, lögfræð- ingi og sjálfstæðismanni, sem mun hafa sýnt norska Framfaraflokknum áhuga. Pressan á í fórum sínum mynd af Jóni þar sem hann heldur á könnu með merki norska Framfara- flokksins. Eli Hagen er viss um að hún hafi séð Jón, en þó að hjónin leggist bæði á eitt geta þau ekki al- mennilega komið honum fyrir sig. Norski Framfaraflokkurinn hefur hingað til ekki haft nein skipulögð samskipti við bróðurflokka í öðrum löndum. „Þetta á eftir að breytast," segir Hagen. ,,Núna erum við orðn- ir stórir og eigum eftir að verða stærri. Þá er auðvitað nauðsynlegt að treysta tengslin í öðrum löndum. ísland verður ekki efst á blaði í þeim samskiptum en ef Islendingar sýna mínum flokki áhuga þá er mér auð- vitað Ijúft að greiða götu þeirra og kynna starfsemi okkar hvenær sem er,“ segir formaðurinn. Báknið burt — lægri skatta Frelsi einstaklingsins til þess að ráða málum sínum alfarið er aðals- merki Framfaraflokksins. Baráttan við kerfið og of háa skatta er mikil- vægust. Hagen segist vera forsvari alþýðunnar og berjast fyrir því að fólk fái kaupið sitt í hendurnar og geti ráðstafað því að vild, fremur en að fleygja því í ríkishítina. „Kerfi sem saumar púða undir rassinn á letingjum en skattpínir vinnandi fólk er ekki velferðarþjóðfélag. Báknið er fyrir löngu búið að taka yfirhöndina, við erum ekki lengur frjáls þjóð,' segir hann. Carl I. Hagen talar mál sem allir skilja. Þegar hann talar um letingja og snikjudýr, hvort sem það eru einstæðar mæð- ur eða flóttamenn, vinnur hann sér stuðning innan flestra stétta og ekki síst meðal launafólks með lágar tekjur, sem finnst óréttlátt að aðrir fái ef til vill meira fyrir að gera ekki neitt. „Við verðum að kalla hlutina sínum réttu nöfnum, sníkjudýr eru sníkjudýr. Framfaraflokkurinn talar af hreinskilni," segir Hagen. And- stæðingar hans kalla hreinskilnina dónaskap, sleggjudóma og meðvit- aða tilraun til að auka á öfund og eigingirni og jafnvel kynþáttahatur. En vinsældir Hagens eru miklar og hugmyndir hans um málefni eins og þróunarhjálp og móttöku flótta- manna njóta sífellt meiri stuðnings í Noregi. Enga þróunarhjálp „Þróunarhjálp á vegum hins opin- bera er mikill ósiður og bruðl með peninga almennings. Eg kæri mig ekkert um að ríkið sé að gefa mína peninga. Ef ég vil gefa svertingjum í vanþróuðum löndum peninga er það einkamál mitt hvenær og hvernig ég geri það. Og þá vil ég geta fylgst með því að hvar hjálpin lendir og hvort hún kemst til skila. Ef ég vil ekki gefa er það líka einka- mál mitt,“ segir Carl I. Hagen. í Noregi hefur Framfaraflokkur- inn verið ásakaður fyrir útlendinga- hatur. Einkum voru þær raddir há- værar þegar Hagen vildi ekki for- dæma stjórnmálaflokk sem stofnað- ur var til þess að hindra allan fólk- sinnflutning og stöðva komu flótta- manna til landsins. En Hagen stóð fast á sínu. Skoðun fólks á flótta- mönnum og þróunarhjálp er að hans mati einkamál. Reyndar segir Hagen að Noregur geti veitt viðtöku ákveðnum fjölda flóttamanna gegn- um Sameinuðu þjóðirnar, en flótta- menn sem koma á eigin vegum finnst honum ekki ástæða til þess að aðstoða. Flóttamenn safni sjólfir fyrir ferðinni „Það er eins með hina svokölluðu flóttamenn og einstæðu mæðurnar. Þeim er gert kleift að lifa góðu lífi á kostnað skattgreiðenda og oft miklu betra lífi en þeim sem vinna fyrir sköttunum. Mikið af þessu fólki er ekki raunverulegir flóttamenn. Það kemur til Noregs til að græða, til þess að fá allt ókeypis. Þú hlýtur að skilja að fólki sem vinnur hörðum höndum finnist þetta óréttlátt," seg- ir Carl I. Hagen. Gerviflóttamenn sem hlaðið er undir eru eitt af uppá- haldsumræðuefnum hans og nú er hann óstöðvandi. Blaðamaður skýt- ur því inn í umræðuna að hér á landi séu fáir flóttamenn. Það finnst hon- Karlarnir hæfari Eiginkonan Eli hefur varla komið að nema einsatkvæðisorðum í lang- an tíma og er farin að geispa og sýna ýmis merki um óþolinmæði. Tveir norskir blaðamenn bíða eftir viðtali við Carl I. Hagen, svo hún Eli Hagen, kona formannsins, er ein örfárra kvenna sem starfa innan Framfaraflokksins. Hún kynntist flokknum gegnum eiginmanninn. minn feril?" spyr Carl I. Hagen, og svarar spurningunni strax til örygg- is: „Eg er líka af venjulegu fólki kominn og ekki fæddur með gull- skeið í munni þó sumir haldi það. Pabbi minn var lágtsettur kerfiskall og mamma mín bókhaldari í hluta- starfi. Eg passaði mig sjálfur frá sex ára aldri. Við bjuggum í frekar lítilli íbúð og ég á tvær systur sem ég reifst oft við. Svo hélt ég til mennta og hingað er ég kominn og sem bet- ur fer af eigin rammleik. Það er mergurinn málsins að maður getur komist áfram bara ef viljinn er fyrir hendi." Nú hafa þau hjónin góðfúslega leyst frá skjóðunni og fjallað bæði um stjórnmál og sagt frá uppvexti sínum. Þau sögðu ekki frá javí sjálf en þess má geta að þau eru bæði frá- skilin og eiga börn úr fyrra hjóna- bandi. Hafa því sjálf verið einstæðir foreldrar, en vonandi ekki sníkjudýr á þjóðfélaginu. Engu að síður finnst þeim fjölskyldan vera mikilvægasta einingin í þjóðfélaginú og viss stuðningur ríkisins við hina hefð- bundnu fjölskyldu finnst þeim eiga rétt á sér. Það er líka í verkahring ríkisins að sjá fyrir gömlu fólki sem ekki á aðstandendur sem geta gert það. Leggjum kjafta- klúbbinn niður Tími okkar er útrunninn og með glæsilegri handasveiflu bendir Carl I. Hagen næsta blaðamanni að koma. Það er nóg að gera hjá kon- ungi frjálshyggjunnar. I kvöld stend- ur til að taka þátt í veisluhöldum á kostnað skattborgara Norðurlanda. En síðustu orð hans áður en við kveðjumst eru þau að vonandi hitt- umst við ekki aftur í sambandi við Norðurlandaráðsþing. „Þetta þing er valdalaust og tilgangslaust og það ætti að leggja niður í núverandi mynd. Auðvitað hafa menn gaman af þessu. Þingið er huggulegur kjaftaklúbbur og mikið um dýr veisluhöld. En valdamenn ættu að geta skemmt sér á ódýrari hátt fyrir fé almennings." um gott að heyra, en Eli, konu hans, þykir eðlilegt að enginn flóttamað- ur vilji flýja til íslands. „Þið munið eftir vesturförunum í gamla daga,“ heldur Hagen áfram. „Þeir urðu sjálfir að safna fyrir Am- eríkuferðinni og treysta á eigið framtak. Þeir gátu ekki kastaö sér í faðminn á ríkinu þegar vestur var komið. Þetta fólk kunni að bjarga veit á hverju hún á von. En það er enginn asi á honum, enda frá nógu að segja. Velþekktar hugmyndir í velþekktum umbúðum streyma fram í fyrirlestrarformi. Blaða- manni leikur forvitni á að vita meira um Eli. Hvernig lenti hún í pólitík- inni? Var það í gegnum eiginmann- inn og hvernig er að vera gift frjáls- hyggjukónginum? fallið sæmilegt. Eli minnir að þær séu 4 af 16, Framfaraflokkskonurn- ar á Oslólistanum. A norska Stórþinginu er staðan ekki eins góð. Carl I. Hagen kom 22 flokksmönnum á þing í síðustu kosningum, en þeirra á meðal er að- eins ein kona. Hvernig stendur svo á því að konur vilja ekki vinna fyrir Framfaraflokkinn? Carl I. Hagen er vinsæll ræðumaður og þekktur fyrír aö vera óspar á stóryrðin. sér, og ef það kunni það ekki þá gat það látið ógert að fara." Lentu ekki margir þeirra í mestu þrengingum og dóu jafnvel á leið- inni? Finnst þér eðlilegt að ekki sé meira gert fyrir flóttamenn nútím- ans en vesturfarana forðum? „Já, það finnst mér, af því að vest- urfararnir völdu sjálfir að fara. Þetta er líka val margra svokallaðra flótta- manna nú til dags og mér finnst al- veg sjálfsagt að þeir beri sjálfir alla ábyrgð á því.“ „Ég var venjuleg sveitastúlka frá Dovre í Mið-Noregi. Þangað til ég hitti Carl fyrir 11 árum hafði ég eng- an áhuga á pólitík, en ég smitaðist af honum. Það hefði líka verið erfitt að lifa með honum án þess að vera með og hafa áhuga á stjórnmálum; segir Eli Hagen. Hún er ánægð með að hafa komist áfram í pólitíkinni af eigin rammleik, í stað þess að lenda á lista fyrir það eitt að vera kona. Framfaraflokknum hefur gengið illa að fá konur til að vinna fyrir flokk- inn. I borgarráði Oslóborgar er hlut- „Það er erfitt fyrir alla flokka að fá konur með. Hinir flokkarnir pota fram öllum konum sem þeir komast yfir, í nafni jafnréttis. Við hugsum ekki þannig, við veljum þá hæfustu og það hafa hingað til aðallega ver- ið karlar. En það getur breyst seinna." Carl I. hefur aftur tekið orð- ið. „Pabbi minn var kerfiskall#/ „Ætlarðu ekki líka að spyrja um

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.