Pressan - 08.03.1990, Síða 14
14
Fimmtudagur 8. mars 1990
\S
kY**0SZk3
k'
í^úidS*0
et*
klædd í matrósajakka og undir þeim
eru þær í bikinibaðfötum eins og
þau gerðust á sjötta tugnum, með
buxum upp í mitti.
Hanna Kristín í Kristu er spurð
hvernig henni lítist á þessa klipp-
ingu.
„Þetta er falleg og þægileg
greiðsla. Það er einmitt svona
greiðsla sem nútímakonur vilja.
Hún er létt og skemmtileg og hefur
yngjandi áhrif. Það er auðvelt að
greiða svona greiðslu sjálfur, ekki
síst vegna permanentsins. Nú er far-
ið að nota svo létt permanent sem
fer mjög vel með hárið. Það er jafn-
vel farið að nota permanent sem
dugar bara á milli tveggja klippinga.
Hérna er notaður bæði glans- og
lakkúði. Nú erum við farin að beita
þessum efnum, eins og til dæmis
lakkinu, eins og verkfærum, í stað
innrauðra lampa eða krullujárns.
Ég er hrifin af þessari línu, en hins
vegar verð ég að segja að hún kem-
ur mér satt að segja ekki á óvart. Við
höfum verið með þessa línu heima
og könnumst við hana. Ég held að
þetta komi til af því að við Islending-
ar fylgjumst svo vel með því sem er
að gerast. Það eru vissir straumar á
ferðinni og við erum fljót að taka
við okkur. Ég er viss um að þessi
greiðsla á eftir að verða mjög vinsæl
heima í sumar."
„Auðseljanleg7'
útgáfa
Næsta útfærsla heitir „Stone“ og
er gerð fyrir þær konur sem ekki
vilja alveg stutt hár og kæra sig ekki
um permanent.
Hanna Kristín er aftur spurð
álits á greiðslunni.
„Þessi greiðsla verður áreiðan-
lega geysilega vinsæl því hún hent-
Það eru ekki margir á ferli snemma á
sunnudagsmorgni i Paris og fáir sem
taka lestirnar út i úthverfin. Þeir farþeg-
ar eru oftar en ekki eftirlegukindur næt-
urinnar sem misstu af siðustu lestinni i
gærkvöldi og héldu áf ram skemmtuninni
til morguns og eru nú á leið heim i mis-
jöfnu ástandi. Meðalfarþeginn á svona
morgni er krumpaður og þvældur, gugg-
inn i framan, með bauga undir augum,
augljóslega timbraður og alls ekki vel
greiddur. En þennan sunnudagsmorgun
snemma i febrúar eru allt i einu komnir
farþegar af allt öðru sauðahúsi i þessa
lest sem fer i útborgir fyrir austan Paris.
EFTIR: GUÐRÚNU FINNBOGADÓTTUR
Lovísa hérgreiöslumeistari í Venus er með mikiö og fallega rautt hár.
Dúddi lagði til að hún yrði notuð sem módel og siða hárið klippt eftir
nýjustu tísku. Lovísa var ekki sammala!
greiðsla fyrir nútímakonur og mjög
hentug í sumarfríinu.
Fyrsta útfærslan á „Off-Shore"
heitir „Casque d'or" eða „gullhjálm-
urinn". Hárið er krullað, greitt fram,
stutt í hnakka. Litir eru eðlilegir,
Ijós- og millibrúnir. Módelin eru
ar afar mörgum konum. Hún er auð-
seljanleg, eins og við segjum. Hárið
er fremur stutt að framan en sítt að
aftan og slétt. Hún er „geómetrísk"
og heildarsvipur er reglulegur. Hún
er mjög kvenleg. Hér er litun nokk-
uð mikið atriði, en hún felst í að gera
Konurnar eru svo vel snyrtar, að
það er engu líkara en þær séu ný-
komnar út af meiriháttar snyrti-
stofu, og karlmennirnir eru í vel
pressuðum buxum og hvergi sést
blettur né hrukka. Lestin er full af
þessu undarlega vel greidda fólki.
Það er reyndar ekkert undarlegt þvi.
þetta eru færustu hárgreiðslumeist-
arar veraldar komnir til Parísar að
sækja nýju vor- og sumarlínuna í
hárgreiðslu. Förinni er heitið í sýn-
ingarsalinn Pavillon Baltard þar
sem Haute Couture Francaise
sýnir nýju tískuna.
Sýningarhúsjð á sér merka sögu.
Þetta er sá eini sem eftir er af hinum
frægu markaðsSkálum í miðri París,
sem nú er búið að rifa og flytja burt.
Ameríkanar voru svo skynsamir að
kaupa nokkra þessara skála sem eru
forkunnarfallegir, teiknaðir af arki-
tektinum Victor Baltard um miðja
síðustu öld. Þessi síðasti markaðs-
skáli sem eftir er i Frakklandi var
fluttur úr miðborginni út i smábæ
fyrir austan París, Nogent-sur-
Marne. I dag eru þarna þúsundir
hárgreiðslufólks og sýningin er lok-
uð öllum öðrum en þeim. Það hvílir
mikil leynd yfir því sem sýnt er og
liggur blátt bann við að birta myndir
frá sýningunni fyrr en 4. mars.
Elsa Haraldsdóttir, eigandi Salon VEH: „Maður verður að reyna að fyr-
irbyggja að fólk verði svo ginnkeypt fyrir einni ákveðinni tískusveiflu
að allir verði eins."
íslendingar
drekka í sig
nýja strauma
Sýninguna sækja sex islenskir
hárgreiðslumeistarar sem eru með-
limir í samtökunum „Haute Coiff-
ure“. Það eru Hanna Kristín í
Kristu, Svava i Lótus, Bára Kemp
i Hári og snyrtingu, Dúddi, Elsa
í Salon VEH og Lovísa í Venus.
Þau hafa sótt þessar sýningar síðan
1978, hafa komið til Parísar vor og
haust til þess aö kynna sér nýju
straumana og fært þá siðan tísku-
hungruðum Islendingum. Þau hafa
haldið hópinn allan þennan tíma og
reyndar lengur, því þau lærðu sam-
an í Iðnskólanum og voru sum hver
nemar á sömu stofum. Það þætti
áreiðanlega í frásögur færandi í
þessum „kredsum" erlendis hversu
samtaka þau eru og laus við inn-
byrðis samkeppni.
Á þessum vettvangi hitta þau
starfsbræður hvaðanæva úr heimin-
um. Einkum er sambandið gott á
milli Norðurlandabúanna og fundir
hafa verið haldnir í Noregi. Þau
koma með starfsfólk með sér svo
það geti líka kynnst því sem er að
gerast i faginu og að þessu sinni eru
fimm fagmenn af yngri kynslóðinni
og tilvonandi meistarar með í för-
inni.
Hárgreiðslan er sýnd á stórum
palli í miöjurn salnum og fyrir aftan
og til hliðar eru geysistórir sjón-
varpsskermar sem sýna nærmyndir
af handbragði meistaranna við
vinnu sína.
Hár fyrir
nútímakonur
Sumartískan í hárgreiðslunni heit-
ir „Off-Shore" eða ,,Á sjónum" og
eins og nafnið bendir til er hún létt,
stutt og frískleg. Einföld, þægileg