Pressan - 08.03.1990, Síða 19
Fimmtudagur 8. mars 1990
19
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MVNDIR EINAR ÓLASON
Hún svaraði ekki bjöllunni. Samt var
ég nánast á mínútunni. Eftir tvær hring-
ingar i viðbót kom rödd i dyrasimann:
„Anna?"
Þegar upp á efstu hæðina var komið
kom á móti mér ung kona, klædd grárri
peysu með útpr jónuðum bleikum svinum
á. Hún var lika i inniskóm sem voru i lag-
inu eins og svinshöfuð. Fyrir aftan hana
stóð Einar Ijósmyndari og þau voru bæði
skellihlæjandi. Sögðu að þau hefðu ekki
getað svarað bjöllunni þvi þau hefðu
verið inni i svefnherbergi. . .
Þetta kemur þessari grein heil-
mikið við þótt ykkur kunni að virð-
ast annað. Carole Mitchell hafði
nefnilega samþykkt að láta mynda
sig uppi í rúmi, umkringda „loðdýr-
unum“ sínum, sem öll eru svín. Og
það var einmitt ástæða þess að við
heimsóttum þessa skosku stúlku,
sem starfar sem ritari hjá breska
sendiráðinu: Hún var sögð safna
hlutum sem minntu á svín.
Eitt siglfirskt svín
,,Eg ætlaði mér ekki að fara að
safna svínum," segir Carole. ,,Ég
keypti fyrstu styttuna mína af svíni
árið 1986 og það var eingöngu
vegna þess að mér fannst hún svo
skemmtileg. Upp úr því æxluðust
hlutirnir þannig að vinir mínir fóru
að gefa mér í gjafir ýmsar útgáfur af
svínum."
Fyrstu styttuna keypti Carole í
Skotlandi og þótt flestir hlutanna
séu keyptir í Bretlandi á hún svín frá
Portúgal, Ungverjalandi, Þýska-
landi og Finnlandi, Hjaltlandseyjum
og íslandi: „Ein styttan var keypt
einhvers staðar fyrir norðan," segir
hún. „Ég heid það hafi verið á Siglu-
firði."
Aldrei komið inn á
svinabú
Hún segist ekki vita hvers vegna
„It isn't easy to stay on top" eða
„Það er ekki auðvelt að vera á
toppnum" stendur á þessari
skemmtilegu veggmynd af litl-
um grísum sem hangir á eldhús-
veggnum hjá Carole. Takið eftir
svuntuvasanum!
Sumum finnst nóg
af svínum hér!
„Ég hef aldrei talið hversu marga
muni ég á i allt sem tengjast svín-
um,“ segir hún. „Það eina sem ég
veit með vissu er að stytturnar eru
64 talsins." Þeim er raðað á átta hill-
ur og þar má líka sjá mjög sérstakan
teketil — auðvitað með svínshöfði!
Á stofugólfinu er hins vegar stór
stytta, ekki af svíni heldur ketti!:
„Já einni vinkonu minni fannst
nóg komið af svínum hér innanhúss
og ákvað að færa mér „kött"! Ég er
líka mjög hrifin af köttum svo þessi
stytta fær að vera hér á áberandi
stað."
Hún segir að einhverjir vina sinna
hafi varað sig við því að þessi svína-
söfnun geti haft í för með sér að hún
fái nóg af svínum: „Það getur vel
verið rétt," segir Carole. „Hins vegar
hef ég ennþá gaman af þessum hlut-
um og mér þykir vænt um þegar
fólk gefur mér svona gjafir. Og já, ég
borða svínakjöt!" svarar hún og við-
urkennir að hún snúi sér við í versl-
un ef hún sér mun í svínslíki: „Hins
vegar kaupi ég ekki nærri allt sem
ég sé, aðeins það sem er mjög sér-
stakt," segir hún. „Að öðrum kosti
væri miklu meira af svínahlutum
hér en raun ber vitni!"
hún hefur þennan áhuga á svínum:
„Ég hef til dæmis ekki séð lifandi
svín nema í dýragörðum. Ég hef
aldrei komið inn á svínabú og vona
bara að ég komist sem fyrst inn á
eitt slíkt! Svín eru nefnilega mjög
hreinleg dýr, eftir því sem mér er
sagt. Mér þykir svín aðallega svo
sæt dýr."
Peysuna sem Carole klæðist og er
útprjónuö í bleikum svínum segir
hún vinkonu sína í Skotlandi hafa
prjónað handa sér: „Ég er alltaf að
fá eitthvað sem minnir á svín!“ segir
hún og tekur upp litla glerskál
skreytta svínamyndum og tölustaf-
irnir 30 brenndir í: „Þessa fékk ég
í þrítugsgjöf frá annarri vinkonu í
Edinborg. Þær leita uppi þá sem
hanna svona hluti eftir óskum.
Þessa ísaumuðu mynd með svíni
Carole Mitchell, rítarí í
breska sendiráðinu, hatði
aldrei safnað neinu þegar
hún keypti fyrstu styttuna
af svíni. Hú er hún sann-
kallaður svínasafnari; á
64 slíkar styttur og flest
annað á heimilinu tengist
svínum.
Inniskór og sokkar með
svinum á!
Ekkert klikkar...!
fékk ég líka frá Skotlandi. Svo á ég
margar nælur eins og þessa," segir
hún og bendir á eina sem hún er
með í peysunni. „Svo er ég líka i
sokkum með svinamyndum á!“ seg-
ir hún.
í eldhúsinu hjá Carole er margt
sem minnir á þessi dýr. Ostabakk-
inn ér í laginu eins og svín, ofn-
hanskarnir einnig og vasinn á
svuntunni sem Carole setur á sig er
svínshöfuð. Á veggnum hanga ótal
myndir af svínum, bæði útklipptar
úr blöðum, veggmyndir og póstkort
frá vinum og vandamönnum.
***
•x