Pressan - 08.03.1990, Page 28

Pressan - 08.03.1990, Page 28
PRESSU II mun vera nær frágengiö aö tveir menn verði ráönir í viðskipta- og iönaðarráðuneytin í stað Birgis Arnasonar, aðstoðarmanns Jóns Sigurðssonar, sem heldur til starfa við hagfræðideild EFTA í næsta mánuði. Guðmundur Einarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Alþýðu- flokksins, veröi næsti aöstoðarmað- ur ráðherra og Finnur Svein- björnssón, hagfræðingur í Seöla- bankanum, verði ráðinn til sér- stakra verkefna í tengslum við EFTA-EB-málefni o.fl . . . £g siðasta ari var Mörður Arnason, fyrrum ritstjóri Þjóðvilj- ans, ráðinn upplýsingafulltrúi Ól- afs Ragnars Grímssonar fjár- málaráðherra eftir aö hann var ekki endurráðinn sem ritstjóri Þjóðvilj- ans. Eins og mönnum er kunnugt úr fréttum samþykkti Alþingi viö af- greiðslu fjárlaga fyrir jól að auka kaup ríkisins á öllum dagblöðunum úr 250 eintökum af hverju blaði á dag í 750 eintök. Aukningin átti aö renna til sjúkrahúsa, stofnana og fyrirtækja á vegum ríkisins, en í dag senda öll blööin mun fleiri eintök til aö anna þörfinni en greitt er fyrir. Meröi Arnasyni var falið að frarn- kvæma breytinguna samkvæmt samþykkt Alþingis. Mörður bætti þó ekki við 500 eintökum eins og ákvörðun Alþingis gerði ráð fyrir. Blaðafulltrúi fjármálaráöherra hafði hins vegar samband við allar ríkis- stofnanir og ríkisfyrirtæki, sem greitt hafa séráskrift af ýmsum dag- blöðum utan við ríkisáskriftarkerf- ið, og bauð þeim ókeypis ríkisáskrift í skjóli þess að ríkið hygðist auka kaupin um 500 eintök á dag af hverju blaði. Flestallir forráðamenn umræddra ríkisstofnana gripu til- boð Marðar fegins hendi og nú hafa uppsagnir ríkisstofnana á sérkeypt- um dagblöðum byrjað aö streyma inn á afgreiðslur dagblaðanna. Aukningin, sem litlu blöðin hlökk- uöu mest til (og hafa mest veriö skömmuð fyrir) að fá sem sárnauö- synlega fjárhagsaðstoð, verður þvi nær engin þegar upp er staðiö. Aukning ríkisins í áskriftum verður heldur ekki umtalsverð. Forráða- menn Þjóðviljans, sem er hve verst staddur af litlu dagblöðunum, munu ekki tala fallega um Mörö Árnason, fyrrverandi ritstjóra, þessa dag- ana . . . A ^^nn eru nöfn að bætast viö þau, sem þegar hafa verið orðuð við borgarstjórnarframboð A-Iistans í Reykjavík. Fleyrst hefur að alþýðu- flokksmennirnir og líffræöingarnir Guðmundur Einarsson og Jón Bragi Bjarnason séu líklegir til að taka þátt í prófkjöri. Einnig hefur nafn Eiríks Briem verið nefnt í þessu sambandi . . . ^Íímaritið Samúel hefur frá upp- hafi birt myndir af léttklæddum stúlkum, bæði inni í blaðinu og stundum jafnvel á forsíðu. Síðastlið- ið haust kom að máli við Sam-út- gáfuna aöili sá, sem auglýst hefur svokallaðar fulloröinsmyndir í dálk- um DV, og vildi fá birtar auglýsingar í Samúel. Honum var hins vegar sagt að hann fengi ekki aö auglýsa myndbönd á þeim vettvangi. . . b aö hverfur greinilega fleira þessa dagana en söluskattsskýrsl- ur og ávísanir, eins og gerðist hjá tollinum í Reykjavík og PRESSAN greindi frá í síðustu viku. Atkvæða- seðlar úr utankjörstaðarat- kvæðagreiðslu vegna prófkjörs sjálfstæðismanna á Isafirði voru sendir úr Valhöll í Reykjavík eigi alls fyrir löngu. Þegar hins vegar sækja átti atkvæðaseðlana út á flug- völlinn á Isafiröi bar svo við að þeir voru horfnir. Þeir ungu Vestfirðing- ar sem sáu um að senda seðlana vestur höföu nefnilega pakkað þeim inn í umbúðir fyrir frosið sjávar- fang og merkt þá sérstaklega á þann veg að um frystivöru væri að ræða...! Seðlarnir fundust þegar starfsmaður flugvallarins átti erindi í frystikistuna í húsnæði flug- stöðvarinnar. . . U . ppi a Stöð 2 ganga menn um með hangandi haus þessa dagana. Ástæðan er sú að í þættinum Lista- mannaskálanum sem Stöð 2 sýndi á sunnudagskvöldið var íjallað unt hinn bráösnjalla ljós- myndara David Bailey. í þættin- um kom meðal annars fram að Dav- id er ekki aðeins snjall Ijósmyndari heldur hefur hann einnig gert af- bragðsgóðar sjónvarpsauglýsing- ar. Og sýning einnar þeirra varð heldur betur til að hleypa fjöri í leik- inn. Þetta var auglýsing, gerð árið- 1987 fyrir Volkswagen-fyrirtækið og sýndi hvar ung kona rauk út af heimili sínu eftir rifrildi við eigin- manninn, fleygði hring sínum í gegnum bréfalúguna og reif af sér hálsfesti. En næsta hlut henti hún ekki. Það voru nefnilega lykl- arnir að Volkswagen-bílnum hennar. Óneitanlega minnti þessi auglýsing á aöra slíka, unna af Stöð 2 nú nýlega, nema hvað sú er gerð fyrir Toyota. . . I borginni Sacramento í Kali- forníu er staðsettur skólinn California State University. í skóla þessum eru 25.000 nemend- ur og inn á þriðja ár á námsbraut fyrir framleiðslu á sjónvarpsefni (Media Production) komust aðeins átján nemendur. Þeir sendu síðan inn handrit að stuttri kvikmynd í samkeppni og fyrir um mánuði var tilkynnt hvaða nemandi hefði hlotið fyrstu verðlaun fyrir kvikmynda- handrit. Sigurvegarinn reyndist vera 23 ára íslensk stúlka, Erla Stefánsdóttir, og fjallar handrit hennar um gamla, einmana konu sem lifir lífi sínu algjörlega í gégnum sjónvarp. Þessi viðurkenning er gríðarlega mikilvægur hlekkur á námsbraut nemanda í kvikmynda- gerð því innan fárra vikna verður hafist handa við að búa til kvik- mynd eftir handriti Erlu Stefáns- dóttur. Myndin mun síðan fara á kvikmyndahátíð í Bandaríkjun- um og verður Erla leikstjóri henn- ar. Þegar er farið að æfa leikara fyr- ir myndina, sem verður fimmtán mínútna löng og tekin á 16 mm filmu í kirkju, almenningsgarði og víðar í Sacramento . . . MITSUBISHI Mitsubishi myndbandstækin svara fyllstu kröfum um nútíma- tækni og búa yfir fleiri möguleikum en önnur tæki á sambæri- legu verði. Myndgæðin eru einstök, allar stillingar hárnákvæmar og fljótvirkar. Mitsubishi myndbandstækin hafa sannað að þau standa fyllilega undir kröfum þeirra kröfuhörðustu, sem fylgjast með og vilja fá mikið fyrir peningana. Mitsubishi Twin Digital eru japönsk hágæðatæki sém sameina ótrúleg myndgæði og allar helstu tækninýjungar. Þessi myndbandstæki eru hraðvirkari og nákvæmari en þú hefur áður átt að venjast. Þau koma eigendum sínum ánægjulega á óvart með því að framkvæma fleiri aðgerðiren önnur myndbandstæki, hratt og örugglega. Tvöfaldur, stafrænn sporstillir. Tryggir fullkomin myndgæði. I Fullkomin kyrrmynd. I Hraðspilun. Nýjar víddir í myndgæðum. IHraðspólun helmingi hraðari en venjulega SUP£R stow | Hæg hraðastilling. IN0EX | Atriðaleitari. Hl- SPEED | Hraðaleitun. 8 11 mánaðar upptöku Iminni; 8 þættir. s 5 sjálfvirkar aðgerðir. QOtCR tCAOfNG ISpólan er alltaf tilbúinl lí tækinu. ísl. JHægt að fylgjast með afspilun í klst., mín. og sekúndum. IUpptaka fyrir styttri tíma - minnst 15 mín. ÍEinföld tákn á skjánum, sem sýna aðgerð. IÁ skjánum sýnd tímalengd sem eftir er.með því að spóia fram eða til baka. Línutímateljarinn leitar að einstökum þáttum á fljótlegan hátt. ÍSýnirafspilunartímaá I sjónvarpsskjánum og smáskjá myndbands- tækisins. | Þrír myndhausar. Nákvæmar íslenskar leiðbeiningar fylgja. IStillingíram í tímann á sjónvarpsskerminum. Mhsubishi myndbandstæki eru komin tr/ að vera - í fremstu röð. AÖeins kr. 49.990,- stgr. t,, : KRINGLUNNI - —

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.