Pressan - 24.05.1990, Page 5

Pressan - 24.05.1990, Page 5
Fimmtudagur 24. maí 1990 5 BJARNI PÁLMARSSON LEIGUBÍLSTJÓRI SEGIR STÉTTARFÉLAGIÐ BERJAST GEGN HAGSMUNUM LEIGUBÍLSTJÓRA OG FARÞEGA „STIFAR REGLUR VALDA ÖLVUN ARAKSTRI!" V Einkabílstjóri hertogans af Wellington, hertogans af Marl- borough, Forte-feðganna (eigenda Trusthouse-Forte-hótelkeðj- unnar), Karls Bretaprins, Kendalls, forstjóra PepsiCo, Jessicu Lange leikkonu, ballettdansarans Barishnykov, Neils Armstrong geimfara ogfleiri heimsþekktra manna, þegar þau koma hingað til lands vegna laxveiða, er gagnrýninn á þá þjónustu sem leigu- bílastöðvarnar veita erlendum gestum sem innlendum. Hann rekurnú sjálfur glæsivagnaþjónustu — limousine-þjónustu — en það fellur ekki í góðan jarðveg hjá stjórn stéttarfélagsins. Menn eiga bara að bíða í sinni röð eftir næsta bíl. VIÐTALOG MYNDIR: BJARNI SIGTRYGGSSON Bjarni Pálmarsson er bú- inn að vera leigubíistjóri í Reykjavík áratugum saman. Hann vill fara nýjar leiðir í þjónustu við farþega, en fær ekki að gera það. Það er stétt- arfélag leigubílstjóra, Frami, sem stendur í veginum fyrir allri þróun, segir Bjarni. Og það sem verra er, að hans mati: „Þessi stífni leiðir af sér að leigubílstjórar missa verk- efni og ölvunarakstur dans- húsgesta er afleiðing þessa." Stjórnarmenn eld- ast í hugsun Bjarni segist vera búinn að standa í margra ára baráttu við „afturhaldsöflin" í stjórn Frama. „Það er eins og leigu- bílstjórar eldist í hugsun þeg- ar þeir komast í stjórn stéttar- félagsins. Þá má aldrei skoða neiriar nýjungar í þjónustu. Þeir sjá ekki það sem er að gerast og það sem koma skal." Frami stendur svo í stríði við sína eigin félagsmenn, telur hann. Veikist leigubíl- stjóri verður bíllinn að standa kyrr, jafnvel þótt alltaf vanti bíla fyrir utan einhverja veit- ingastaði um helgar. Það má ekki útvega ökumenn með full meiraprófsréttindi, menn með tungumálaþekkingu og góða framkomu. „Frekar skal vanta bíla. Og hverjar eru af- leiðingarnar?" spyr hann. „Þær að fólk sem er að fara út á danshús og veitingastaði lætur börnin eða venslafólk skjótast með sig. Margir fara á eigin bíl, en ætla svo að taka sér leigubíl heim. Þegar engan bíl er að hafa freistast margir til að aka sjálfir. Það er algeng skýring sem menn gefa þegar lögreglan stoppar þá ölvaða við akstur, að þeir hafi gefist upp á leitinni að leigubíl." Hreyfli, svo við bræður flutt- um okkur yfir á BSR." 4*^ir stofnuðu glæsivagna- fyrirtækið „Limousine- þjónustu Pálmarsson- bræðra". Síðar keypti Bjarni hlut bróður síns og er nú með þega Flugleiða. En er þetta lögbrot? „Nei, ég rek bílaleigu og hef sjálfur leyfi til aksturs leigubifreiða. Eg hef á mínum snærum menn með leyfi til fólksflutninga, rétt eins og Bílafloti út á leyfi frá Steingrími Bjarni hóf glæsivagnaakst- urinn fyrir tæpum tveimur áratugum. Þá voru þeir ísólf- ur bróðir hans á Hreyfli, og í samvinnu við Einar Geir Þorsteinsson, þáverandi framkvæmdastjóra Hreyfils, unnu þeir að því að fá nýja hópa útlendra ferðamanna til viðskipta. Það voru prentaðir litbæklingar og dreift út um heim. „Einar Geir var of op- inn, hugmyndaríkur og já- kvæður fyrir ýmis gamal- menni í stjórn Hreyfils, svo þetta gekk ekki, þótt árang- urinn hafi þegar verið orðinn sá að iðule£,„ /oru allt að tutt- ugu bílar í akstri með útlend- inga um andið á sumrin. Þá voru jafnvel þrír-fjórir saman á ferð, og einn bílstjórinn, sá með bestu málakunnáttuna, veitti leiðsögn um talstöð. En þetta mætti andstöðu á Hluti af bílaflota „Pálmarsson Brothers". tíu bíla flota, allt gert út á gamalt leyfi sem Steingrím- ur Hermannsson veitti honum þegar hann var sam- gönguráðherra. Frami vill afturkalla þetta leyfi, en ráðu- neytið hefur ekki gert það. Kóngafólk fer ekki í biðröð „Pálmarsson Brothers" eru með góðakstur til Keflavík- ur fyrir flugfarþega. Það kostar 2.000 krónur fyrir far- þegann, hvort sem hann er einn eða þeir eru fleiri. Og á næstu dögum hefst svipaður glæsivagnaakstur á vegum Bjarna með SAGA-class-far- Magnús Hjartarson, en hann er eini leigubílstjórinn sem hefur byggt upp svipuð viðskipti. Erlent kóngafólk, stórforstjórar og kvikmynda- leikarar láta hafa samband við okkur beint, en fara ekki út og bíða í röð eftir næsta lausa leigubíl. Þau vilja fyrsta flokks bíl og kurteisan bíl- stjóra, sem kann að tala er- lend tungumál. Leiðin til að bæta þjónust- una fyrir innlenda farþega jafnt sem erlenda er sú að íeyfa öllum þeim sem réttindi hafa til aksturs leigubíla að fá að gera það. Það er út í hött að banna mönnum að nýta leigubíla sína. Þess í stað neyðast þeir annaðhvort til að brjóta vökulög með því að aka tuttugu tíma á sólarhring um helgar til að geta veitt nauðsynlega þjónustu — og valda þá slysahættu — eða etja veitingahúsagestum út í það að aka sjálfir undir áhrif- um.“ „Þetta stenst ekki“ segir Frami PRESSAN bar þessar full- yrðingar Bjarna Pálmarsson- ar undir Ingólf Ingólfsson, formann Frama. Hann taldi rök Bjarna ekki standast. í fyrsta lagi væri með nýjum reglum hliðrað til þannig að leigubílstjórar gætu að fengnu læknisvottorði fengið leyfi til að fá afleysingabíl- stjóra, þegar þeir veiktust. Auk þess sem þeir fengju að ráða fyrir sig mann, þegar þeir væru í lögbundnu starfi. Hvað varðaði akstur af veitingastöðum, þá væri þetta ekkert vandamál yfir sumartímann, því þá væri að- sókn mun minni en á vet- urna. Loks væri það álit þeirra að glæsivagnar Bjarna Pálmars- sonar væru ekki þvílíkir glæsivagnar að þeir stæðu undir því nafni. Þess vegna stæði nú fyrir dyrum að semja um það við ákveðna ferðaskrifstofu í Reykjavík að hún tæki að sér að miðla flugvallarakstri, svokölluðum pakkaferðum, til leigubíl- stjóra, en stöðvarnar höfðu hætt þeim ferðum.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.