Pressan - 04.01.1991, Blaðsíða 25

Pressan - 04.01.1991, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR PRESSAN 4. JANÚAR 1991 25 voru utan á bílunum. Var þá verið að skora á fólkið að fara frá og öllu illu hótað ef það færði sig ekki. Þegar enginn hlýddi hóf lög- reglan að telja niður. Auðvitað færði sig enginn og þá byrjaði löggan að tína inn í bílana. Þetta voru voðalega tilviljanakenndar handtökur og yfirleitt bara ein- hverjir hlaupnir uppi. Eins og áður sagði braut ég einu sinni rúðu og ég held að ég hafi alltaf verið handtekinn eftir það. Þá gengu alls kyns tröllasögur um meðal unglinganna um það sem átti að hafa gerst í einhverri annarri götu. Allt varð þetta til að æsa lýðinn." Það gerðust oft hinir spaugileg- ustu atburðir í kringum þessi átök þrátt fyrir alvarleika þeirra. Lög- reglan mun hafa stundað það að láta foreldra sækja þá handteknu enda voru það oftast unglingar. Einhverju sinni var þó hringt í eig- inkonu eins óeirðarseggsins og hún látin sækja hann. Mun það hafa verið fremur niðurlútur eigin- maður sem var leiddur í burtu með vasana fulla af kínverjum. LOGANDI ÖSKUTUNNUR ULTU UM GÖTUR Enginn treystir sér til þess að segja hvenær þessi átök náðu há- marki en upp úr 1975 munu þau hafa verið nokkuð harkaleg. Þá var kveikt í bílum og logandi öskutunnur ultu niður göturnar. Að sögn Tryggva voru einu sinni allar öskutunnur í miðbæ Hafnar- fjarðar fjarlægðar enda hafði þá undangengna þrettánda tíðkast að kveikja í þeim. Síðustu tvö, þrjú árin hefur óeirðaöldurnar lægt í Hafnarfirði og það þakka menn því að lög- reglan hefur sig nú minna í frammi. Það er helst að dulbúnar löggur séu látnar reika um. Enn er þó verið að loka götum enda eru unglingar ekki alfarið hættir að hópast saman. Þá hefur skotið upp ógnvekjandi fyrirbæri þar sem rörasprengjurnar eru. Það eru stórhættuleg vopn sem helst eru talin ættuð frá Belfast. Uppreisn borgaranna hefur því ekki að fullu verið kæfð niður og má sem dæmi taka að lögreglan óttast mjög alla umfjöllun um þrettánd- ann — telur hún greinilega að ekki þurfi meira til en stutta um- fjöllun til að kveikja í púðurtunn- unni. ÞJÓÐVEGI NÚMER EITT LOKAÐ „Þjóðvegur númer eitt við Sel- foss er lokaður." Tilkynningar sem þessar hafa ómað í kringum þrett- ándann á Selfossi undanfarna ára- tugi enda Selfyssingar herskáir þetta kvöld. Að sögn Jóns Gud- mundssonar, yfirlögregluþjóns á Selfossi, hófust ólætin þar fyrir 25 til 30 árum. Hann taldi að þessi sérkennilegi jólasiður hefði borist þangað frá Hafnarfirði. Sá sem þetta ritar er sjálfur al- inn upp á Selfossi og man því eftir þeirri sérkennilegu tilhlökkun sem ríkti fyrir þrettándann. Eftirvænt- ingin náði til flestra anga samfé- lagsins og ekki spillti fyrir þegar komu góðir gestir eins og víkinga- sveit lögreglunnar í Reykjavík. „Það var sérkennilegt að fylgj- ast með þessum degi þegar vík- ingasveitin kom. Ég bjó þá í næsta húsi við sýsluskrifstofuna og fylgd- ist með þeim undirbúa sig um daginn. Mér fannst þetta nú hálf- aulalegt því það voru engin ólæti þá. Víkingasveitin var hins vegar hin vígreifasta eða um 15 manns í fullum herklæðum," sagði Gunnar Sigurgeirsson, ljósmyndari á Sel- fossi, þegar hann var beðinn að rifja upp þennan sögufræga þrett- ánda. Koma víkingasveitarinnar er einn af hápunktunum í sögu þrett- ándans. Ekki þó vegna þess að hún gerði mikið því svo bar við að allt datt í dúnalogn við komu hennar. Hélt sveitin sig í Fram- sóknarhúsinu allan tímann og kom aldrei út. Það eru einkum tvö atvik sem ÞfíRfcOMASr,ew \ UPPm ÞETTAA/Tm ÍÞETTAM/VSMÉq EpjASTfmpjómmó Þrettándaóeirðir Götuvígi borgara Brúin lokuð t Framsókn lögreglu standa upp úr í minningu manna frá þrettándanum á Selfossi. Koma víkingasveitarinnar og þegar gamla pósthúsið brann. Hefðbund- ið var hins vegar að loka þjóðvegi númer eitt sem Iiggur í gegnum Selfoss. Það var gert með því að allt lauslegt drasl var drifið út á göturnar og götuvígi hlaðin. Þó að reynt væri að rífa götuvígin voru bara ný reist. Vinsælt var að hlaða vígi á Ölfusárbrúnni og einnig á Austurvegi og Eyrarvegi. En ein- kennilegar leikreglur giltu í kring- um götuvígin. FÓRU UPP Á LÖGREGLUSTÖÐ OG NÁÐU í FÉLAGA SÍNA „Ég man að ef það kom góður maður sem talaði fallega til okkar þá var honum hleypt í gegn. Öðr- um var hins vegar meinaður að- gangur,“ sagði Orn Grétarsson hjá Prentsmiðju Suðurlands og hélt áfram: „Ég man eftir einum ágæt- um borgara sem virtist langa til að ná sér í læti á þrettándanum. Hann keyrði þá út yfir brú þó að hann vissi að það ætti að fara að loka henni. Síðan þegar hann vildi fara til baka var honum meinað að komast í gegn. Hann varð þá alveg æfur og tíndi nokkra peyja inn í bíl og keyrði þá upp á lög- reglustöð. Þar voru þeir látnir bíða en hópurinn undi því ekki og fór á eftir þeim og náði í þá inn á lög- reglustöð." Ekki var verið að slá slöku við í glímunni við uppreisnarmenn. Man undirritaður eftir því þegar stór og mikil grafa var notuð til að sigrast á víggirðingum og var hún keyrð fram og til baka í gegnum götuvígin. Undraðist maður að ekki skyldu nokkrir uppreisnar- manna vera kramdir til dauða, slík voru lætin. Örn sagðist einmitt hafa fylgst með þessu á sínum tíma en þá var hann kominn af vígvellinum upp í áhorfendastúku. Hann sagði að sá sem hefði verið í gröfunni hefði einnig verið í mik- illi lífshættu því allar rúðurnar í gröfunni hefðu verið brotnar. lega verið Hvergerðingar! Það var að sjálfsögðu lygi en því var ekki að neita að oft var mikið af að- komumönnum í bænum til að taka þátt í látunum. Þá fylgdust fjölmiðlar náið með þessu í lokin og er til dæmis fræg sagan af því þegar fréttamenn Stöðvar 2 komu í bæinn til að mynda herlegheitin. Þetta mun hafa verið fyrsta þrettándann sem stöðin starfaði eða í upphafi árs 1987. Þá vildi hins vegar svo illa til að lætin voru að líða út af og það virtist ætla að verða erfitt fyr- ir stöðvarmenn að réttlæta bensín- reikningana. Nokkrir hjálpsamir Selfyssingar komu til hjálpar, veltu bílhræi og kveiktu í því. Þetta var reyndar fyrir utan alfaraleið þann- ig að sjónvarpsvélin varð eina vitnið að þessu. KVEIKT í GAMLA PÓSTHÚSINU Eins og í Hafnarfirði snerist þetta allt saman um að ergja lög- regluna og það var reyndar ekki fyrr en hún steig til hliðar sem tókst að kveða þennan draug nið- ur. Oft urðu viðbrögð lögreglunnar umdeild og man til dæmis Diörik Haraldsson hjá Prentseli eftirfar- andi sögu: „Einhverju sinni var ungmenna- félagið fengið til að halda ball í bíóinu. Það virtist ganga ágætlega en um líkt leyti höfðu einhverjir sett kerru út af veginum niður á Eyrarbakka. Lögreglan fór auðvit- að að leita að sökudólgunum og kom inn á ballið. Þar fundu þeir einhvern sem þeir töldu tengjast málinu og höfðu hann með sér út. Nú, auðvitað eltu allir ballgestir lögregluna út á götu og síðan hófst hin hefðbundna þrettánda- gleði," sagði Diðrik. Diðrik sagði að í upphafi hefði þetta allt saman verið fremur góð- látlegt sprell og ekkert skemmt. Þetta hefði hins vegar undið upp á sig og þá ekki síst vegna þess hve vitlaust hefði verið tekið á þessum málum. Líklega muna flestir Selfyssingar eftir því þegar gamla pósthúsið brann en það gerðist einmitt eitt þrettándakvöldið fyrir um það bil 15 árum. Húsið var reyndar yfir- gefið þá og hafði verið kveikt í því áður. Það var hins vegar nóg eftir til að brenna í húsinu og þá skap- aði það töluverða eldhættu fyrir eina sögufræga húsið á Selfossi, sem er Tryggvaskáli. „VANTAÐI BARA AÐ EINHVER YRÐI DREPINN“ „Það var ekkert eftir nema að einhver væri drepinn," sagði Guð- mundur Pálsson, lögregluþjónn á Sauðárkróki, en varla er hægt að fjalla um uppreisnarástand á ís- landi án þess að nefna Krókinn. Þar umhverfast menn reyndar á gamlárskvöld og er oft mikill hiti í leiknum. Oftast verður lögreglu- stöðin verst úti í þessum átökum og hafa oftsinnis allar rúður verið brotnar þar. Guðmundur sagði að ekki væri hægt að lýsa ástandinu, það væri í einu orði sagt skelfilegt. Mun lög- reglan nánast hafa staðið varnar- laus þegar skríllinn hópaðist að henni og hélt henni í herkví. Guð- mundur segir að fyrir nokkrum árum hefði tekist að kveða þetta niður með samstilltu átaki þannig að þar er þessi áratugahefð einnig horfin. Sigurður Már Jónsson MEÐ FULLAN BIL AF MOLOTOVKOKKTEILUM Uppreisnarmenn sáust stundum ekki fyrir og var næsta algengt að rúður væru brotnar í lögreglubíl- um og að minnsta kosti í eitt skipti munu lögregluþjóni hafa verið veittir áverkar sem reyndust varanlegir en hann tapaði sjón á öðru auga. Þá hefur hann væntanlega verið eitthvað ruglaður maðurinn sem kom með fullan bíl af molotovkokkteil- um á átakasvæðið. Náðist blessunarlega aö stöðva hann áður en honum tókst að deila þeim út til borgarskærulið- anna. Sem betur fer létu flestir sér' nægja að henda snjóboltum í lög- regluna og einstaka hetjur léku þann leik að læðast aftan að lög- reglumönnum og slá húfuna af þeim. Við því lágu sektir og þótti hin mesta hetjudáð. En hvernig skyldi það hafa verið að vera í hópi lögreglumanna? „Ég var einu sinni í gæslu fyrir ungmennafélagið og geri það aldr- ei aftur. Maður var í stórhættu. Það var kastað í okkur grjóti_ á stærð við snjóbolta og svo flugu flöskur og alls kyns rusl í okkur. Það var eins og unglingarn-( ir umhverfðust þetta eina kvöld því næsta dag féll allt í ljúfa löð og allir létu eins og ekkert hefði í skorist," sagði Kristján Einarsson tré- smiður og bæjarfulltrúi. LEIKÞÁTTUR FYRIR STÖÐ 2 Það fór ekki hjá því að þessi læti vektu mikla athygli og sögðu Selfyssingar stundum þegar víga- móðurinn rann af þeim eftir þrett ándann að þetta hefðu nú aðal-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.