Pressan - 21.02.1991, Page 3

Pressan - 21.02.1991, Page 3
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991 3 alið er að Davíð Oddsson borgarstjóri gefi stúðningsmönnum sínum ákveðið svar fyrir helgi um hvort hann bjóði sig fram í formanninn á landsfundi flokksins í byrjun mars. Nokk- uð bakslag kom í málið eftir að ljóst var að ekki næðist samkomulag við Þorstein Pálsson um að draga sig til baka, og þykja nú varla meira en helmingslíkur að til kosningar komi á milli þeirra tveggja . . . Töluverð átök eru nú innan Al- þýðubandalagsins vegna afgreiðslu á 5 milljón króna skuld Alþýðu- bandalagsfélags Reykjavíkur. ABR hefur lagt til þrí- þætta leið til að greiða upp skuldina. 1 fyrsta lagi að Sig- fúsarsjóðurinn leggi til 1 milljón, Alþýðu- bandalagið sjálft tvær til þrjár og einstaklingar innan ABR afganginn. Þetta hefur vakið upp ýmsar spurn- ingar hjá alþýðubandalagsmönnum úti á landi sem telja að ABR geti sjálft séð um sínar skuldir. Af- greiðsla þessa máls er tekin sem dæmi um nýja línu í samskiptum Ól- afs Ragnars Grímssonar og Svav- ars Gestssonar . . . að er ekki síst niðurstaða skoðanakönnunar sem birt var á Stöð 2, sem gerði stuðningsmenn Davíðs Oddssonar ákafa um framboð nú til formanns í Sjálfstæðisflokkn- um. Sem kunnugt er sýndi könnunin að um 75 prósent töldu Davíð heppilegri en Þorstein Pálsson til að leiða flokk- inn í kosningabaráttunni. Nokkuð 0? L'ORÉAL mun hafa verið þrýst á fréttastofuna að birta ekki fréttina og töluverð umræða mun hafa verið á frétta- fundi um hvort það væri við hæfi. Sigurveig Jónsdóttir fréttastjóri mun m.a. hafa verið þeirrar skoðun- ar, en hins vegar verið borin ofurliði af undirmönnum sínum ... v W æntanleg kvikmynd Krist- ínar Jóhannesdóttur, Svo á jörðu sem á himni, byggir á sannsöguleg- um atburðum sem gerðust er franska skipið Pourquoi pas fórst hér við land árið 1936. Áætlaður kostnaður við myndina er 117 millj- ónir króna og nemur hugsanlegur framleiðslustyrkur frá Norðurlönd- um um 80 milljónum króna. Af við- tölum við Kristínu hafa menn þóst skilja, að hugsanlega muni Frakkar einnig taka þátt í kostnaði við myndina . . . v W íðast hvar á landinu er búið að kjósa fulltrúa á landsfund Sjálf- stæðisflokksins, en þó ekki í Reykja- ------vík. Stuðningsmenn I Davíðs Oddssonar I og Þorsteins Páls- sonar leggja því mikið upp úr að hafa H áhrifamenn úr full- ’’Æ\ ' trúaráðinu í Reykja- ------ÍP-x vík sem næst sér, því þeir búa yfir mestri þekkingu á flokksskránni. Tveir fyrrum fram- kvæmdastjórar fulltrúaráðsins eru sagðir í stuðningsliði Davíðs, þeir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son og Arni Sigfússon . . . A siðasta fundi útvarpsráðs gagnrýndi Markús Á. Einarsson, fulltrúi framsóknarmanna, enn á ný að Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, frambjóðandi Kvennalistans, skyldi vera að koma fram í ríkisfjölmiðl- inum. Það sem fór fyrir brjóstið á Mark- úsi var að Ingibjörg skyldi vera látin gefa umsögn í þættinum Við leik og störf. Á sama fundi gagnrýndi út- varpsstjóri það að rætt hefði verið við Ossur Skarphéðinsson, fram- bjóðanda Alþýðuf lokksins, þrisvar á síðustu viku . . . D ■ máðinn hefur verið nýr fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, Elín- borg Stefánsdóttir. Hún starfaði síðast hjá Rauða krossi íslands, en þar áður hjá Sjónvarpinu við inn- kaup á erlendu sjónvarpsefni.. . Afleiðingar óveðursins 3. febrúar 1991. Fullkomin óveðurstrygging er ein af fjölmörgum tryggingum sem allir njóta í F/plús Okkur hjá Vátryggingafélagi íslands þykir vænt um að geta hjálpað á annað þúsund viðskiptavinum sem urðu fyrir tjóni í nýafstöðnu óveðri. Okkur þykir hins vegar leitt að hafa orðið að tilkynna alltof mörgum viðskipta- vinum okkar að þeir væru því miður ótryggðir fyrir tjóni af þessu tagi. F/plús - trygging VÍS er samsett heildartrygging sem tekur á öllum nauðsynlegum tryggingum fjölskyldu- fólks og veitir að auki 15-30% afslátt af iðgjöldum. Við hvetjum viðskiptavini okkar - sem þegar hafa fengið heimsend gögn um þessa nýju tryggingu - og lands- menn alla til þess að koma tryggingum sínum í örugga höfn. F/plús er eina tryggingin sinnar tegundar á landinu. Kynntu þér yfirburði hennar með einu símtali og heils- aðu óveðurstjónum eins og öðrum óhöppum með full- kominni tryggingavemd! • Allar nauðsynlegar tryggingar á einum stað • Einn gjalddagi • Sveigjanlegur greiðslumáti • Eitt skírteini - fullkomin yfirsýn * • 15-30% afsláttur af iðgjöldum í X c- • •• og eitt símtal *91605060* 5 sem gerir F/plús að staðreynd! ;

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.