Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 6

Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 6
V FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991 PASKAFERÐ Flug, bí/l og lúxushús Í HOSTENBERG VIÐ SAARBURG um páska: Verö frá kr. 39.600 (4 fullorðnir i húsi og bill) 5 dagar/4 nætur Aukadagur: kr. 450 á mann íbúðarhúsin í Hostenberg búa yfir hinu róm- aða þýska yfirbragði, eru rúmgóð, hlý og vist- leg. í húsunum er stór dagstofa með svölum og arni, nýtísku eldhús með öllu tilheyrandi, svefnherbergi (1-3, eftir húsagerð), snyrtiher- bergi og bað. Hægt er að fá hús með sauna og Ijósalömpum. Einnig er hægt að fá stúdíó- og 2-3 herbergja íbúðir. Frá Hostenberg er ii'5- k ■amm. aðeins u.þ.b. 20 mín. akstur til Trier sem er fjölda (slendinga kunn. Þar er að finna frábær- ar verslanir og hagstætt verð. Innifalið í verði er: Flug, Keflavík-Luxem- bourg-Keflavík, bíll með ótakmörkuðum akstri, kaskótryggingu og söluskatti, hús/íbúð. i w u 'mr 4 llnfnurstnvtJ 2 ■ - Sími fí2-;m-w/ I Ráðstefna um skattamál að Borgartúni 6, föstudaginn 22. febrúar SKATTBYRÐI Á ÍSLANDI OG í OECD-RÍKJUM Föstudaginn 22. febrúar boðar fjármálaráðuneytið til ráðstefnu um skatt- byrði á íslandi og í ríkjum OECD að Borgartúni 6 í Reykjavík. Sérstakur gestur ráðstefnunnar er hagfræðingurinn John Nprregárd sem starfar í skattadeild Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París, OECD. Hann fjallar m.a. um skattamat og samanburð milli ríkja í OECD. Dagskrá: 13:30 Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra setur ráðstefnuna. 13:45 John Nprregárd hagfræðingur hjá OECD: Skattbyrðismœlingar OECD: aðferðir og niðurstöður. Fyrirspurnir. 14:35 Bolli Þór Bollason skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu: Mœling skattbyrði á íslandi samkvœmt staðli OECD. Fyrirspurnir. John Narregárd 15:00 Kaffihlé. 15:20 Hvers vegna mcelist skattbyrði á íslandi lœgri en í meirihluta aðildarlanda OECD? Ásgeir Daníelsson hagfræðingur, Þjóðhagsstofnun. Hannes Sigurösson hagfræðingur Vinnuveitendasambands íslands. Már Guömundsson efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra. Fyrirspurnir. 16:20 Almennar umræður og fyrirspurnir. 17:00 Ráðstefnuslit. Fundarstjóri: Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins. John Norregárd flytur mál sitt á ensku. Fyrirlestur hans liggur frammi á ráðstefnunni. Allir áhugamenn velkomnir. FJARMALARAÐUNEYTIÐ Már Gnönumdsson Lesbísk fóstra í súpervinnu! Uppsögn mín snýst ekki um laun. Ég hef eingöngu óskað eftir að fá þá klukkutíma greidda, sem ég vinn á leikskólanum. Hins vegar hef ég frá upphafi beðið um vinnufrið — án árangurs. Uppeldisstefna leikskólans hefur sýnt sig og sannað. Fagstarfið hér nýtur álits fjölmargra aðila innan- lands og utan. Börnin eru glöð með sinn leikskóla. Foreldrar hafa verið ánægðir og stutt við bakið á okkur. Hér er nóg af fóstrum. Enginn leik- skóli landsins hefur tekið fleiri fóstrunema en við á þessum vetri. Leikskólinn hefur reynst ódýrari í rekstri en gengur og gerist. Vinnu- form mitt var umsamið. Yfirmenn Hafnarfjarðar hafa sjálfir staðfest yf- irvinnu mína. Hér hefur allt verið innan markanna. Hvers vegna hef- ur þá verið reynt að slá ryki í augu fólks með röngum staðhæfingum? Ég sé aðeins eina skýringu. Per- sónan ég virðist trufla ákveðna að- ilja meira en tali tekur. Ég er lesbía og hef þ.a.l. þurft að hlusta á dylgjur um öfuguggastarfsemi leikskólans og um sjálfa mig frá fyrsta degi í starfi hér. Þegar of langt var gengið og að ég ákvað að segja starfi mínu lausu var valin sú ódýra leið að kalla þessar ofsóknir á hendur mér launa- kröfur. Ég sé fulla ástæðu til að benda hafnfirskum bæjaryfirvöld- um svo og öðrum, sem þátt hafa tek- ið í þessum miður skemmtilega leik, á nokkrar staðreyndir lífsins. Sam- kynhneigð mín er ekki fötlun í starfi og lesbískar fóstrur eru jafnfærar öðrum um að stjórna leikskóla. Börn bíða ekki tjón á sál né líkama, þótt ég vinni með þeim. Ég kveiki ekki í húsum. Ég ræðst ekki á fólk í almennum misþyrmingaaðgerðum — hvorki börn né fullorðna. Að auki vil ég benda á nokkrar staðreyndir varðandi umfjöllun PRESSUNNAR um það, sem á að nota til að afsaka brottför mína. Að gefnu tilefni skal tekið fram að ég svaraði spurningu blm. um hvort ég ynni 120—160 eða 170 klst. í yfir- vinnu neitandi og eins sá ég enga ástæðu til að taka þátt í þeim skrípa- leik að gera launamál mín að blóra- böggli fyrir Hafnarfjarðarbæ. Um annað var ég ekki spurð. Ég skrifa á mig þá yfirvinnu sem ég vinn og hefur bæjaryfirvöldum verið fullkunnugt um það, enda hafa þau staðfest launaskýrslur. Þessi vinnutilhögun hefur sparað Hafnarfjarðarbæ umtalsverðar fjár- hæðir — ég vinn m.a. fast með barnahóp, sem sparar ráðningu á starfsmanni. Um þetta fyrirkomulag var samið á fundi með m.a. starfs- mannastjóra, dagvistarfulltrúa og launafulltrúa. Á móti skyldi koma að rekstur hér yrði ekki dýrari en annars staðar. Skv. upplýsingum dagvistarfulltrúa er heildarlauna- kostnaður hér í meðallagi miðað við aðra leikskóla. Engin athuga- semd hefur verið gerð við þann leik- skóla, sem hafði mesta yfirvinnu og fór þar 170% fram úr áætlun. Að beiðni Jónu Ingibjargar Jóns- dóttur, ritstjóra „Bleikt & blátt" — tímarits um kynfræðslu, skrifaði ég grein um kynhlutverk barna og kynjaskiptingu. Um sama efni hef ég fjallað víða, bæði í ræðu og riti s.s. í Húsfreyjunni, útvarpi og fyrir- lestrum. Á fjölmennum foreldra- fundum í nóvember sl. íeitaði ég eft- ir leyfi foreldra til að nota myndir héðan með fyrirlestrum og greinum þ.á m. í Bl.&bl. Það leyfi var veitt. Starfsmannastjóri Hafnarfjarðar- bæjar samdi upphaflega við mig um bílastyrk, þar eð ég er búsett í Reykjavík, alls milli 7 og 8 þús. kr. á mánuði. Umræddur bílastyrkur af- numinn án skýringa. Sami aðili samdi vð mig um óunna yfir- vinnutíma í stað bílastyrks. Nú hefur það einnig verið afnumið án skýringa. Sem forstöðumaður eins stærsta leikskóla Hafnarfjarðar hef ég fasta yfirvinnu, sem nemur 30 klst. á mánuði. Á álagstímum dugar sá tímafjöldi rétt til þess að mæta ónæði í frítíma mínum. Á árinu 1990 vann ég síðan 68 klst. á mán- uði að meðaltali umfram 8. klst. vinnudag. Sem yfirmaður uppeldis- starfsins vinn ég nokkra klst. á dag með starfsfólki og börnum — enda get ég hvorki stjórnað nú þróað uppeldisstarfið með fjarstýringu af skrifstofu. Leikskólinn er opinn 10 klst. á dag, sem skýrir hluta vinn- unnar og að auki vinn ég pappírs- vinnu, vistgjaldauppgjör, skipulags- vinnu, fundi o.s.frv. eftir lokun, ef starfsemi leikskólans krefst þess. Mánaðarlaun undirritaðrar hafa því kostað Hafnarfjarðarbæ 157 þús. krónur — útborgað um 117 þús. eftir að tíundir hafa verið greiddar í formi svonefndra skatta eða um 55 þús. kr. á mánuði umfram það að greiða mér fyrir vinnu milli kl. 8 og 16 á skrifstofu. Vona ég að þessar upplýsingar verði vel þegnar af áhugafólki um launamál mín. í janúar var yfirvinnulaunum mínum frá 1. desember haldið eftir í 3 vikur. Þrátt fyrir það vann ég á venjulegan hátt í janúar eða skv. þörfum leikskólans. Tekið skal fram að ég hef ekki fengið þá vinnu greidda, en mun vitanlega inn- heimta vinnulaun mín. Veikindadagar mínir frá upphafi í Hafnarfirði eru 14 talsins á einu og hálfu ári. Blm. hafði ekki fyrir að spyrja mig um fjölda vinnudaga í des., sem voru 15 og að frádregnum bílastyrk og fastri yfirvinnu, sem einnig er greidd í veikindum, verða 23 klst. að 5,6 klst. Hafnarfjarðarbær afhenti undir- ritaðri nefndarlaun upp á 48 þús. kr. fyrir að sitja 15 stutta fundi, sem allir voru haldnir í vinnutíma, þegar ég og aðrir nefndarmenn voru á laun- um. Ég þigg ekki slíka sposlu, held- ur fer fram á laun fyrir unna og um- samda vinnu. 20. febrúar 1991 Margrét Pála Ólafsdóttir. Fyrirsögn er Margrétar Pálu. Arshdtíðir eru okkarfag! Þríréttaöur árshátíðarmatur kr. 2.700,- Dansleikur að hætti Óperukjallarans fyrir smærri fyrirtæki og hópa. _ x // 7 \ v* x___ (p)pc 7 'uk’/c dlí il 7//// Sími18833 • • - Oðnu'ísi studur

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.