Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 25

Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 25
tnai m'iaoíi • C' «HPé**? vTi’nAni ÍTVMM FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991 Það hefur stundum verið talað um að Eysteinn hafi verið rekinn með amerísku aðferðinni en þegar hann kom til vinnu sinnar var hann stöðv- aður af öryggisverði og honum ekk'i hleypt inn á skrifstofuna. Þetta var hin svokallaða „skipt um skrá“ að- ferð sem þykir víst nauðsynleg í sumum stærri fyrirtækjum. Eysteinn sagðist í samtali við PRESSUNA ekki treysta sér til að fjalla um brottreksturinn en það kom fram hjá Eysteini að hann taldi enn ekki hafa komið fram nein rök fyrir honum. Taldi hann að brott- reksturinn ætti sér helst sálfræðileg- ar orsakjr — væntanlega hjá Gud- jóni B. Ólafssyni, forstjóra SÍS, sem rak Eystein. Nú er reyndar komin upp sú staða að topparnir hjá SÍS vilja reka Guðjón þannig að enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Brottrekstur Eysteins heltók ís- lenska dægurmálaumræðu og stærsta fyrirtæki landsins Samband íslenskra samvinnufélaga logaði í innanlandsófriði. Oft á tíðum var erfitt að botna í umræðunni sem sýndi að tíðarandinn var ekki tilbú- inn að meðtaka það að áberandi stjórnandi væri rekinn. Tíðarandinn skildi hins vegar mætavel árstíða- bundinn brottrekstur fiskverkunar- kvenna sem gerðist hinum megin á valdapíramída SÍS. TÍÐARANDINN AUÐVELDAR FÓLKI AÐ MEÐTAKA BROTTREKSTUR Þrátt fyrir að erfitt sé að finna eitt- hvað séríslenskt við brottrekstur þá er ljóst að tíðarandinn hefur þar nokkur áhrif. Að sögn Oddrúnar Kristjánsdóttur, hjá ráðningaskrif- stofunni Liðsauka, þá má greina tíð- arandaáhrif í því að ungt fólk tekur brottrekstur ekki eins nærri sér og eldra fólk. Það skapast auðvitað að nokkru leyti af því að það sér meiri möguleika á nýju starfi. En einnig skiptir máli að íslenskt þjóðfélag er að verða margþættara og hreyfan- legra. Því má búast við því að það verði minna mál að reka fólk. En guð forði okkur frá því að það verði tískufyrirbæri að reka fólk! Ef tekið er dæmi af bandarísku þjóðfélagi þá er það nánast hluti af starfsferli hvers einstaklings að vera rekinn einhvern tíma á ævinni. Þar eru gefnar út handbækur um það hvernig eigi að reka fólk og hvernig eigi að meðtaka brottrekstur. Fólk fer jafnvel á námskeið þar um. Þar eru líka fyrirtæki af þeirri stærðar- gráðu að ísland gæti næstum því virkað sem deild þar í. Það gefur augaleið að brottrekstur í slíkum fyrirtækjum verður algengari og ópersónulegri en í minni fyrirtækj- um eins og finnast hér á landi. BRENNDU ENGAR BRÝR Ef við setjum okkur í ráðlegginga- Eysteinn Helgason: Frægasti brott- reksturinn. stellingar þá er ein gullvæg regla: Brenndu engar brýr að baki þér. Ef yfirmaðurinn er búinn að ákveða að láta þig fjúka skaltu reyna að gera það besta úr því. Þetta er kannski bara heilbrigð skynsemi en það er einmitt það sem þú þarft mest á að halda fyrst eftir að þú færð tíðindin. Það er mjög mikilvægt að reyna að semja um starfslokin. Ef þú tekur þessu ,,af skynsemi" þá verður samningsstaða þín betri. Það er til dæmis sjálfsagt að herja út sem mest af meðmælum sem auðveldar þér að finna aðra vinnu. Einnig má reyna að semja um lengri uppsagn- arfrest. Sumir hafa jafnvel náð að nýta sér uppsögnina til að komast í nám eins og Sturla Kristjánsson gerði en hann var aðalleikarinn í „fræðslustjóramálinu" fyrir nokkr- um árum. Þetta er reyndar leið sem skólamenn hafa verið sérlega út- sjónarsamir við að nýta sér. Þá eru sumir sérlega heppnir í kringum uppsagnir en það eru reyndar þeir sem taka þátt í svoköll- uðum „fínum“ uppsögnum. Með öðrum orðum þeir eru reknir upp á við. Frægasta og nýjasta dæmið um þetta er brottrekstur Ragnars „ál- skalla" Halldórssonar sem var sett- ur í stöðu stjórnarformanns hjá ísal. Auðvitað er sjálfsagt fyrir fólk að leita réttar síns ef rangt er staðið að uppsögninni en það er yfirleitt regla að fyrirtæki fari betur út úr mála- ferlum en einstaklingar. Svo getur vel verið að þú reynir að fá vinnu hjá sama atvinnurekanda einhvern tíma seinna. Sigurður Már Jónsson 25 að er ekki á hverjum degi sem íslenskur kvikmyndaleikstjóri fær 80 milljóna króna loforð upp í hend- urnar. Það gerðist hins vegar þegar þriggja manna ís- lensk dómnefnd valdi handrit Krist- ínar Jóhannes- dóttur, Svo á jörðu sem á himni, sem framlag Islands til Norræna kvik- myndaverkefnisins 1991. í fréttum fjölmiðla af úthlutuninni var farið leynt með nöfn dómnefndarmanna, en þeir voru Árni Þórarinsson rit- stjóri Mannlífs, tilefndur af hálfu Fé- lags kvikmyndagerðarmanna, Friðrik Rafnsson dagskrárgerðar- maður, tilnefndar af Félagi kvik- myndaleikstjóra, og Signý Páls- dóttir leikhússtjóri, tilnefnd af Sam- bandi kvikmyndaframleiðenda. Ennfremur virtist feimnismál við út- hlutunina, að enn er ekki fullvíst að stjórnvöld standi við loforð Svavars Gestssonar menntamálaráðherra um framlag íslands til verkefnisins, en framganga málsins veltur á því... s ^Wakamálagetraun ríkisútvarps- ins þótti bara heppnast nokkuð vel miðað við að hún krafðist tölu- verðra heilabrota af útvarpshlust- endum. Um þúsund bréf komu inn og er nú búið að ákveða að endur- taka leikinn 25. febrúar. Það mun vera Þorsteinn J. Vilhjálmsson sem átti frumkvæði að þessum þætti... F rægasta hljómsveit íslands, Sykurmolarnir, fer í hljóðver innan skamms að byrjar upptökur á nýrri breiðskífu. Á sama tíma ýerður Björk Guðmundsdóttir söngkona hljóm- sveitarinnar líka á fullu að kynna lög sem hún syngur með bresku House hljómsveitinni 808 State. Lítil plata með Björku og 808 State kemur út í Bretlandi í mars og er m.a. ákveðið að hún komi fram á tónleikum með sveitinni í' Manchester í byrjun mars... v W arnarliðið er að yfirgefa Stokksnes. Meðat þess sem þá verð- ur ekki not fyrir eru tvö stór loft- netsmöstur. Fjarlægðin milli mastr- anna dugar til að hægt sé að nota þau fyrir langbylgjusendingar. Mörgum þykir að með Stokksness- möstrunum sé fundin ódýrasta lausnin á þeim vanda sem skapaðist þegar mastrið á Vatnsenda fauk um koll... ^RflLkil óánægja er nú meðal auglýsingastofa vegna boðaðrar gjaldskrárhækkunar á auglýsinga- tíma Stövar 2. Vegna þess hefur ekki verið hægt að fá fast verð um sinn. Þegar Baldvin Jónsson kom til starfa á Stöð 2 lét hann verða sitt fyrsta verk að lækka gjaldskrána. Var það meðal annars til að færa hana nær raunverulegu verði og losna við afslætti. Margir auglýs- ingamenn telja það mistök hjá Bald- vini því fyrir vikið hafi Stöð 2 misst af töluverðum tekjum í jólatörn- inni...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.