Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 7

Pressan - 21.02.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991 7 HEFUR AQKIÐI EIGNIB SINAR UM HALFAH Hörður Sigurgestsson er áhrifamaöur innan Sjálfstæðisflokksins. Hér er hann að ræða við Þorstein Pálsson, formann flokksins, á aðalfundi vinnuveitenda. Hörður ásamt eiginkonu sinni, Áslaugu Þorbjörgu Ottesen. MILIJON AMANUBI Hördur Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, á nú jafnviröi um 65 milljóna króna í hlutabréfum í Eimskip og Flugleiðum. Þetta jafngildir því ad Hörður hafi eignast hálfa milljón í þessum fyrirtækjum á mánuði frá því hann kom til starfa sem for- stjóri Eimskips. Skildinganes 1. Brunabótamat þessa húss Harðar Sigurgestssonar er 14,8 milljónir. Áætlað söluverð þess er hátt í 25 til 30 milljónir. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, er sjálfsagt í einu best launaða starfi á íslandi. Miðað við skattframtöl hans eru tekjur hans um 900 þúsund á mánuði eða 10,8 milljónir á ári. Það eru tíföld meðallaun almennra laun- þega. En þetta segir ekki alla söguna um stöðu Harðar. Frá því hann varð forstjóri Eimskips hefur hann eignast mik- ið magn af hlutabréfum í Eimskip og eins í Flugleiðum. Markaðsverð þessara bréfa er í dag um 64 milljónir króna. Þó eingöngu sé miðað við þessi bréf hafa eignir Harðar því vaxið um 500 þúsund á mánuði þann tíma sem hann hefur verið forstjóri Eimskips. Hörður Sigurgestsson er orðinn meðal ríkustu manna á íslandi þrátt fyrir að hann sé ekki af ríku fólki kominn. Hann hefur heldur ekki auðgast með eigin atvinnurekstri eins og lang stærsti hluti þeirra sem skipa þann flokk. Hann hefur alla tíð verið launþegi. 64 MILLJÓNIR í HLUTABRÉFUM Hörður Sigurgestsson var ráðinn forstjóri Eimskips 1. ágúst 1979. Hann hefur setið í stjórn Flugleiða frá 1984 og verið varaformaður stjórnarinnar frá 1987. Hörður á hlutabréf í Eimskip að nafnvirði 10 milljónir og 289 þús- und krónur. Gengi þessara bréfa er í dag 5,64. Raunvirði þessarar eign- ar Harðar er því rétt rúmlega 58 milljónir. Hlutbréf Harðar í Flugleiðum eru skráð á 2,5 milljónir að nafnvirði. Gengi þeirra er 2,43. Raunvirði þessarar eignar er því 6,1 milljón króna. Samanlögð hlutabréfaeign Harð- ar í þessum tveimur fyrirtækjum sem hann gegnir trúnaðarstörfum fyrir er því 64 milljónir og 100 þús- und krónur. Ef miðað er við starfstíma Harðar sem forstjóri Eimskips jafngildir þessi eign því að hann hafi eignast rúmlega 460 þúsund krónur í fyrir- tækjunum á hverjum mánuði frá því hann kom til starfa. HREIN EIGN UPP Á UM 90 MILLJÓNIR Hörður Sigurgestsson er ekki skráður fyrir neinum bíl. Hann ekur um á bifreið frá fyrirtækinu, eins og svo margir menn í ábyrgðarstöðum. Hörður er hins vegar skráður eig- andi einbýlishúss að Skildinganesi 1. Brunabótamat þess húss er um 14,8 milljónir króna. Raunvirði þess er hins vegar miklu meira eða á bil- inu 25 til 30 milljónir. Þegar hlutabréfaeign Harðar hef- ur verið iögð við markaðsverð húss- ins eru samanlagðar eignir hans í dag um 90 til 95 milijónir króna. Þessi mikla eign setur Hörð í al- gjöran sérflokk meðal launþega. Þeir íslendingar sem eiga viðlíka eignir eru allir annað hvort í eigin atvinnurekstri eða hafa erft umtals- verðar eignir frá foreldrum sínum. „SELF MADE MAN“ Hörður er það sem Ameríkanar kalla „self made man“. Hann hefur unnið sig upp, eins og það heitir á ís- landi. Hörður er sonur hjónanna Sigur- gests Guðjónssonar, bifvélavirkja og tjónaskoðunarmanns, og konu hans, Vigdísar Hansdóttur. Hann ólst upp í Litla Skerjafirðin- um, hverfi sem varð til þegar Bretar byggðu upp Reykjavíkurflugvöll. Uppúr stríðslokum flutti Flugfélag íslands í hverfið með bækistöðvar sínar. Hörður byrjaði mjög ungur að fylgjast með því sem þar fór fram og varð handgenginn mönnum sem þar unnu. Einhverju sinni birtist mynd af honum í einu dagblaðanna kornungum að afferma flugvél Flugfélagsins. Hugur Harðar virðist því snemma hafa beinst að samgöngufyrirtækj- um. HÓTELSTJÓRI Á HLÍÐARVATNI Hörður fór í Verslunarskólann þar sem hann sat í bekk með drengjum sem síðar urðu áberandi í viðskipta- lífinu, meðal annars Sveini R. Eyj- ólfssyni, stjórnarformanni Frjálsrar fjölmiðlunar, útgefanda DV. Hann fór síðan í viðskiptafræði við Háskóla íslands og síðan út til framhaldsnáms í Wharton School University of Pennsylvania. Hann var formaður stúdentaráðs Háskóla íslands og þótti þar úr- ræðagóður í peningamálum, efldi meðal annars mjög hótelrekstur á Görðum. Hann var einnig í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna á þessum árum. Á námsárunum var hann einnig hótelstjóri mjög nýstárlegs hótels. Það var Hótel Víkingur sem rekið var um borð í skipi á Hlíðarvatni á Snæfellsnesi. Það dæmi gekk hins vegar ekki upp og endaði ævintýrið með því að skipinu var dröslað suð- ur til Hafnarfjarðar þar sem það var notað sem bólvirki fyrir smábáta. BOÐIÐ STARF HJÁ HAGKAUPI Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR bauð Pálmi Jónsson í Hag- kaupi Herði starf sem framkvæmda- stjóri fyrirtækisins á meðan Hörður var í námi í Bandaríkjunum. Hvort sem það var vegna þess að Hörður hafi ekki haft mikla trú á uppgangi Hagkaups eða ekki viljað snúa sér að verslunarrekstri, þá hafnaði Hörður boðinu. Að námi loknu, 1968, réðst Hörð- ur til fjárlaga- og hagsýslustofnunar og varð deildarstjóri þar árið 1972. Hann varð síðan framkvæmdastjóri fjármálasviðs Flugleiða árið 1974 og gegndi því starfi þangað til hann varð forstjóri Eimskips í ágúst 1979. Hörður hefur gegnt ýsmum trún- arastörfum öðrum. Hann hefur átt sæti í stjórnum Hótels Esju, Stjórn- unarfélagsins, Arnarflugs, Verslun- arráðsins, Vinnuveitendasam- bandsins, Póistækni og Alþjóða- verslunarráðsins. Hann er auk þess mikill áhrifamaður innan Sjálfstæð- isflokksins. GREINDUR OG KLÁR Hörður Sigurgestsson þykir með afbrigðum greindur maður og góð- ur stjórnandi síns fyrirtækis. Hann er hrjúfur á yfirborðinu en traustur undir niðri. y Um hæfileika Harðar sem stjórb- anda vitnar vöxtur og viðgangur Eimskips undir hans stjórn. En eins og sjá má af miklum eignum Harðar í hlutabréfum í því fyrirtæki þá hef- ur hann haft mikinn fjárhagslegan ábata af þeim viðgangi. Sömu sögu er að segja af Flugieiðum, sem er að verða að nokkurs konar dótturfyrir- tæki Eimskips undir stjórn Harðar. Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.