Pressan - 21.02.1991, Page 14
14
Útgefandi:
Blað hf.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Ritstjórar:
Gunnar Smári Egilsson,
Kristján Þorvaldsson
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar
Hilmarsson
Ritstjórn, skrifstofur og aug-
iýsingar: Hverfisgötu 8-10,
sími 62 13 13. Faxnúmer:
62 70 19. Eftir lokun skipti-
borðs: Ritstjórn 62 13 91,
dreifing 62 13 95, tæknideild
62 00 55. Áskriftargjald 550
kr. á mánuði. Verð í lausasölu
170 kr. eintakið.
Radíó-Moskva
í tvígang hefur auglýsinga-
stjóri Ríkisútvarpsins neitað að
birta auglýsingar um efni PRESS-
UNNAR og fengið til þess stuðn-
ings útvarpsstjóra og útvarps-
ráðs. Þessir forystumenn Ríkisút-
varpsins hafa borið því við að
auglýsingarnar brjóti í bága við
reglur útvarpsins og að efni
PRESSUNNAR sem auglýsa átti
sé ósatt og ósiðlegt.
Það væri hart að sitja undir
þessu frá öðrum en útvarpsráði.
Þetta ráð hefur hins vegar fyrir
löngu orðið aðhlátursefni öllu
venjulegu fólki með dellu-sam-
þykktum sínum og ofsóknum á
hendur bestu starfsmönnum út-
varpsins.
En þó samþykktir ráðsins geti
oft á tiðum verið til skemmtunar
þá er óþolandi að þetta fólk skuli
eftir eigin geðþótta fá að stýra
fjölmiðli sem hefur verið gerður
öflugur og stór fyrir almannafé.
Það tekur síðan út yfir allan
þjófabálk þegar þetta fólk tekur
að sér að kveða upp úr um hvað
sé satt og logið í öðrum fjölmiðl-
um og hvað sé siðlegt og hvað
ekki.
Þá er kominn tími til að taka
þær hundruðir milljóna sem
þessu fólki hafa verið skammtað-
ar af almannafé og segja þvi að
predika einhvers staðar á eigin
kostnað. Það fengi þetta fólk
sjálfsagt til að þagna og snúa sér
að eigin ranni.
FllVIMTUDAGUR PRESSAN 21. FEBRÚAR 1991
FJÖLMIÐLAR
*
Ovœgin umfjöllun um persónur
Ég fæ oft að heyra að
PRESSAN sé óvægin við per-
sónur.
Af því tilefni vil ég taka
fram að þegar PRESSAN fjali-
ar um persónur er það yfir-
leitt gert í viðtalsformi. Það
sem fram kemur um persón-
una er með hennar eigin orð-
um. Ef það er óvægið er það
varla sök PRESSUNNAR
heldur viðmælenda hennar.
PRESSAN fjallar hins vegar
oft um störf og hlutverk ein-
staklinga á gagnrýninn hátt,
einkum ef viðkomandi gegn-
ir opinberu starfi eða verk
hans hafa áhrif á stóran hóp
manna.
Þessu tvennu, persónum
og störfum einstaklinga, má
ekki rugla saman. Þó það
komi fram í PRESSUNNl að
ákveðinn einstaklingur hafi
staðið sig illa í starfi eða jafn-
vel misnotað aðstöðu sína
segir það ekki ýkja mikið um
persónu viðkomandi.
Sá getur eftir sem áður ver-
ið hjartahlýr maður og elsk-
aður af sínum nánustu. Slíkt
segir meira um persónu hans
en hvernig hann hefur valdið
starfi sínu.
En ef hann hefur notað að-
stöðu sína og starf til þess að
svíkja og pretta okkur hin
segir það okkur hins vegar
ákveðna sögu af því þjóðfé-
lagi sem við lifum í og því að-
haldsleysi sem það býr mönn-
um sem eiga að valda áhrifa-
miklu starfi. Og jafnvel vönd-
uðustu menn geta látið að-
haldsleysi freista sín til
vondra verka.
Þó einhverjir lesendur
PRESSUNNAR hafi meiri
áhuga á þersónunum í frétt-
um blaðsins en fréttinni
sjálfri mun PRESSAN ekki
láta það aftra sér frá því að
halda áfram að fjalla á gagn-
rýninn hátt um störf manna í
áhrifastöðum.
Gunnar Smári Egilsson
Prince Charies
„Okkur þykir þessi við*
brögð Sovétmanna
oþarflega skjót en það
er meira persónuleg
skoðun/#
SPARNAÐUR
EYÐSLUKLÓ
AÐ HANDAN
Yoko Ono sagöi aö John Lennon
heföi birst sér í draumi og sagt henni,
aö kaupa demantshálsmen fyrir
fimmtíu ára afmælið sitt.
Fjárkúgun vikunnar
„Þad eru eftir allt saman
viö sem eigum peningana og
menn á þingi."
Júlíus Solnes um nauösyn þess
fyrir smærri flokkana að taka þé
Borgaraflokksmenn með í fram-
boð.
DÖKKA
HLIÐIN
Á SÓLINNI
„Hver snjólaus
vika sem líöur er
stóráfall fyrir
okkur."
ívar Sigmundsson í
Hlíöarfjalli viö Akureyri.
Sádi-Arabar lokudu síman-
um hjá Idi Amin, fyrrverandi
einrœdisherra Uganda, um
daginn þegar mánadarreikn-
ingurinn var kominn í 600
þúsund krónur.
HROLLVEKJA
VIKUNNAR
Haukur Halldorsson,
formaöur Stéttarsam-
bands bænda, segir
tillögur sjö-
manna-nefndarinnar
um úrbætur í sauðfjár-
framleiðslu raunhæfar
og asættanlegar.
Játningar
Eina list kann Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra öðrum betur. Hún er
list játningarinnar. í hvert
skipti sem hann er staðinn að
því að hafa haft rangt fyrir sér
eða verða tvísaga — og það
er ósjaldan — kemur hann
fram í sjónvarpi, horfir ein-
lægum augum framan í
áhorfendur og játar yfirsjónir
sínar. Og fólk kinkar kolli
heima í stofum sínum og
hugsar með sjálfu sér: Hann
er breyskur eins og við hin.
Hann er ekki dauð og köld
reiknivél eins og aðrir stjórn-
málamenn.
Steingrímur Hermannsson
slær tvær flugur í einu höggi
með hinum sífelldu játning-
um sínum. Hann fullnægir
annars vegar djúpri sálfræði-
legri þörf lýðsins fyrir vitn-
eskju um það, að ráðherrar
landsins og aðrir fyrirmenn
séu sér ekki fremri siðferðis-
lega. Hins vegar bjargar hann
sér út úr vandræðum, sem'
hann kemur sér í með blygð-
unarlausri hentistefnu sinni
og sérgæsku.
Dæmin eru mýmörg. Stein-
grímur kom fram á sérstök-
um blaðamannafundi, sem
var haldinn í tilefni útkomu
bókar Mikaels Gorbatsjovs á
íslensku. Hann lýsti því líka
yfir í sjónvarpsþætti, að sér
hefði litist betur á Gorbatsjov
en Reagan á Reykjavíkur-
fundi þeirra forðum. Nú segir
hann aðeins, að sér hafi orðið
á mistök. Svipaða sögu er að
segja af viðskiptum hans við
Yasser Arafat, sem er auðvit-
að sami hryðjuverkamaður-
inn nú og hann hefur alltaf
verið.
Steingrímur var forsætis-
ráðherra í samstjórn Sjálf-
stæðisflokks og' Framsóknar-
flokks 1983—1987. Sú stjórn
fylgdi frívaxtastefnu með
þeim afleiðingum, að vextir
fóru upp í það, sem menn
voru tilbúnir að greiða sjálfir.
Steingrímur bar jafnmikla
ábyrgð á þessari frívaxta-
stefnu og aðrir ráðherrar
stjórnarinnar. Nú segir hann,
að sér hafi orðið á mistök.
Sama stjórn fylgdi fast-
gengisstefnu með þeim af-
leiðingum, að mörg hinna
óhagkvæmari útflutningsfyr-
irtækja sáu fram á að þurfa að
hætta rekstri (sem hefði raun-
ar komð sér vel, enda er
betra að hætta mistökum en
halda þeim áfram). Stein-
grímur bar vitaskuld fulla
ábyrgð á þeirri stefnu. Nú
segir hann, að hún hafi verið
óskynsamleg.
Steingrímur Hermannsson
í of háum stóli
_ Það eru menn á borð við
Ola Þ. Guðbjartsson í öllum
flokkum. Þeim er hins vegar
ekki hleypt á þing og enn síð-
ur í ráðherrastóla.
Óli er einn af þessum
mönnum sem fá fjórða sætið
á framboðslista eftir tuttugu
og fimm ára erfiði fyrir frama
sínum innan flokksins. Það er
ef hann býr í kjördæmi þar
sem víst er að flokkurinn nær
ekki nema einum eða tveim-
ur mönnum.
Þetta er að sjálfsögðu sorg-
legt þar sem margir þessara
manna, þar á meðal Oli, hafa
hlindan metnað. Ef þessi
metnaður þeirra mundi ekki
skila sér í mikilli vinnu fyrir
flokkinn og þá sem líklegri
eru til frama innan hans, yrði
sjálfsagt einhver til að benda
er maður, sem flýr alla
ábyrgð á gerðum sínum,
hann er tækifærissinni með
stáltaugar. Hann er ekki skip-
stjóri, heldur skipbrotsmað-
ur, sem kann að halda sér á
floti.
En er ekki kominn tími til,
að fleiri geri játningar en
Steingrímur Hermannsson?
Er ekki kominn tími til, að
fleiri viðurkenni mistök sín?
Við ættum öll að játa fyrir
sjálfum okkur og öðrum, að
okkur hafi einmitt orðið á
mikil mistök með því að lyfta
Steingrími Hermannssyni
upp í sæti forsætisráðherra.
Höfundur er lektor í stjórn-
málafræði í Félagsvísindadeild.
þeim á að leita annars staðar
fyrir sér. En einmitt svona
geta stjórnmálaflokkar verið
miskunnarlausir. Innan
þeirra er herskari manna sem
mun aldrei sækja þangað
annað en vonbrigði með eig-
in frama.
En Óla var bjargað frá þess-
um örlögum- fyrir þá slembi-
lukku að Þorsteinn Pálsson
rak Albert Guðmundsson úr
Sjálfstæðisflokknum. Óli
komst á þing. En þó það hafi
í sjálfu sér verið nógu lygilegt
þá átti Óli eftir að komast enn
lengra. Hann og Júlíus Sólnes
gengu ókeypis inn í ríkis-
stjórnina. Þeir geta því kallað
sig fyrrverandi ráðherra í
símaskránni þegar kjörtíma-
bilinu lýkur.
Árangur af þingsetu og ráð-
herradómi Óla verður ekki
meiri. Hann reyndi að fá sam-
ráðherra sína til að sam-
þykkja sig sem sendiherra, en
þeir fúlsuðu við því. Þeim
hefur sjálfsagt þótt komið
nóg af Ola og hans líkum.
Samráðherrarnir þekkja
nefnilega allir nóta eins og
Óla úr sínum eigin flokkum.
Og eins og aðrir sem hafa náð
frama innan stjórnmálaflokk-
anna fyrirlíta þeir innst inni
svona menn sem eru tilbúnir
að vinna og strita fyrir flokk-
inn í lítilli von um einhvern
frama. Þeir hlæja á bak við
þá.
Þannig hefur vistin í ríkis-
stjórninni oft verið Óla erfið.
Það skipti því engu máli
þegar upp var staðið hvort
Óli yrði þingmaður og meira
að segja ráðherra. Óla tókst
aldrei að hljóta þá virðingu
sem ráðherradómi á að fylgja
og í raun fékk hann engu ráð-
ið innan ríkisstjórnarinnar.
Hann fékk bara bíl.
Álfur
HéRtfr iém* bíka
SAfMiÞ SBfA TÍL I
f GIL&/LWVÍ AT f
UFFSTÞPFtM* ísL-L
ZFpVMW !
JtJSbLftfi 'ASGEi R •
flPÓLST&'l FÍAööS'f’
THEÓP^R
BJjiPfL
THEoöoP
KQAfþEfZ
H&ZfU) Nl\&U\K
BG BK LiSTr&£Q)N<a\fton/
fAB&jNLANÞjfM,
(A%*»W tót* 'ÞéZAÞ
láWA M NÉg. &BL4WÍAt at&íÞA
tAEFJCÍLE&AZTA
'A nLLU W&JLANT*?
Framhald i næsta blaði