Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 2

Pressan - 21.03.1991, Blaðsíða 2
2 Ásgeir, var þetta svana- söngur þingmannsins? „Nei, nei, þetta var bara millistefið. Nœsti þáttur hefst þann 20. apríl." Mikiö liö íslenskra tón- listarmanna mun flakka um Skandinavíu í sum- arbyrjun undir forystu FRIÐRIKS KARLSSON- AR gítarleikara. Veröur farið út í júní og haldnir 15 tónleikar í tengslum við útgáfu á plötu Frið- riks. Hún heiti Point Blank og mun hljóm- sveitin bera sama nafn. Meö Friðriki í för verða EYÞÓR GUNNARSSON, KJARTAN VALDIMARS- SON, JÓHANN ÁSMUNDS- SON, GUNNLAUGUR BRI- EM, PÉTUR GRÉTARSSON, SIGURÐUR FLOSASON OG ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR. Það eru ekki allir sem geta sveiflað sér á milli hljómtækjasölu og steikarframreiöslu. Það getur hins vegar maður að nafni GUNNAR GUNN- ARSSON, eða Gunni í Op- us, eða Gunni í Japis, eða Gunni í Faco. Nú er hann Gunni á N1 bar. Enginn var kátari með það að DAVÍÐ ODDSSON var kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins en HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON lektor. Hannes er eins og allir vita einn harðasti stuðn- ingsmaður Davíðs og til að sýna það tók hann öll- um veðmálum varðandi kjörið. Það borgaði sig og eftir kosninguna var Hannes fjórum viskí- flöskum ríkari. Ætli Dav- íð drekki þær með hon- um? „Virðulegi forseti.Álverið risi!"sagði Ásgeir Hannes Eiriksson alþingis- maður, þegar hann flutti stystu ræðu sem flutt hefur verið i sölum Alþingis. Flutningurinn tók innan við 3 sekúndur, en sem kunnugt er talaði Hjörleifur Guttormsson iheita sex klukkutima um sama mál. FIMMTUDAGUR $044, # 4tefetct#ptót Það verður tónlistarstefnumót á PÚLSINUM næsta laugardags- kvöld. tai .lí a:* T " ... 'r <au . ittas* uk ": - T -■a^ð: _e' arleikari, en hann er mættur hingað til lands ásamt jass- söngkonunni JILL SEIFERS. Þau stoppa aðeins í viku en það verður nóg að gera á meðan. Hápunkturinn verða þó tónleikar á PÚLSINUM en með HILMARI og JILL verða þeir SKÚLI SVERRISSON bassaleikari og DAN RIESER trommuleikari úr hljómsveit- inni FULL CIRCLE. HILMAR er búinn að vera í þrjú ár í BERKLEE og klárar BA próf í sumar. En er eitt- hvað á milli þeirra HILMARS og JILL? „Nei þetta er bara músíkölsk ást,“ segir HILM- AR. 3BBBBSBHH9H Sá fimasti i Venslo Hann segist ekki ganga á höndum í skólanum en eftir frammistöðu hans um helg- ina að dæma þá gæti hann áreiðanlega gert það. Guðjón Guðmundsson, sexfaldur Is- landsmeistari í fimleikum, er áreiðanlega fimasti nemand- inn í Verslunarskóla íslands. „Nei, það er engin æfing í dag,“ sagði Guðjón þegar hringt var í hann en að öllu jöfnu æfir hann alla daga vik- unnar og þá marga tíma í senn. Guðjón stendur á tví- tugu og á einn vetur eftir í Versló. Hann segir lítið um framtíðaráform sin en játar að hann sé að velta fyrir sér erlendum íþróttaháskólum, helst í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Fimleikarnir eru hans ær og kýr en hann hefur þó lítil- lega fengist við golf á sumrin auk þess sem hann lék með KR í fótboltanum í gamla daga. — En hvað með stelp- urnar? „Það er nú lítill tími fyrir þær," segir Guðjón. Menntaskólapía á útopnu Þetta er ungt og leikur sér, segir máltœkið og það á svo sannarlega við um hana Margréti Eir Hjartardóttur, 18 ára skólastúlku úr Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Hún er svo sannarlega mennta- skólapta á útopnu. Fyr- ir stuttu sigraði hán í söngkeppni framhalds- skólanna og að sögn kunnugra á hún mikla framtíð fyrir sér þar. En hún lœtur sér það ekki duga því þessa dagana er hún á fullu með leikfélagi Flens- borgarskóla sem er að setja upp leikritið Keilu- spil eftir Sjón. ,,Það er um lífið og tilveruna," segir Margrél Eir þegar hún er spurð um leikrit- ið. Framhald söngferils- ins er óráðiö þessa stundina en Margrét segist hafa fullan hug á að vinna eitthvað með keppinautum sínum úr framhaldsskólakeppn- inni. Auk þess getur ver- ið að hún syngi í Rauðu myllunni við Hlemm. En hvað með strákana? „Éger ekki á föstu en er með augun opin," sagði Margrét og hljóp inn í próf. LÍTILRÆÐI af kellingum og reykingum Þegar hún amma mín var komin á efri ár fór hún að veita því athygli að prentar- ar og bóka- eða blaðaútgef- endur virtust hafa tilhneig- ingu til að liafa á fræðunum minna letur en hún átti áður að venjast. Amma var skynsöm kona og æðrulaus og þessvegna fyrirgaf hún umsjármönnum prentaðs máls þessa hand- vömm og fékk sér stækkun- argler. Annað var það sem amma átti erfiðara með að sætta sig við, á efri árum, en það var þessi undarlega tilhneig- ing fólks til að tala í hálfum hljóðum. Hún sagði stundum: — Þeir sem muldra hafa slæma samvisku. Hún var líka þeirrar skoð- unar að menn sem töluðu í hálfum hljóðum gætu ekki verið að ræða annað en það hvernig koma ætti einhverj- um fyrir kattarnef eðaþá með hvaða hætti haganleg- ast væri að kveikja í vörulag- er eða verslunarhúsnæði með viðunanlegum árangri. — Fyrst tuldra þeir og tuldra, sagði hún, svo standa magasínin í björtu báli og þeir eru orðnir burgeisar á einni nóttu. Ég held að amma hafi haft hárrétt fyrir sér. Munurinn er bara sá að með aukinni tæknivæðingu er hægt að hækka og lækka í þeim sem maður er að hlusta á í ljósvakafjölmiðlum svo allt það ,,múldur“ og „tuldur" ætti guðsblessunar- lega að geta komist til skila þó talað sé í hálfum hljóðum sérstaklega ef talað er mannamál. Mikill ótti hefur nú gripið um sig meðal málverndun- armanna sem telja að það geti helst orðið íslensku máli að fjörtjóni ef útlenska heyr- ist óþýdd í sjónvarpinu. Hinsvegar finnst mér sjaldnar á það minnst hvern- ig íslendingar sjálfir koma þjóðtungunni til skila. Með öðrum orðum: „Það Iæra börnin sem fyrir þeim er haft“ og ef ekki er gerð krafa til þess að þeir sem koma fram í fjölmiðlum tali skiljanlegt mannamál, þeg- ar þeir eru að reyna að tjá sig á íslensku, þá fara allir að tala tæpitungu. Það er nefnilega ekki út- lenskan í sjónvarpinu sem er erkifjandi íslenskunnar, heldur íslenskan sjálf og þeir sem það mál eiga að geta tal- að. Með aldrinum fer það að vefjast æ meir fyrir mér hvernig ,,kellingar“ og „reykingar" blandast sífellt með beinum og óbeinum hætti inní maraþondagskrár sjónvarpsins um íþróttir. „Kellingar keppa við varn- arliðið í körfubolta." „Tryggja þarf vöxt og við- gang reykinga." Ég er búinn að láta mæla í mér heyrnina og hún er enn óskert, enda finnst mér, öf- ugt við ömmu, flestir tala of hátt. Hinsvegar kunna það að vera ellimörk að ég skuli ekki einfaldlega sætta mig við tæpitunguna í sjónvarp- inu og útvarpinu. Auðvitað er mér vorkunn- arlaust að skilja það að þeg- ar sagt er að kellingar séu að keppa í körfubolta á vellin- um, þá er átt við að að kefl- víkingar séu að keppa í körfubolta á Keflavíkurflug- velli. Og „reykingar" eru auð- vitað reykvíkingar. Þetta er bara framtíðar- málfar þjóðarinnar. Flosi Ólafsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.