Pressan


Pressan - 21.03.1991, Qupperneq 7

Pressan - 21.03.1991, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 21. MARS 1991 7 Allt stefnir í að stór hluti starfsemi Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri lamist frá og með 1. júní í kjölfar upp- sagna 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Uppsagnirn- ar eru vegna endurkomu Gauta Arnþórssonar yfirlækn- is handlækningadeildar úr ársleyfi, en uppsagnirnar eru eingöngu meðal hans helsta samstarfsfólks á skurðlækn- ingadeild og gjörgæsludeild. Áralangir samstarfserfið- leikar auk faglegra kvartana vegna starfsaðferða Gauta eru undirrót uppsagnanna. Er Gauti einkum gagnrýndur fyrir langvinnar og oft á tíðum vonlausar skurðaðgerðir sem leggi mikið á sjúklinga og starfsfólk. í tvígang hafa máiefni Gauta komið til meðferðar landlæknis sem þurfti að kalla til rannsóknaraðila til að taka út starf Gauta í fyrra. Að lokum ákvað stjórn Fjórðungssjúkrahússins að senda Gauta í ársleyfi um leið og honum var meinað að stunda skurðlækningar á sjúkrahúsinu. Enn á ný virðist málið stefna í hnút. ÞÖGN UM MÁLIÐ Það er augljóst að það er ætlunin að halda umræðunni um þetta mál sem mest innan sjúkrahússins. Aðil- ar svara fyrir sig með stöðluðum setningum og vísa til framkvæmda- stjóra sjúkrahússins. ,,Það er aug- ljóst mál að fjöldauppsagnir á deild- um eru alvarlegt mál en að öðru leyti vil ég ekki ræða málið," er það eina sem Ingi Björnsson fram- kvæmdastjóri segir um málið. Það er jafnvel enn minna um svör hjá formanni stjórnar sjúkrahússins: ,,Eðli starfsmannamála sjúkrahúss- ins er með þeim hætti að þau er ekki hægt að ræða," sagði Valtýr Sigurbjarnarson formaður stjórn- ar. — Og þegar haft var samband við Önnu Garðarsdóttur, sem er ein þeirra fimm hjúkrunarfræðinga á skurðdeild sem hafa sagt upp, sagðist hún ekkert hafa um málið að segja. Friðrik E. Yngvason, læknir og formaður Starfsmannaráðs FSA, sagðist lítið geta tjáð sig um málið enda stæði starfsmannaráðið sem slíkt á engan hátt að deilunni. Hann sagði deiluna snúast um samstarfs- örðugleika auk þess sem starfsfólk gjörgæsludeildar, sem hóf deilurnar, hefur haldið fram faglegum atrið- um. ERFIÐUR í UMGENGNI Samkvæmt þeim heimildum sem PRESSUNNI hefur tekist að afla sér um málið þá er það í raun tvíþætt. Annars yegar er Gauti gagnrýndur fyrir viðmót við samstarfsfólk og hins vegar fyrir starfsaðferðir. Á tímabili munu einnig launamál hans hafa valdið ólgu innan spítalans en það mun þó ekki hafa áhrif á deil- una nú. Má sem dæmi nefna að sam- kvæmt úttekt Frjálsrar verslunar var hann tekjuhæsti læknir landsins árið 1988. Mánaðartekjur hans þá námu 770 þúsund krónum á verð- lagi dagsins í dag, framreiknað sam- kvæmt framfærsluvísitölu. Þeir sem til þekkja í þessu deilu- máli vísa gjarnan í söguna og benda á að Gauti hafi verið einráður innan sjúkrahússins um langt skeið og tamið sér umgengnisvenjur í sam- ræmi við það. Menn verði nánast að sitja og standa eftir hans reglum og ef eitthvað bregði út af þá séu menn látnir svara til saka á staðnum. Þykir mörgum þetta ákaflega óþægilegt sérstaklega vegna þess að í krafti af- burða þekkingar sinnar á læknis- fræði sé Gauta oft unnt að gera lítið úr fólki. Þykir framganga hans oft hrokafull og tillitslaus. Samstarfsörðugleikarnir hafa fyrst og fremst snúið að hjúkrunar- fræðingum á skurðdeild og gjör- gæsludeild sem eru þjónustudeildir handlækningadeildar þar sem hann er yfirlæknir. En einnig mun vera töluverð óánægja meðal annarra lækna sjúkrahússins. GAGNRÝNDUR FYRIR TÍMAFREKA OG UMFANGSMIKLA UPPSKURÐI En gagnrýnin beinist ekki bara að umgengnisvenjum Gauta heldur einnig starfi hans. Menn eru al- mennt sammála um að hann sé mjög fær skurðlæknir og ótrúlega afkastamikill. Eru til nánast þjóð- sagnakenndar frásagnir af starfs- orku hans og vinnusemi. En um leið hefur hann verið gagnrýndur fyrir að framkvæma of mikið af tímafrek- um og umfangsmiklum skurðað- gerðum sem oft á tíðum séu næsta tilgangslitlar. Þessar aðgerðir eru nánast einsdæmi hér á landi. Hefur Gauti til dæmis framkvæmt nokkuð af skurðaðgerðum þar sem skorið er í lifur til að fjarlægja mein- vörp. Slíkar aðgerðir eru mjög erfið- ar og eru til dæmis tæpast fram- kvæmdar á Landspítalanum. Þá varð Gauti frægur á sínum tima fyrir garnastyttingaraðgerðir sínar til að megra fólk og voru þær aðgerðir gerðar í talsverðum mæli. Þrátt fyr- ir að verjandi hafi verið að reyna garnastyttingarnar þá hafa þær ekki sýnt neitt sérstakan árangur og hafa þær smám saman dottið upp fyrir. Einnig hafa komið í Ijós marg- víslegar aukaverkanir sem hafa dregið úr tiltrú á þessar aðgerðir. Þær hafa hins vegar stundum verið teknar sem dæmi um hugmynda- auðgi Gauta og vilja hans til að leysa vanda með skurðaðgerð. Mun vera næsta algéngt að skurð- aðgerðir undir stjórn Gauta standi í 10 til 20 klukkustundir vegna um- fangs þeirra. Slíkt er auðvitað gífur- legt álag fyrir starfsfólkið en á stærri sjúkrahúsum væri unnt að dreifa því á fleiri með vaktaskiptingu. En ekki síður er það álag fyrir sjúklinga sem oft á tíðum er umdeilanlegt. Ákvörðun um slíkt veltur oft á dóm- greind viðkomandi læknis og það er einmitt hún sem tekist er á um. Það var einmitt ein 15 tíma skurð- aðgerð í febrúar 1990 sem sprengdi allt í loft upp og bárust þá harðvítug mótmæli frá starfsfólki skurðdeild- arinnar. KVARTANIR VEGNA GAUTA í TVÍGANG FYRIR LANDLÆKNI Kvartanir vegna vinnuaðferða Gauta Arnþórssonar hafa i tvígang borist til embættis landlæknis. I mai 1989 barst embættinu kvörtun sem varð til þess að landlæknir kallaði til nokkra „rannsóknaraðila" til þess að fara ofan í saumana á málinu. Mun fyrrverandi aðstoðarlandlækn- ir Guðjón Magnússon hafa stjórn- að þeirri rannsókn. Eftir því sem komist verður næst var engin afstaða tekin til samstarfs- örðugleikanna en Gauti hins vegar hreinsaður af öllum ásökunum varðandi starfsaðferðir. Ólafur Ól- afsson landlæknir sagðist ekkert geta tjáð sig um málið nú. Innan sjúkrahússins var mikil óánægja með niðurstöðu rannsókn- ar landlæknisembættisins sem kom í ágúst 1989 og vildu starfsmenn skurðdeildarinnar nánari athugun á faglegri gagnrýni þeirra. Landlækn- isembættið lokaði hins vegar á það. Niðurstaða málsins í fyrra var síð- an sú að stjórn Fjórðungssjúkra- hússins ákvað að senda Gauta í árs- leyfi og var ætlunin á meðan að finna lausn á málinu. Fékk hann að- stöðu á handlækningadeild sjúkra- hússins til að stunda sínar rannsókn- ir áfram en hann er að vinna að doktorsritgerð. En um leið var tekið fram að hann ætti ekki að fram- kvæma skurðaðgerðir á meðan. Gauti hefur stundað kennslustörf við Háskólann auk þess að sinna rannsóknum sínum undanfarið ár. Þá sótti Gauti um prófessorsstöðu við læknadeildina en lenti fremur neðarlega á hæfnislista umsagnar- nefndarinnar. MEÐ ÓUPPSEGJANLEGAN SAMNING Það sem gerir málið enn flóknara nú er að ráðningarsamningur Gauta er nánast óuppsegjanlegur og virð- ist hann njóta æviráðningarkjara. Stjórn sjúkrahússins er í úlfakreppu því uppsagnir þessara 25 hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða lama starf- semi sjúkrahússins. Þegar náðist í Gauta var hann fyrst spurður að því hvort það væri óumbreytanleg ætl- un hans að koma til starfa? „Ég er ekki tilbúinn til að tala um minn ásetning eða mín framtíðar- plön,“ sagði Gauti. En hvaöa augum lítur þú þess- ar uppsagnir? „Um þetta get ég ekkert sagt. Ég hef ekkert með uppsagnir starfs- manna að gera og það er engin ástæða fyrir mig að vera að setja mig inn í það.“ En nú er þetta ekkert ný saga sem er að gerast á sjúkrahúsinu? „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég býst við að það fari allskonar sögur af mér eins og öðrum mönnum. Ég heyri það auðvitað ekki sjálfur og einhvern veginn hefur það verið þannig alla mína tíð á Akureyri að ég hef aldrei heyrt neinar kjaftasög- ur. Einstaka sinnum heyri ég kjafta- sögur frá Akureyri þegar ég kem til Reykjavíkur," sagði Cauti sem gaf frá sér að svara efnislegum spurn- ingum varðandi máli^. Þessi svör hans eru kannski táknræn fyrir það sem margir telja vega þungt í því á hvaða stig deilan er komin. — Hann hafi í raun alltaf lokað augunum fyr- ir því að um samstarfserfiðleika vaeri að ræða. í morgun klukkan 10 var fyrirhug- aður fundur innan sjúkrahússins þar sem enn eina ferðina á að reyna að finna lausn í þessu langvinna máli. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.