Pressan - 21.03.1991, Side 8

Pressan - 21.03.1991, Side 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 REDMBIÍSI BANKALÁNUM ÁMQANKOIUN RAK SHYPUBflA NJÁ FYRIRTÆKINU Bjarni Magnússon, útibússtjóri Landsbankans í Mjódd, tók Ós hf. í bankaviðskipti eft ir að fyrirtækinu hafði verið hent út úr Iðnaðarbankanum. Þetta gerðist eftir að eigin kona og börn Bjarna höfðu tekið að sér steypuflutninga fyrir Ós. Bjarni Magnússon, útibússtjóri Landsbankans í Mjódd, var í nánum tengslum við Byggingarfélagið Ós allt frá því Landsbankinn tók Ós inn sem viðskiptavin þangað til skömmu áður en Ólafur Björnsson eigandi Óss greip til umtalaðrar nafnabreytingar á fyrirtæki sínu til að losna við skuldir upp á hundruðir milljóna. Tengsl Bjarna við Ós voru með þeim hætti að eigin- kona hans Sigrún Steingrímsdóttir og sonur hans Magn- ús Bjarnason voru skráð fyrir sameignarfélaginu Úr- Iausn, en það fyrirtæki annaðist verktöku fyrir Ós. Ekki einasta var Bjarni þannig í nánum tenglsum við Ós vegna viðskipta fyrirtækis fjölskyldu hans, heldur var sonurinn Magnús á sama tíma starfsmaður hagdeildar Landsbank- ans. Þegar Sverrir Hermannsson Landsbankastjóri var inntur eftir því hvort bankinn liti ekki alvarleg- um augum á slík hagsmunatengsl sagði Sverrir að allir hlytu að sjá sið- ferðiskröfurnar í slíkum dæmum. „Bankinn vill í lengstu lög koma í veg fyrir að óeðlileg samtvinnun eigi sér stað milli starfsmanna bank- ans og viðskipta þeirra og tengds fólks." Olafur Björnsson í Ósi. Landsbankinn er í vandræð- um vegna lána til hans sem fengust í trausti vafa- sams veðbókarvottorðs. Það er uppboðsréttar að ákvarða hvort Landsbankinn sé fyrstur veðhafa eða þeirra allra síðastur. Aðrir pappírar frá Ósi hafa reynst vafasamir. Bilstjórar fyrirtækisins hafa feng- ið laun sín greidd með víxlum, sem enginn vill taka nema gegn verulegum afföllum. LANDSBANKINN LÁNAR ÚT Á VAFASAMT VEÐBÓKARVOTTORÐ Fyrir nokkrum árum vísaði Iðnað- arbankinn Byggingarfélaginu Ósi hf. úr viðskiptum við bankann. Eftir að Ólafur Björnsson í Ósi komst í viðskipti hjá Bjarna Magnússyni í Landsbankanum í Mjódd fékk Ólaf- ur, þ.e. Ós hf. fyrir nafnbreytinguna umtöluðu í nóvember 1989, þá fyrir- greiðslu sem Iðnaðarbankinn hafði neitað honum um. Meðal annars gaf Ólafur í ágústlok 1988 út 20 milljón króna tryggingabréf á Landsbank- ann vegna láns sem tryggt var með veði í Suðurhrauni 2a. I janúarlok

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.