Pressan - 21.03.1991, Side 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991
Mál Eddu Sigrúnar
GOGNIN KOMIN A BORD
RÍKISSAKSÚKNARAH
„Þeir eru búnir ad senda
okkur rannsóknargögn, en
þella mál hefur ekki hlolid af-
greidslu ennþá," sagdi Hall-
varöur Einvarðsson ríkissak-
sóknari í samtali við PRESS-
UNA, en Rannsóknarlög-
regla ríkisins hefur lokið
rannsókn vegna kœru á
hendur Eddu Sigrúnu Ólafs-
dóltur lögmanni.
Hallvarður sagði að málið
væri á borði Braga Steinars-
sonar vararíkissaksóknara.
PRESSAN spurði Hallvarð
hvort hann þekkti til Eddu
Sigrúnar:
„Hún er ein úr hópi fjölda
nemenda sem voru í laga-
deild þegar ég starfaði þar
við kennslustörf. Ég kynntist
fjölda nemenda þegar ég var
að aðstoða þar við kennslu-
störf."
Hún er sem sagt enginn
heimilisvinur?
„Því fer víðs fjarri, en ég
þekki hana frá hennar dvöl í
lagadeild Háskólans."
Eins og greint var frá í
PRESSUNNI í nóvember sl.
sérhæfði Edda sig í inn-
heimtumálum fyrir fólk sem
lent hefur í umferðarslysum.
Kæran laut að meintum svik-
um hennar gagnvart skjól-
stæðingum.
A síðasta ári hafði ríkissak-
sóknari einnig afskipti af mál-
um Eddu Sigrúnar Ólafsdótt-
ur, en þá þótti ekki ástæða til
að halda málinu áfram,
vegna þess að enginn kær-
andi hafði komið fram og
vegna þess að eiginleg lög-
reglurannsókn hafði ekki far-
ið fram.
Hallvarður Einvarðsson ríkis-
saksóknari. Embætti hans
hefur nú mál Eddu Sigrúnar
til meðferðar öðru sinni.
Helgi fer ekki í Iramboö
gegn Magnúsi L. Sveinssyni
Helgi S. Guðmundsson,
starfsmaður Vátryggingafé-
lags íslands, hefur hætt við
fyrirhugað framboð sitt gegn
Magnúsi L. Sveinssyni for-
manni Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur. Hann hætti
við framboð sitt eftir að hafa
fengið fullvissu frá Magnúsi
um að nýstofnuð starfs-
greinafélög innan VR hefðu
veruleg ítök í samningagerð
stéttarfélagsins.
Fyrir nokkru voru stofnuð
starfsgreinafélög innan VR
og varð Helgi formaður
starfsgreinafélags tr-ygginga-
félaga. Fyrir um það bil
tveimur mánuðum sagði
Helgi af sér sem formaður, að
eigin sögn vegna þess að
hann taldi að félögin gætu
ekki náð tilskildum árangri
eins og hann vonaðist til.
„Það er rétt að eftir að ég
sagði upp hafði drjúgur hóp-
ur manna samband við mig
og hvatti mig til að bjóða mig
fram gegn Magnúsi við næsta
formannskjör. Ég íhugaði
þetta alvarlega, en eftir að
hafa rætt við Magnús hef ég
sannfærst um að ætlunin sé
að starfsgreinafélögin fái
meira vægi en mér þótti
stefna í. Nú hef ég fulla trú á
því að starfsgreinafélögin
komi til með að skipa vegleg-
an sess í störfum VR. Og
þessu ætla ég að fylgja eftir,
en hef tilkynnt Magnúsi að ég
muni ekki bjóða mig fram."
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hefur
óánægja með kjör farið vax-
andi innan VR, ekki síst hjá
afgreiðslufólki. Þá hafa þær
raddir orðið æ háværari að
rjúfa beri tak Sjálfstæðis-
fíokksins á félaginu. Munu
menn úr öllum flokkum hafa
hvatt Helga til dáða, en hann
er formaður fulltrúaráðs
Framsóknarflokksins í
Reykjavík.
„Ég tel að við hefðum orðið
að borga þetta og örugglega
meira en ég segi það eins og
er að mér þykir það ekki
sanngjarnt að þessu skuli
vera þannig háttað," 'sagði
Magnús Óskarsson borgar-
lögmaður, en samkomulag
hefur tekist á milli Reykjavtk-
urborgar, eiganda lóðarinn-
ar við Hátún 6b og bygginga-
meistara um að borgin greiði
4,2 milljónir t skaðabœtur
vegna tafa er uröu við bygg-
ingaframkvœmdir á lóðinni.
Eigandi lóðarinnar er
Andrés Reynir Kristjánsson
en byggingaverktaki var fyr-
irtækið Gissur og Pálmi hf.
Forsvarsmenn þess eru Giss-
ur Jóhannsson og Pálmi Ás-
mundsson. Jónatan Sveins-
son, lögmaður fyrirtækisins,
sagði að málið hefði ekki ver-
ið komið á það stig að ákveð-
innar upphæðar væri krafist.
Ætlunin hefði verið að kalla
til matsmenn þegar sátt hefði
náðst í málinu.
Þrátt fyrir að Magnús segist
ekki efast um skaðabóta-
skyldu borgarinnar eru uppi
efasemdir um að það hefði
orðið reyndin fyrir dómstól-
um. Þeir sem halda því fram
vísa til þriðja kafla bygginga-
regiugerðar þar sem tekið er
fram að veiting byggingaleyf-
is veiti ekki rétt til að hefja
framkvæmdir er brjóti í bága
við skipulag, en það voru ein-
mitt slík atriði sem stöðvuðu
framkvæmdir. Magnús sagð-
ist hins vegar telja að sá sem
veitti leyfið, í þessu tilfelli
borgin, hefði í raun hlaupið á
sig.
í upphafi var veitt leyfi til
að byggja fimm hæða hús við
Hátún 6b en eftir mótmæli
nágranna var ákveðið að hús-
ið yrði aðeins fjórar hæðir.
Skaðabótakrafan byggðist á
því að tjón hefði hlotist af því
að framkvæmdir hefðu
stöðvast í sex mánuði og
fjöldi smiða verið athafnalaus
á meðan. Einnig byggðist
krafan á því að lyfta hefði ver-
ið sett í húsið eins og krafist
er með fimm hæða hús en
hús með fjórar hæðir eru hins
vegar ekki skyldug til að hafa
lyftu. Þess má hins vegar geta
í framhjáhlaupi að húsið er
nú auglýst á fasteignasölu
sem lyftuhús.
Auglýst
nauðungaruppboð á
bílskúnunum sex
Auglýst hefur verið annað
og síðara nauðungaruppboð
á bílskúrunum sex, sem sagt
var frá í PRESSUNNl þann
28. febrúar sl.
Húseigendur á Reykjavík-
urvegi 24 til 46 eiga því enn á
hættu að missa bílskúrana
sem tilheyra eignum þeirra,
en eru ennþá skráðir á bygg-
ingaverktakann Steinverk,
sem varð gjaldþrota áður en
honum tókst að aflétta veð-
um á bílskúrunum.
HusiöíHátúni6bereinnihæð lægra en til stóð og hefur
Reykjavíkurborg ákveðið að greiöa lóðareiganda og bygg-
ingaverktaka 4,2 milljónir króna í skaðabætur.
Borgin borgar skoða-
bætur iyrir lytlokaup
„Þetta gaspur í Þjóðarsálinni hjá henni er
marklaust hjal," sagði Gunnar Sigurðsson
kaupmaður. „Hún gerir oft meira en hún get-
ur,“ sagði ættingi. „Hún er hættuleg samfé-
laginu og svífst einskis við að bera lygi og
níð upp á saklaust fólk," sagði Gunnar Sig-
urðsson kaupmaður. „Hún er svolítið fljót-
fær," sagði ættingi. „Ég hef gert henni greiða
og hún hefur launað það með iliu," sagði
Gunnar Sigurðsson kaupmaður. „Hún er fljót-
fær á köflum og gerir stundum vanhugsaða
hluti. Það er góð hugsun bak við þetta mál
í frystihúsinu núna en það bitnar á röngum
aðila," sagði Sigurður Þ. Guðmundsson hrepp-
stjóri. „Hún er eitt í dag og annað á morgun,"
sagði Andrés Guðmundsson skrifstofumaður.
Vagna Sólveig Vagnsdóttir hefur verió í fréttum undanfarið vegna einstakrar vinnustöövunar fiskvinnslufólks sem vill meö því leggja áherslu á kröfu sína um aö skattleysismörk hjá fiskvinnslufólki veröi
lækkuö. Fiskverkafólk í heimabyggð Vögnu, Þingeyri, hafnaöi hins vegar vinnustöðvuninni í atkvæðagreiöslu.
„Vagna Sólveig er ágætismanneskja og ég
stend heilshugar með lienni," sagði Svana
Thompson samstarfskona. „Hún er ákaflega
gjafmild og myndi gefa frá sér sína síðustu krónu
ef einhver þyrfti þess með," sagði ættingi. „Hún
er ákafur verkalýðssinni og mikil baráttukona,"
sagði ættingi. „Hún er mikil fjölskyldukona og
hugsar vel um börnin sín,“ sagði Svana Thomp-
son samstarfskona. „Hún er ákaflega góð
kona," sagði samstarfskona. Það er ábyggilega
margt gott til í Vögnu Sólveigu, hún vill allt fyrir
alla gera," sagði Sigurður Þ. Guðmundsson
hreppstjóri. „Það þarf meira en eina síðu í blaði
til að lýsa Vögnu Sólveigu," sagði Andrés Guð-
mundsson skrifstofumaður.
Vagna Sólveig Vagnsdóttir
fiskverkakona
UNDIR
ÖXINNI
Ólafur
Ratjnar
Gnmsson
fjármála-
ráðherra
Það er augljós-
lega allt farið úr bönd-
unum hjá þér?
„Nei, það er alrangt.
Þetta eru sömu menn-
irnir og sögðu í mars
og apríl í fyrra, að ríkis-
sjóði tækist ekki að
fjármagna hallann inn-
anlands og vextir
myndu hækka hjá rík-
issjóði. Staðreyndin er
sú að við skiluðum
hundrað prósent ár-
angri í fjármögnun inn-
anlands á árinu 1990
og vextir ríkissjóðs
hækkuðu ekki. Þessi
lánsfjármögnun þýðir
u.þb. 1 milljarð í við-
bótarútgjöld fyrir ríkið.
Það er fyllilega innan
við þau mörk sem
tekjuáætlunin leyfir.
Stór hluti af þessu fel-
ur einungis í sér breyt-
ingu á því hvar lánin
eru skrifuð. Og sumt er
óvissu háð vegna ál-
samninga..."
... en Ólafur, það er
verið að tala um
24—25 milljarða
króna og þú segist
ætla að fjármagna
dæmið innanlands?
„Þegar menn tala
um þessa upphæð, þá
er verið að reikna hús-
bréfin og fleira með.
Halli ríkissjóðs verður
4 til 5 milljarðar og það
eröll fjárþörf ríkissjóðs
í þessu dæmi."
Aukin innrás á inn-
lenda peningamark-
aðinn hlýtur að þýða
vaxtasprengju. Ert þú
ekki að andmæla
hagfræði sem menn
læra í fyrsta bekk í
menntó?
„Nei, til þess að
sprengja vextina þarf
að koma með nýtt fjár-
magn inn í hagkerfið.
Það gerist ekki við
þessa viðbót lánsfjár-
áætlana. Til dæmis yf-
irtakan á skuldum
Byggðastofnunar. Hún
felur ekki ísér nýtt fjár-
magn. Þau lán voru
tekin fyrir mörgum ár-
um síðan og löngu bú-
ið að eyða þeim."
Ríkissjóður og opinberir aöilar
munu taka 24—25 milljarða að
láni, samkvæmt lánsfjárlögum.
Fjöldi sérfræðinga i atvinnulífinu
og bankakerfinu telur að fjár-
mögnun innanlands þýði ekkert
annað en vaxtahækkanir.