Pressan - 21.03.1991, Síða 26

Pressan - 21.03.1991, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 „Ég túlka Odd Dalberg fyrrverandi hermann sem er ad snúa heim úr fyrri heims- styrjöldinni," segir Þorsteinn Gudmundsson en hann leik- ur í uppfœrslu Nemendaleik- hússins á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson sem Jiefnist Dampskipid ísland. Að sögn Þorsteins samdi Kjartan leikritid sérstaklega fyrir Nemendaleikhúsið en það er byggt á frásögn Göggu Lund: LP LISTAPÓSTURINN Oddur Dalberg á damp- skipinu Islandi Nemendaleikhúsid frumsýnir bráðlega nýtt íslenskt verk, eftir Kjartan Ragnarsson Skúli Sverrisson og Full Circle í Púlsinum Evróputúr hljómsveitarinri- ar Full Circle hefst á Púlsin- um í kvöld. Með hljómsveit- inni leikur íslenskur bassa- leikari Skúli Sverrisson sem lék á Islandi m.a. med tríói Gudmundar Ingólfssonar og Pax Vobis. Eftir nám í kontrabassaleik hjá Jóni Sigurðssyni í tónlist- arskóla FIH stundaði Skúli nám í bassaleik við Berklee tónlistarháskólann í Boston og útskrifaðist þaðan með MA gráðu. Hann er nú búsett- ur í New York og leikur með Full Circle. Tónlist hljómsveit- arinnar er blanda af djassi og rokki með brasilísku og afr- ísku ívafi. Hljómsveitin hefur nýlega gert plötusamning við út- gáfufyrirtækið CBS og er Evróputúrinn hugsaður til að kynna væntanlega plötu. Þorsteinn Guðmundsson: Óneitanlega kostur að vinna með jafningjum. „Oddur fer til Kanada eins og svo margir gerðu á þess- um árum og er lokkaður í herinn. Hann fer síðan illa út úr stríðinu og á um sárt að binda. Á skipinu er síðan að finna ýmsa aðra karaktera svo sem tvær reykvískar stássdömur, lækni, skáld, mann á uppleið og eiginkonu hans, fulltrúa kaupmanna- stéttarinnar, viðsjárverða hefðarkonu, unga stúdínu, og auðvitað sjómann. Það gerist síðan að þau festast í ís og þá skapast tengsl milli fólksins og ýmislegt kemur upp á yfir- borðið." Hvernig tilfinning er ad fara út í atvinnuleit eftir að námi lýkur? „Við erum öll mjög jákvæð og bjartsýn á framtíðina enda höfum við fengið á okkur orð fyrir að vera mjög jafn hópur. Það er óneitanlega kostur að vinna með jafningjum. Við strákarnir í bekknum höfum síðan allir fengið hlutverk í finnsk/íslenskri sjónvarps- mynd sem gerð verður núna í sumar. Við hittum finnska leikstjórann Arn Henrik Blumkvist á menningarferð þriðja bekkjar um Finnland og Rússland en hann höfðum við hitt áður er hann kom til landsins ásamt leikhópnum Vírus. Hann hefur síðan kom- ið hérna oftar í heimsókn og skrifaði handritið af sjón- varpsmyndinni sérstaklega fyrir okkur. Myndin er eins- konar Road movie og verður öll tekin úti á landi. Það má síðan geta þess að Arn Hen- rik Blumkvist fékk viður-' kenningu sem besti leikhús- maður í Finnlandi nú í vetur einkanlega fyrir sýninguna Marat Sade sem þykir það besta í leikhúsi í Finnlandi núna.“ Hvernig fékkstu leiklistar- bakteríuna Þorsteinn? „Ég var i Herranótt í MR og líkaði svo vel að ég vildi láta reyna meira á áhugann og hæfileikana. Við erum þrjú úr Herranótt í þessum ár- gangi og fleiri úr leikfélögum skólanna." Nemendaleikhúsið skipa þau: Þórey Sigþórsdóttir, Halldóra Björnsdóttir, Þor- steinn Bachmann, Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Ári Matthí- asson, Þorsteinn Guðmunds- son, Magnús Jónsson og Gunnar Helgason. Auk þeirra taka þátt í sýningunni þrír gestaleikarar þau: Egill Ólafs- son, Anna Éinarsdóttir og Guðný Helgadóttir. Sýningin er sett upp í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur sem leggur til stóra sviðið í Borg- arleikhúsinu, handritið, leik- mynd hannaða af Grétari Reynissyni, leikstjóra, ljósa- manninn Lárus Björnsson og aðra starfsmenn. „Málverkið á að tala við þig," segir Cheo Cruz. Fyrir mér eru málverkin elskhugar segir Cheo Cruz myndlistarmadur „ Málverkin mín eru eins og salsa," segir Cheo Cruz mynd- listarmaöur frá Kólumbíu sem búsettur er á íslandi og heldur sölusýningu á Café 17. „Ef þú horfir grannt á mál- verkin sérðu blöndu af afr- ískri, evrópskri og suður-am- erískri list. Afskræming augnanna er síðan í ætt við kúbisma Picasso. Ég fæst að- allega við að gera grín að listasögunni og skrumskæla hana. Á þessari sýningu hef- ur myndin Heilagur Georg og drekinn einna mesta þýðingu fyrir mig. Það er svo mikið of- beldi í henni. Þetta hefur einnig verið mjög mikið not- að viðfangsefni í gegnum alla listasöguna. Það er líka um- hugsunarvert núna að Heil- agur Georg var heilagur þeg- ar kirkjan réðist að múslim- um. Það má kannski segja að öll stríð séu kynþáttastríð, það er þessi tilhneiging Vest- urveldanna að vilja ráðast á og gleypa alla aðra menn- ingu. En það er samt tilviljun að myndin minni á George Bush eins og sakir standa," segir Cheo og hlær. „Þú tekur hlut úr listasögunni og endur- skapar hann og hann eignast nýja tilvísun." „Fyrir mér eru málverkin mín elskhugar og dýrmætir hlutar af sjálfum mér. Mál- verkið á að tala við þig og rödd mín heyrist í gegnum þau. Allar upplýsingarnar liggja í verkunum sjálfum." Allar sýslur eru skáldasýslur segir Stefán Steinsson lœknir og skáld í Búöardal ,,Þessar skriftir eru arfgeng árátta," segir Stefán Steinsson lœknir og skáld í Búðardal en hann hefur nýlega sent frá sér bókina Ástarljóð bílanna. Þess má geta að Stefán er bróðir skáldkvennanna Krist- ínar og Iðunnar Steinsdœtra: „Þessi árátta sækir suma heim og aðra ekki. Þeir skjóta þá rjúpur eða gera við bíla í staðinn," segir Stefán. „Þetta er önnur Ijóðabók mín. Hin kom út í einskonar lokaðri út- gáfu og var send til lækna og lyfjafræðinga. Það er fyrir- tækið Lyf hf. sem gaf .bókina út en fyrirtækið sendir við- skiptamönnum sínum Ijóða- bækur í stað korta á jólun- um." Hefurðu fengist við að skrifa Ijóö lengi? „Nei, það er mest svona síðustu tvö árin." Er það Búðardalur sem hefur þessi skáldlegu áhrif á þig? „Ætli það ekki bara. Þetta hefur haldist í hendur við dvöl mína hér. Ég hef nú samt alla tíð verið að fást við að Hefur þú fengið einhver viðbrögð við bókinni? „Nei, það er svo stutt liðið frá útkomu bókarinnar. Það er kannski helst frá vinum og vandamönnum og kollegum. En ég fæ auðvitað einungis jákvæð viðbrögð frá þeim, hinir þegja frekar sem ekki líkar lesturinn. Ég hef nú hugsað mér að kynna hana eitthvað betur." Gafstu bókina út sjálfur? „Nei, það er Norðanniður sem gefur bókina út. Það er útgáfufyrirtæki á Sauðár- króki sem hefur gefið út Ijóðabækur eftir misjafnlega lítið þekkta höfunda." Eitthvað að lokum Stefán? „Já, ég vona að þeim leiðist ekki sem slysast til að lesa bókina," sagði læknirinn og skáldið í Búðardal. hripa eitthvað niður. En því verður ekki neitað að Dala- sýslan er mikil skáídasýsla þó að ég feti nú ekki í sporin þeirra. Annars eru allar sýsl- ur skáldasýslur ef út í það er farið." Skugga- hliöar lista- lífsins Einn fróðlegasti vett- vangur alls þjóðlífs er án efa aðdáendafélög fag- urra lista og misfagurra listamanna. Slíkir aðdá- endaklúbbar eru yfirleitt feykivel sóttir af hvers- konar mannvitsbrekk- um, týpum og karakter- um sem fá þar andlega umbun og kampavíns- glös fyrir það skítverk að opna bœkur eða skoða myndir svo að ég tali ná ekki um engjast uppundir tvo tíma í leik- húsi. Eina konu vissi ég svo áfjáða í slíkan sel- skap að hún var með- limur í fjörutíu og fjór- um slíkum félögum leyndum og Ijósum áður en hún endaði loks uppi á Vogi ein og yfirgefin enda burtrœk úr öllum félögunum með tölu sökum óspekta og þeirr- ar áráttu sinnar að vilja snerta og toga í klœði hinna dáðu og elskuðu listamanna. Þessi yfir- gangur konunnar þótti í fyrstu fyndinn og frum- legur svo aö vitnað sé í orð mikilsmetins frœð- ings ,,afskaplega avant- garde“ en seinna fór hann að þykja leiðigjarn og dónalegur svo vitnað sé til setningar sem frœg- ur bókmenntaunnandi lét hafa eftir sér þegar konan hafði náð taki á Dior nœrbuxunum hans og spyrnti í með öðrum fœtinum: „Ég meina það, ekkert fœr maður að hafa í friöi." Það fór að lokum fyrir konunni eins og öllum öðrum sem kunna sér ekki hóf í samskiptum við lista- gyðjuna og halda það auðga andann að hella í sig brennivíni og hrella fólk í stað þess að temja sér háttvísi og prúð- mennsku. Hún endaði ein úti í horni ofurseld óþekktarpúkanum i hjarta sér og hefði geng- ið götuna til glötunar á enda ef gott fólk hefði ekki rétt henrii líknandi hendur. Listapósturinn mœlist til aö fólk hafi þessa litlu dœmisögu í huga á þeim opnunum sem nú kunna að fara í hönd. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.