Pressan - 21.03.1991, Page 28

Pressan - 21.03.1991, Page 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 Marilyn syngur og Súsan baðar sig á Moulin Rouge Ljósin myrkvast í kjallara Moul- in Rouge og raud flauelstjöld eru dregin frá. Fram á svidið stígur hœttulega eygð drottning með beittar neglur og syngur gamla Marylin Monroe lagið „When you get what you want you dont want it". Dragskemmtun á Moulin Ro- uge er hafin og gœsahúðin breiðir sig um salinn. Gestirnir eru af öllum stœrðum og gerðum en þó ber mest á ungu fólki sem hefur tekið ástfóstri við staðinn. „Guð, finnst þér hann ekki alveg draum- ur," hvíslar ungur strákur að vin- konu sinni en hún svarar ekki heldur horfir opinmynnt á sviðið. Allt þangað til síðustu tónarnir deyja út má varla heyra saumnál detta en síðan cetlar salurinn að œrast af fagnaöarlátum. Eftir að hásrödduð söngkona sem reyndar er kvenkyns hefur sungið gamla íslenska slagara við góðar undirtektir hoppar lágvax- inn feitlaginn karlmaður út á gólf- ið veifandi bjórflösku og röflar á dönsku um að nú œtli hún Súsan að baða sig ,,og det her er kun for voksne" bœtir hann, sem reyndar er hún, við og Súsan gengur í sal- inn undir dynjandi lófataki. Eftir að Súsan hefur tœtt af sér spjar- irnar meö eggjandi látbragði og tilheyrandi mjaðmahnykkjum hlammar hún sér ofan í stóran járnbala á gólfinu þannig aö gus- urnar ganga yfir salinn og danski pervertinn lýsir kostum hennar og kynjum meðan hún skrúbbar á sér líkamann. Fyrir áhugasama má geta þess að Súsan hefur gam- an af að bródera í frístundum og les auk þess „Alt for damerne" sér til yndisauka. Þannig vindur fram sýningunni þetta kvöld og í lokin kemur vestur-íslensk söng- kona sem heitir Hallfríður ,,The viking woman" og syngur fyrir við- stadda tvö uppáhaldslög sem eru Hani krummi hundur svín og Kreisí að vera svona lónlí. Sauma- klábbur sem er úti að skemmta sér alveg makalaust hefur hreiðr- að um sig í horni staðarins og horfir öfundsjúkur á HaUbjörgu hendast um sviðið í tjulli og há- hœluöum skóm. „Hún hrasar ekki einu sinni," hvíslar Gunna Jóna að vinkonu sinni sem horfir fýld nið- ur á flatbotna kínaskóna en hin sem er ekki jafn öfundsjúk að eðl- isfari klórar sér áhugasöm í kálf- Fegurðin krefst fórna. Dragdrottning býr sig undir sýningu. anum meö mannbroddunum und- ir kuldaskónum. í milUtíöinni hef- ur Hallfríður súperstar hrasað á oröinu tittlingur og nú hendist hún með rassaköstum um salinn tit tit tit tit tittlingur og salurinn klappar og stappar með. Hallfríöur lýkur síðan atriðinu með glœsibrag og sýningunni þetta laugardagskvöld er þar meö lokið. Saumaklúbburinn fer að hugsa sér til hreyfings nema Gunna Sigga sem vill ólm prófa mann- broddana á dansgólfinu sem œpir „Everybody dance now" á við- stadda og blikkar í sífellu marglit- um Ijósaugunum. Drottningarnar bak við sviðiö koma brátt fram í sínum venjulegu fötum og blanda sér í hóp annarra gesta. Staðurinn tekur á sig mynd venjulegs íslensks skemmtistaðar og nokkrir leika kött og mús, aðr- ir drekka sig fulla eða spjalla sam- an uns fólk týnist upp í leigubíla fyrir utan eða gengur heim. Kvöld- stundinni á Moulin Rouge er lokið. Marilyn hefur verið vinsælt viðfangs- efni dragdrottninga. Hér bíður ein baksviðs eftir því að koma fram. Dragdrottning reynir að hneyksla — segir Maríus Sverrisson dragdrottning á Moulin Rouge „Þad er nauðsynlegt að lifa sig og vera til dæmis an þegar hún er á svidinu," segir Maríus Sverrisson dragdrottn ing en hann skemmtir gestum á Moulin Rouge med túlkun sinni á ýmsum kvenpersónum: „Mér finnst skemmtunin vera aðalatridid en ekki skrúðinn sem slíkur. íburðurinn er stór hluti af því að vera dragdrottn- ing. Fólk ruglar því oft og tíðum saman að vera drag- drottning og klæðskipting- ur. Þetta eru tveir algerlega óskyldir hlutir. Við erum fyrst og fremst skemmti- kraftar og h'tum á dragdrottn- inguna sem skemmtiatriði.“ En hver er þá munurinn á ykkar sýningum og því þegar íslenskir sjómenn skemmta á háhæluðum skómá árshátíðum útgerðarinnar? „Dragdrottningin reynir að hneyksla og beitir til þess ýmsum brögðum án þess að vera nokkurn tímann beinlínis dónaleg. Hún er mest í kjaftinum. í góðum vel skipu- lögðum sýningum er líka alltaf ein- hver falin ádeila og hún stendur oft- ar en ekki í einhverju sambandi við frelsisbaráttu homma og lesbía. Hommarnir og lesbíurnar taka síð- an þessum sýningum með meiri fyr- irvara. Þau hafa flest séð eitthvað þessu líkt erlendis og gera meiri kröfur. Við erum líka einfaldlega betri en þegar bara einhverjir fá lán- aða háhælaða skó hjá konunni sinni. Þar sem við erum hommar er- um við opnari fyrir kvenleikanum og skömmumst okkar ekkert fyrir það. Við höfum ein nig aðra sýn á líf- ið. Það er líka oftast þannig að minnihlutahópar hafa ríkan sjálfs- húmor og við erum þar engin und- antekning. Það var aftur á móti skemmtilegt að mörgu leyti þegar Laddi túlkaði Elsu Lund enda er hann góður leikari og getur brugðið sér í öll möguleg líki. Spaugstofan lætur ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að túlka konur." Er nokkur hætta á því að Maríus Sverrisson gleymi sér í hlutverki dragdrottningarinnar og vakni upp einn morguninn sem dragdrottning- in og stólpakjafturinn María? „Hommar eru opnari fyrir kvenleika," segir Maríus Sverrisson.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.