Pressan - 21.03.1991, Page 29

Pressan - 21.03.1991, Page 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN J21. MARS 1991 29 „Það er mjög nauðsynlegt að lifa sig inn í atriðið meðan á því stendur. Ég tala hinsvegar alltaf um drottn- inguna sem sjálfst æða persónu og lít þannig á að ég fái hana lánaða stutta stund í einu. Enda held ég að tilgangurinn með sýningunni væri glataður ef við værum raunveru- lega þær sem við erum að leika. Þetta er ekki sirkus." Eitthvað að lokum? „Já okkur langar til að gera sýninguna fjölbreyttari og hafa fleiri skemmtiatriði en dragdrottningar. Ég get nefnt sem dæmi að við verð- um með suður- amerískt kvöld næsta miðvikudag og þar munu koma fram dansarar frá Suður-Ameríku og fleira í þeim dúr verður galdrað fram til að gera kvöldið eftirminnilegt og sérstakt Við ætlum okkur að búa til kabarettstemmningu á Moulin Rouge sem hvergi á sinn líka á íslandi. Staðurinn er svo opinn öllum áhugamönnum um eft- irminnilegar skemmtanir.“ Guðmóðir allra núverandi dragdrottninga er Divine i ir öllu sem fer yfir strikið. Það er í sjálfu sér ákveðin listgrein að vera dragdrottning og fyrirbærið er sjálf- sagt til dæmis í Austurlöndum fjær. Fólki þar finnst þetta sjálfsagður hlutur. Það sem greinir okkar sýn- ingar frá öðrum slíkum bæði á öðr- um Vesturlöndum og Austurlöndum er revíustíllinn. Þegar farið var að tala um að opna Moulin Rouge sem kabarett stað fór ég að hugsa um hvað kabarett væri í raun og veru. Eitthvað sem gerir grín að líðandi stundu. Það kom til mín Bandaríkja- maður um daginn sem hafði séð sýninguna og þótti hún bera af öðr- um dragsýningum." Hvað höfðuð þið fram yfir hinar sýningarnar? „Styrkur okkar liggur í kabarett- stílnum og því að við syngjum allt efnið sjálfir og túlkum það með okk- ar eigin aðferðum. Mér finnst per- sónulega ekkert spennandi að sjá karlmann í kvenmannsfötum hreyfa varirnar eftir plötuspilara og bulla þess á milli. Islenskur draghópur verður að mæta hærri kröfum vegna fámennis. Við fáum sömu áhorfendur oft helgi eftir helgi og ,við endurnýjum dagskrána eftir því.“ Eru fleiri dragdrottningar þá að bætast í hópinn? „Já, stefnan er að fá sem flesta með og hafa fjölbreyttari dagskráen bara drag. Á suður- amerísku kvöldi sem verður næsta miðvikudag verða þrjár drottningar í viðbót og við munum færa okkur smámsaman upp á skaftið." — segir Páll Óskar Hjálmtýsson fyrrum Frank Further í Rocky Horror og núverandi dragdrottning á Moulin Rouge „Af hverju er fyndnara ad sjá karlmann klædast kvenmannsfötum en kven- mann karlmannsfötum? Við viljum koma því ad,“ segir Páli Óskar Hjálmtýsson sem vinnur við ad framkalla myndir á daginn en kiæðist æsandi kjóium um helgar og framkallar viðbrögð hjá gestum skemm tistaðar in s Moulin Rouge. „Kikkið við aðleikai dragsýningu er að þetta er svo viðkvæmur hlutur að fólk verður hneykslað við tilhugsunina eina sarnan,” segir Páll. „Ég hef alltaf verið mjög veikur fyr- „Það er meiri niðurlæging að mistakast í ball- kjólnum hennar mömmu þinna r en i þínum venju- legu fötum," segir Póll Óskar Hjálmtýsson. Að vera dragdrottning krefst mikils undirbúnings og hér róta Marius og Palli í gnægtabrunnum þess kvenleika sem fæst keyptur i snyrtivöruverslunum. Hitt leggja þeir til sjálfir á ógleymanlegan hátt. H vað er svona s pennandi við drag annað en að hneyksla? „Það er viss ádeila í því og það er fyndið. Það er svo margbreytilegt. Það þarf ekki einu sinni að vera fyndið. Það getur verið mjög fallegt og snert ákveðna strengi sem engir aðrir hlutir megna að snerta. Ástæðan fyrir því að ég vildi vera með var að eitt af því flottasta sem ég hef séð á sviði var Divine. Hann hafði alveg rosalega útgeislun. Ég held að ég hafi einu sinni fengið kynferðislegt kikk út úr því að vera í dragi. Sú sýning var líka toppurinn á öllum sýningum sem ég hef tekið þátt í. Ég fæ einfaldlega ofboðslega mikið út úr því að standa á sviði eins og sennilega allir skemmtikraftar. Það að drag er mjög viðkvæmur hlutur magnar svo upp tilfinning- una og ef það heppnast vel er það ólýsanleg tilfinnin g en ef illa tekst til er það hryllileg niðurlæging. Það er meiri niðurlæging að mistakast uppi á sviði í ballkjólnum hennar mömmu þinnar en í þínum venju- legu fötum. Þú tekur svo mikla áhættu." Fáið þið annarskonar viðbrögð hjá gagnkynhneigðu fólki en hommum og lesbíum? „Já, þegar gagnkynhneigt fólk horfir á drag er það oft og tíðum að hlæja að hommamenningunni en ekki bara þeim bröndurum sem drottningin segir. Það er ósköp eðli- legur hlutur að verða feiminn við það sem maður ekki þekkir. Fólk ruglar því ósjaldan saman að vera hommi sem leikur dragdrottningu og því að vera klæðskiptingur en þeir eru oftast gagnkynhneigðir og hinsvegar að vera kynskiptingur sem þráir að skipta um kyn. Þessi misskilningur getur bæði verið fyndinn og fúll. Það er mjög mikið frelsi að vera í dragi. Það rukkar þig enginn um það sem þú lætur út úr þér heldur persónuna sem þú ert að leika. Ef einhver myndi spyrja mig eftir sýningu hvort ég væri virkilega svona inn við beinið vefðist mér tunga um tönn. Ef ég segði nei, þá væri ég að ljúga. Að játa væri það sama og að segja að ég væri huglaus og þyrfti að klæðast kjól til að segja það sem mér býr í brjósti. Fyrir utan allt þetta: There is no business like show business nowhere you can gel that feeling when you are steeling that extra bow." Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ^Forstjóri Sambandsins, Guðjón B. Ólafsson, er nú sagður berjast hetjulegri baráttu fyrir framtíð sinni innan Sambandsins, en sem kunnugt er eru uppi raddir um að leggja starf for- stjórans niður og fela stjórnarfor- manni daglegan rekstur. Guðjón mun hafa boðað til sín á einkafundi bæði kaupfélagsstjóra og framkvæmda- stjóra, en orðið lítið ágengt. Talið er að fljótlega muni Sigurdur Mark- ússon boða til fundar í stjórninni og taka af skarið, enda málið orðið verulega óþægilegt fyrir alla að- ila . . . að fór ekki eins og samvinnu- menn voru að láta sig dreyma um varðandi KRON. Er nú Ijóst að fyrir- tækið fær ekki eins virðulega útför og menn höfðu verið að vonast eftir. Langir fundir Þrast- ar Óiafssonar með heildsölum á sínum tíma hafa því skilað litlu. Tvennt er einkum talið stuðla að þessu: I fyrsta lagi nýlega sam- þykkt lög á alþingi um samvinnufé- lög en sumir kröfuhafa telja nú mögulegt að sækja peninga inn í séreignarsjóði SÍS. Er það skilningur sumra að með þessum lagabreyting- um hafi þeir verið opnaðir í tilfellum sem þessum . . . I öðru lagi þá eru margir kröfu- hafanna ekki ánægðir með hvernig staðið var að málum á síðustu mán- uðum KRON. Telja þeir til dæmis að kröfuhöfum hafi verið mismunað með útgáfu víxla sem SÍS taki að sér að greiða. Vilja þeir því knýja fyrir- tækið í gjaldþrot meðal annars til að koma í veg fyrir möguleika á því að selja það. Er talið að skattalegt hag- ræði af tapinu hefði getað gert það að góðri söluvöru, svo góðri að eig- endur KRON hefðu jafnvel komið út með gróða. Með því að setja það í gjaldþrot eru slíkir möguleikar eyði- lagðir ... A ^^•tfmæli Alþýðuflokksins a Hótel Sögu um síðustu helgi þótti takast með ágætum. Að minnsta kosti urðu gestirnir miklu fleiri en gert hafði verið ráð fyrir, þannig að Kristinn T. Haraidsson bíl- stjóri Jóns Bald- vins Hannibals- sonar var sendur út af örkinni til að kaupa upp sæta- brauð í bakaríum borgarinnar. Um þúsund manns komu til veislunnar og fengu allir nægju sína eftir að Kristinn hafði leyst málið. Þess má geta að Kristinn er enginn viðvan- ingur í veisluhöldum. Jón Óttar Ragnarsson, fyrrverandi sjón- varpsstjóri Stöðvar 2, hefur ekki hvað síst þakkað honum að brúð- kaup aldarinnar skyldi verða að veruleika á sínum tíma . . .

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.