Pressan - 21.03.1991, Page 30

Pressan - 21.03.1991, Page 30
Kennari á Húsavík MEÐ LOTTOKASSA í KENNSLUSTOFUNNI — vil að nemendur mínir kynnist lífinu eins og þaö er, segir Úifur Ingvarsson kennari. Þetta er ekki bara lærdómsríkt heldur helviti skemmtilegt og svo má lika græða, segir Úlfur. Fjolgun framboða hefur gert Erlu Pálsdóttur erfitt fyrir meö að velja flokk. „Ætli ég verði ekki bara að bjóöa fram sjálf til að gera ekki upp á milli barnanna," segir hún. Hundrað ára kona á ísafirði Fjórtán barnabörn í framboð fyrir ellefu flokka — það verður alltaf erfiðara og erfiðara að kjósa, segir gamla konan Sérsveitir fjármálaráðherra Tókn barnapíu til yfirheyrslu vegna skattsvika — við vildum bara fá að sjá greiðslukvittanir og bókhald segir yfirmaður sveitarinnar Þeir trúðu mér ekki þegar ég sagðist hafa keypt nammi fyrir peninginn, segir Sigur- laugur Harðarson, tíu ára barnapia, sem slapp naum- lega frá sérsveitunum. r> r> 10. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR HJÖRLEIFI BOÐIÐ TIL EVRÓPU- ÞINGSINS Brussel, 21. mars______ Hjörleifi Guttormssyni, þingmanni Alþýðubanda- lagsins, hefur verið boðið að sitja á Evrópuþinginu næsta sumar sem sérstak- ur gestur. „Þetta er í sjálfu sér dálítið fyndið allt saman,“ sagði Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, en það var fyrir hennar tilverknað sem Hjörleifi var boðið. „Ég skrifaði þeim vemmi- legt bréf og talaði heil ósköp um nauðsyn aukinnar sam- vinnu og samskipta. Þeir virðast ekkert vita hver Hjör- leifur er svo þeir bitu á agnið. Hann fer eftir tæpa viku. Þetta er dásamlegt," sagði Guðrún. „Mér líst mjög vel á þetta,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra. „í raun fær þetta mig til að endurskoða álit mitt á Evr- ópubandalaginu. Með inn- göngu í það gætum við ekki bara losnað við Hjörleif held- ur Ólaf Þ. Þórðarson, Pál Pét- ursson, Alexander Stefáns- son og fleiri svoleiðis menn. Það myndi létta mikið á þing- störfunum hér heima,“ sagði forsætisráðherra. ■■■■ FIMMTUDAGURINN 21. MARS 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAD SEM BETUR HUÓMAR Ritari Alþingistídinda Ég missti eiginlega löngun til að lifa Hjörleifur vinnur nú aö undir- búningi ræöuhalda í Brussel. Þessa mynd tóku íraskir öryggisverðir af Kristjáni þegar þeir sóttu hann í teppabúðina. Meö honum á myndinni er af- j greiðslukonan. íslenskur sendiráösmaöur í Bagdad Laus gegn 150 þús. $ greiðslu Bagdod, 21. mars íslensk stjórnvöld þurftu að greiða um 150 þúsund dollara til að fá sendimann sinn, Krist- ján Lúðvíksson, lausan frá Bagdad í gær. Ástæð- an var ekki sú að honum hafi verið haldið í gísl- ingu heldur skuldaði Kristján þessa upphæð í teppabúð í borginni. „Svo virðist sem Kristján hafi farið inn í búðina stuttu eftir að hann kom til Bagd- ad. Samkvæmt okkar heimildum mun hann hafa misskilið afgreiðslukonuna eitthvað eða misreiknað sig við gengisútreikninga. Alla vega liðu ekki nema um tíu mínútur þar til að hann skuldaði ofangreinda upp- hæð,“ segir í fréttatilkynn- ingu utanríkisráðuneytis- ins. Kristján var fámáll við fréttamenn á flugvellinum í Bagdad þegar hann var leiddur út í flugvél af tveim- ur öryggisvörðum. „Ég vona að ég fái tæki- færi til að koma hingað aft- ur. Mér leist vel á land og jjjóð og hefði viljað kynn- ast henni betur," sagði Kristján í stuttri yfirlýsingu. Reykjavík, 20. mars___________ „Þetta var hræðilegt,“ sagði Bára Kjartansdóttir og barðist við grátinn þeg- ar GULA PRESSAN bað hana að rifja upp þegar hún var látin skrifa upp ræðu Hjörleifs Guttorms- sonar alþingismanns fyrir Alþingistíðindi i fyrri viku. „Ég þurfti að berjast við að falla ekki saman. En allan tímann fann ég hvernig ræð- an var að leggja mig í rúst. Þetta byrjaði með hausverk, lagðist svo út í hendurnar á mér og loks lá ég gersamlega bjargarlaus á gólfinu. Ég gat mig hvergi hrært. Það versta var að heyrnartólin voru enn á eyrunum og ég gat ekki tek- ið þau af,“ sagði Bára. Ég þori ekki aö opna fyrir sjónvarpiö, segir Bára Kjartansdótt- ir, ritari Alþingistíðinda. Bára þakkar samstarfs- mönnum sínum að hún sé enn á lífi. Þeir komu að henni bjargarlausri á gólfinu og gátu vakið hana til lífsins aft- ur. „Ég veit að ég á eftir að eiga lengi í þessu,“ sagði Bára. „Ég þori til dæmis ekki fyrir mitt litla líf að opna fyrir sjónvarpið ef helvítið hann Hjörleifur mundi birtast." Niöurstööur vísindamanna TANNPINA ER TAUGA- SJÚKDÓMUR Á ÍSLANDI London, 20. mars Samkvæmt niðurstöðum vísindarannsóknar sem birt er í hinu virta blaði Science í dag er tannpína ekki fyrst og fremst líkam- legur sjúkdómur á íslandi heldur rniklu frekar tauga- sjúkdómur eða andlegur sjúkdómur. „Þó fyrstu viðbrögð tann- pínu séu líkamlegur sársauki þá hafa eftirköst hennar fyrst og fremst áhrif á taugakerfi íslendinga og andlegt ástand Það er fyrst og fremst andleg- ur ótti en ekki líkamleg þján- ing sem einkennir íslenska tannpínu-sjúklinga. sjúklingsins," segir í niður- stöðum hóps vísindamanna sem könnuðu máli. í skýrslu þeirra kemur fram að ótti um fjárhagslega af- komu sína einkenni íslenska tannpínu-sjúklinga. „Við þekkjum dæmi þess að fólk hafi fyllst algjöru von- leysi og sumir hafa jafnvel gripið til örþrifaráða. í því sambandi má nefna að stofn- un tveggja stjórnmálaflokka má rekja beint til hárra reikn- inga vegna tannviðgerða," sagði Paul Houseman, er stjórnaði rannsókninni. Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.