Pressan - 03.05.1991, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR PRESSAN 3. MAl' 1991
11
A
^^Mstæðan fyrir því að Sighvat-
ur Björgvinsson er ráðherra er
þessi: Þegar Jón Baldvin Hanni-
balsson átti eftir að
útdeila heilbrigðis-
og tryggingaráðu-
neytinu leit hann yf-
ir þingflokkinn og sá
að Sighvatur var sá
eini sem var í
fatla . . .
v
ið stjórnarmyndun mun
Davíö Oddsson hafa verið búinn
að gefa sjávarútvegsráðuneytið eftir
til Alþýðuflokksins.
Og ráðherraefni Al-
þýðuflokksmanna
var Jón Sigurðs-
son, sem mun hafa
la£t áherslu á að fá
einnig hluta af verk-
efnum viðskipta-
ráðuneytisins til að tryggja Alþýðu-
flokknum aðild að stjórnun efna-
hagsmálanna. Meirihluti þingflokks
sjálfstæðismanna, með Þorstein
Pálsson í broddi fylkingar tók
þessa ósk formannsins ekki í mál og
kratar máttu una því.. .
C
C^penna er nú á milli auglýsinga-
deildar Ríkisútvarpsins og frétta-
stofu Sjónvarpsins eftir kosninga-
sjónvarpið um síð-
ustu helgi. Auglýs-
ingadeildin telur
nefnilega^ að þeir
Bogi Agústsson
fréttastjóri og Helgi
E. Helgason, sem
hafði umsjón með
kosningasjónvarpinu, hafi klúðrað
auglýsingabirtingu í þvi. í ákafanum
að standa sig í samkeppninni við
Stöð 2 hafi þeir félagar nefnilega
hundsað það að birta umsamdar
auglýsingar og þannig kastað frá sér
auglýsingatekjum upp á tvær millj-
ónir króna. Þetta hefðu menn á
einkastöð líklega ekki leyft sér . . .
I*yrir skömmu var sett á svið á
Hótel íslandi skemmtidagskráin
Landið og miðin sem sýnd hefur
verið fyrir fullu húsi
í Hallarlundi í Vest-
mannaeyjum. Sýn-
ingin byggir á göml-
um slögurum og
massívum Vest-
mannaeyjahúmor.
Fyrir sýninguna á
Hótel íslandi var auglýst að útvarps-
maðurinn Siguröur Pétur Harðar-
son, sem sér einmitt um þáttinn
Landið og miðin á Rás 2, yrði kynnir
kvöldsins. Þegar hann mætti undir-
búinn til starfans kom hins vegar
babb í bátinn, því Vestmanneying-
arnir sem stóðu að sýningunni vildu
ekki gefa honum hljóðnemann. Að-
dáendur Sigurðar Péturs, sem mætt-
ir voru á staðinn, vildu hins vegar
meina að um alvarleg vörusvik væri
að ræða . . .
Liíklega getur Halldór Blöndal
þakkað Birni Bjarnasyni fyrir ráð-
herrastólinn. Eins og kunnugt er
vildi Davíð Odds-
son flest til vinna til
að fá Björn í ríkis-
stjórnina. Hann vildi
því að ráðherra-
skiptingin yrði
fimm-fimm í stað
fjögurra ráðherra frá
báðum flokkum. Sjálfstæðismenn
höfðu nefnilega fjóra ráðherra
klára; Davíð, Þorstein Pálsson,
Friðrik Sophusson og Ólaf G.
Einarsson. En þegar líða tók á átt-
aði Davíð sig á að hann gat ekki
fengið Björn samþykktan af þing-
flokknum. Þess vegna situr hann
uppi með Halldór Blöndal. Og
meira til. Því nokkrir þingmenn
flokksins telja sig allt eins eiga tilkall
til ráðherrastóls eins og Halldór.
Með tilraunum sínum til að koma
Birni í ráðherrastól hefur Davíð því
skilið nokkra þingmenn eftir móðg-
aöa. Ef ráðherranir hefðu bara verið
fjórir hefði enginn móðgast...
að vakti athygli að Jóhanna
Sigurðardóttir varaformaður Al-
þýðuflokksins tók ekki í mál að
bakka út úr félags-
málaráðuneytinu og
taka þess í stað heil-
brigðis- og trygg-
ingamálin. Jón
Baldvin Hanni-
balsson hafði gert
tillögu um að Karl
Steinar Guðnason yrði félags-
málaráðherra, en forystumenn í
verkalýðshreyfingunni höfðu lagt
áherslu á það í samtölum við for-
manninn. Afstaða Jóhönnu varð til
þess að Karl Steinar varð utan ríkis-
stjórnar og Eiður Guðnason varð
umhverfisráðherra. Krafa Jóhönnu
mun meðal annars hafa verið sú, að
gera Rannveigu Guðmundsdótt-
ur að umhverfisráðherra. Ef Jó-
hanna hefði samþykkt að verða
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
þá hefði Sighvatur Björgvinsson
líklega orðið umhverfisráðherra, en
Eiður Guðnason utan stjórnar . . .
i
nýju Mannlífi er að finna opin-
skátt viðtal við Karvel Páimason
fyrrverandi alþingismann, „Karvel,
Farvel". Karvel
kveður stjórnmálin
og Alþýðuflokkinn
og fjallar um kosti
og lesti á mönnum
og málefnum. Hanni
víkur að því sem*
hann kallar sam-
bandsleysi Jóns Baldvins Hanni-
balssonar við grasrótina og varpar
fram þeirri spurningu hvort Alþýðu-
flokkurinn verði innan tíðar án al-
þýðu...
TIL ÍBÚA í
REYKJAVÍK OG KÓPAVOGI!
Nú eru hafnar framkvæmdir við
lagningu 132.000 volta jarðstrengs
milli aðveitustöðvar við Meistara
velli í Reykjavík og aðveitustöðvar
á Hnoðraholti í Kópavogi. Með til-
komu þessa strengs eykst flutnings-
geta og rekstraröryggi veitu-
kerfisins enn til muna.
Fyrirhuguð strenglega kemur fram
á meðfylgjandi korti.
í Reykjavík verður lagt frá aðveitu-
stöðinni við Meistaravelli, eftir
Meistaravöllum, Kaplaskjólsvegi,
Ægisíðu, Starhaga, Suðurgötu,
Einarsnesi, Skeljanesi og fram í sjó í
Fossvogi, vestan flugbrautarenda.
Lagður verður sæstrengur yfir Foss-
voginn að enda Hafnarbrautar í
Kópavogi. í Kópavogi verður síðan
farið eftir Vesturvör, Kársnesbraut,
Nýbýlavegi, Bröttubrekku, Stút-
lautarvegi, Dalvegi, Reykjanesbraut
og í vegstæði væntanlegs Arnarnes-
vegar að aðveitustöðinni á Hnoðra-
holti.
Verklok eru áætluð um miðjan
ágúst í Reykjavík, og um miðjan
september í Kópavogi.
Rafmagnsveitan biður íbúa við
ofangreindar götur, svo og aðra
vegfarendur, velvirðingar á því
ónæði sem framkvæmdimar kunna
að valda.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34
108 REYKJAVlK SlMI 60 46 00