Pressan - 03.05.1991, Side 26

Pressan - 03.05.1991, Side 26
Amnesty International Manum ekkl kvarta þó þessi maður verði settnr á geðveikrahseli — hver sá sem kýs Reykjavík frekar en Síberíu er klikkað- ur, segir talsmaður samtak- anna um rússneska flugræn- ingjann. Ólafur Ragnar í útistööum við íslandsbanka Það má fá nt hvaða sknld sem er ef menn leika sér að forseadnnnm — segir Ólafur en bankinn hefur samt tekið af honum greiðslukortið og ávísana- heftið. Það er hægt að finna út einhverja skuld á heftinu ef þeir í bankanum gefa sér að ég ætli ekki að borga þetta síðar á árinu, segir Ólafur Ragnar. Endnr af tjðrninni hafa étið upp allt grasið fyrir framan stjórnarráðshúsið — virðast hafa elt Davíð Oddsson. Miklar gróðurskemmdir hafa orðið á grasbalanum fyrir framan Stjórn- arráð Islands. 18. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAD SEM BETUR HUÓMAR Fáni Reykjavíkur hafði verið dreginn að húni í Viðey þegar þessi mynd var tekin um há- degisbilið i gær. Sjáum til hvort við munum viðurkenna nýju ríkisstjórnina í Viðey — segir Steingrímur Hermannsson forsœt- isrádherra Reykjavík, 2. moí „Eftir framgöngu okkar ■ Litháen-máiinu þori ég ekki annað en segja að við munum kanna þetta mál til hlítar. Mér er hins vegar engin launung á því að mér er skapi næst að senda lögguna strax úti í Viðey og taka eyna af þess- um mönnum," sagði Stein- grímur Hermannsson for- sætisráðherra, aðspurður um viðbrögð ríkisstjórnar hans við myndun svokall- aðrar Viðeyjarstjórnar undir forsæti Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisfiokksins. „Lögum samkvæmt á Reykjavíkurborg Viðey svo við getum í sjálfu sér lítið gert. En ég vil minna á að til þess að komast út í eyna þurfa erlendir sendifulltrúar fyrst að fá vegabréfsáritun til Islands. Sjálfstæði Viðeyjar er því meira orðin tóm,“ bætti Steingrímur við. Borgarfulltrúi í Prag TÓLF ATKVÆÐUM FRÁ ÞINGSÆTI Á ÍSLANDI Prag, 2. maí „Þú segir fréttir,“ sagði Slavék Havenjék, borgar- fulltrúi Lýðræðisflokksins í Prag, höfuðborg Tékk- óslóvakíu, þegar GULA PRESSAN sagði honum frá því að einungis hafi munað tólf atkvæðum að hann hefði verið kjörinn á Al- þingi íslendinga í þing- kosningunum sem fram fóru fyrir tæpum tveimur vikum. Eins og kunnugt er eru ís- lensku kosningalögin snúin. Það vakti þó furðu þegar töl- fróðir menn komust að því að ef Heimastjórnarsamtökin hefðu fengið tólf atkvæðum meira á Norðurlandi vestra hefði farið af stað keðjuverk- un sem hefði leitt til þess að Slavék Havenjék hefði lent inn á þingi. Hann var þó ekki í framboði né er hann kjör- gengur, þar sem hann hefur ekki íslenskan ríkisborgara- rétt. ,,Eg varaði mjög við að eitt- hvað svipað þessu gæti gerst þegar lögin voru samþykkt árið 1983,“ sagði Þorvarður Helgason, prófessor og stærðfræðilegur ráðgjafi Al- þingis, í samtali við GULU PRESSUNA. ,,En þetta er ekki það versta sem gat kom- ið fyrir. Það er fræðilegur möguleiki á því að Saddam Hussein hefði náð kjöri ef sjálfstæðismenn hefðu unnið mann á Austurlandi." Slavék Havanjék. Tólf atkvæðum frá kjöri á Alþingi. Sértrúarsöfnuður i Póllandi trúir á Helga Pétursson og lærisveina hans í Ríó tríói. Sértrúarsöfnuður í Póllandi TELUR HELGA PÉ VERA MESSÍAS Varsjó, 3, maí „Fyrst þegar ég frétti af þessu kom þetta mér á óvart en ég er farinn ad venjast tilhugsuninni núna. Eg er jafnvel farinn ad kunna ágætlega við hana,“ sagdi Helgi Péturs- son, einn af liðsmönnum Ríó tríós, en eins og fram hefur komið í GULU PRESSUNNI trúir sértrú- arhópur í Póllandi að Helgi sé endurborinn Messías. „Ég veit ekki nlveg hvernig þeir fundu þetta út. Mér skilst að það tengist eitthvað fæð- ingarstað og stund, en ég er þó ekki alveg viss,“ sagði Helgi. Samkvæmt upplýsingum frá heimildarmanni GULU PRESSUNNAR í Póllandi hef- ur þessi hópur skreytt sam- komuhús sitt með myndum af Helga, auk þess sem þeir leika plötur Ríó tríósins undir helgiathöfnum. „I aðra röndina er þetta mjög ánægjulegt fyrir okkur félagana í tríóinu því það hef- ur opnast óvæntur markaður fyrir plöturnar okkar. Það er því ekki bara kvöl og pína að vera Messías," sagði Helgi. Málverkasýning sonar Steingrims var okkur dýrkeypt, segir Guð- mundur Bjarnason. Slœm útkoma framsóknar- manna í kosningunum Ástæðan er ekki Evrópu- málin heldur málverka- sýning sonar Steingríms — segir Guðmundur Bjarnason Húsavík, 25. apríl ---3---------------- „Eg held að menn hafi gert alltof mikið úr áhrifum af afstöðu okkar til Evrópu- bandalagsins í þess- um kosningum," sagði Guðmundur Bjarna- son þegar GULA PRESSAN leitaði álits hans á slæmri útkomu Framsóknar í kosn- ingunum. „Ég held að þeir sem fóru á málverkasýningu sonar hans Steingríms í Gallerí Borg viti betur," sagði Guðmundur. „Ég verð að segja það fyrir mig persónulega að ef ég hefði ekki verið í framboði sjálfur fyrir flokkinn hefði ég ekki kosið hann eftir að hafa litast um í galleríinu." Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfí, umbrotskerfi og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.