Pressan - 05.09.1991, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
Hlutabréf Flugleiða hafa verið að lækka í verði að und-
anförnu og nú er svo komið að í raun er ekki skráð neitt
kaupgengi á þau. Um leið er í gangi orðrómur meðal
hluthafa um að reksturinn í sumar hafi gengið mun verr
en gert var ráð fyrir og tekjusamdráttur sé verulegur.
Fyrirhuguðu hlutafjárútboði upp á 400 milljónir að nafn-
virði hefur ítrekað verið frestað og óljóst hvenær fyrir-
tækið treystir sér til að selja það hlutafé.
A sama tíma hefur hækkun bandaríkjadollars mjög
slæm áhrif á skuldastöðu félagsins sem skuldar gífurleg-
ar fjárhæðir í kjölfar endurnýjunar flugflotans. Allt gerir
þetta að verkum að menn velta nú mjög fyrir sér framtíð
félagsins.
Á stjórnarfundi í næstu viku er
gert ráð fyrir aó fyrir liggi sex mán-
aða uppgjör fyrirtækisins, staðfest
af endurskoðendum en ekki áritað.
Eftir því sem komist verður næst
verður tap af þeim liluta ársins. Er
það samkvæmt venju, því tekjur
Sigurður Helgason, fyrrverandi
stjórnarformaöur, taldi að félagið
yrði aö ná í 1,5 milljaröa í nýju hlutafé
og seldi siðan sitt.
Rugleiða koma vanalega inn seinni-
hluta árs. Talið er að tapið verði um
450—500 milljónir króna, sem er
svipuð staða og eftir fyrstu sex mán-
uði ársins 1990. Að sögn Einars Sit>-
urdssonar, blaðafulltrúa Flugleiða,
er afkoman 17,2% betri af reglu-
legri starfsemi ef miðað er við sama
tímabil í fyrra. Er þá miðað við
rekstrar- og fjármagnskostnað.
ORÐRÓMUR UM SLÆMA
STÖÐU EFTIR 8 MÁNUÐI
Næstu mánuðir á eftir skipta hins
vegar sköpum, en tekjur félagsins
koma aðallega inn yfir sumartím-
ann. Vanalega skilar félagið inn 9
mánaða uppgjöri þar sem staðan þá
kemur i Ijós. Nú þegar eru hins veg-
ar farnar að heyrast raddir um að
tekjumánuðirnir hafi komið illa út,
en þetta 9 mánaða uppgjör er ekki
tilkynnt formlega fyrr en í október.
„Hluthafar bíða núna spenntir eft-
ir því að heyra niðurstöðutölur frá
sumrinu, en orðrómur er á kreiki
um að rekstrartekjur félagsins hafi
orðið mun minni en gert var ráð fyr-
ir i sumar. Einnig er því haldið fram
að rekstur hótelanna og bílaleig-
unnar hafi komið illa út,“ sagði aðili
Flugstjórarnir Jóhannes Markússon og
magn hlutabréfa sem þeir hafa nú selt.
sem áður átti mikið hlutafé í Flug-
leiðum.
Ljóst er að Evrópuflugið hefur
ekki gengið samkvæmt rekstrar-
áætlun þrátt fyrir að farþegafjöldi
hafi aukist. Stafar það annars vegar
af því að aukningin var ekki eins
mikil og gert var ráð fyrir og hins
vegar því að Flugleiðir urðu að
lækka fargjöld vegna óvæntrar sam-
keppni.
URÐU AÐ LÆKKA
FARGJÖLDIN
í kjölfar gjaldþrots Arnarflugs á
síðasta ári ákvað Steingrímur 1 Sig-
fússon, þáverandi samgönguráð-
herra, að breyta reglugerð um leigu-
flug. Breytingin hafði í för með sér
að Flugleiðir fengu óvænta sam-
keppni á mikilvægum áætlunarleið-
um eins og til London og Kaup-
mannahafnar. Hafa Flugferðir-Sól-
arflug í eigu Gudna Þórdarsonar í
Sunnu nú flutt út 8.000 farþega á
þessum leiðum. Þó að hér sé að
Dagfinnur Stefánsson áttu verulegt
mörgu leyti um nýja farþega að
ræða, þ.e.a.s. fólk sem að öðru jöfnu
hefði ekki ferðast í ár, þá hefur þetta
orðið til að lækka verðið á markað-
inum.
Menn kunnugir í ferðamálum
segja að Flugleiðir hafi að meðaltali
orðið að lækka fargjöld á þessa staði
um 10.000 krónur á farmiða í maí,
júní og aftur í ágúst. Þetta sé meðal
annars ástæða fyrir tekjulækkun fé-
lagsins, en tæplega 40% af farþeg-
um þess fara á þessa staði.
,,Eg trúi ekki öðru en forráða-
menn Flugleiða reyni að fá núver-
andi samgönguráðherra til að
þurrka út reglugerðina, því nú hafa
aðrar ferðaskrifstofur væntanlega
gert sér grein fyrir þessum mögu-
leika. Guðni í Sunnu yrði einn til að
nýta sér þetta næsta sumar," sagði
maður úr ferðamálaiðnaðinum.
Margir telja hins vegar erfitt að snúa
til baka því nú þegar séu reglurnar
þrengri en í nágrannalöndunum.
BERJAST í AMERÍKUFLUGINU
ÞRÁTT FYRIR AÐ
RÁÐGJAFARNIR SEGI ANNAÐ
En heimamarkaðurinn er ekki
eini staðurinn þar sem Flugleiðir
þurfa að berjast í fargjaldastríði. í
Atlantshafsfluginu hefur verið mikil
samkeppni í sumar, meðal annars
frá flugfélögunum United Airlines
og American Airlines, sem hafa ver-
ið að brjótast inn á markaðinn. Hafa
heyrst sögur af ótrúlega lágum far-
gjöldum, allt niður í 199 pund eða
rúmlega 20.000 krónur fyrir farseðil
fram og til baka.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR hafa Flugleiðir orðið að
bjóða fargjaldalækkun á þessari leið
þannig að þeir fá aðeins um 27.000
til 30.000 krónur fyrir farseðilinn yf-
ir Atlantshafið að meðaltali, þ.e.a.s.
seðla selda í London.
Flugleiðamenn segja að Ameríku-
flugið hafi gengið vel það sem af er
árinu. Virðist það rétt ef tekið er
mið af sætanýtingu, en eins og áður
segir er erfitt að segja hvernig arð-
semin kemur út, meðal annars ef
tekið er tillit til verðstríðs.
Þá er rétt að benda á niðurstöðu
bandaríska ráðgjafarfyrirtækisins
Boston Consulting Group, sem fyrir
nokkrum árum tók út starfsemi fyr-
irtækisins. Var Flugleiðamönnum
þá ráðlagt að hætta að berjast á Atl-
antshafsmarkaðinum vegna þess að
fyrirtækið gæti í raun aldrei þrauk-
að í lágfargjaldastríði. Fyrst í stað
var ætlunin að fara eftir þessu, en
síðan varð skyndilegur umsnúning-
ur og hélt fyrirtækið áfram að berj-
ast þar.
DOLLARAHÆKKUNIN ÞÝÐIR
GENGISTAP UPP Á MILLJARÐ
ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU
í ársreikningum Flugleiða fyrir
1990 kemur fram að gengishagnað-
ur félagsins það ár var 1.127,2 millj-