Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
TRYGBINGAUHCNAR
Matthías
Bjarnason
sagðist geta
skrifað undir
yfirlýsingu
þess efnis að
hann hefði
heimilað
aukavinnuna
þegar hann
var ráðherra
trygginga-
HAFA HEIMILD
FRÁ RÁBHERRA
TIL AB SINNA
AUKAVINNU
VINNUTÍMANUM
'nianuniað *eta
Það var
Matthías
Bjarnason sem
gafBirni
Önundarsyni
heimild til að sinna
aukavinnu í
vinnutímanum.
Tryggingaráð hafði
óskað skýringa á
umfangi aukavinnu
tryggingalœknanna en
ráðið hefur nú fallið frá
þessum óskum sínum,
samkvœmt því sem for-
maður tryggingaráðs,
Jón Sæmundur
Sigurjónsson, segir.
Þegar Matthías Bjarnason var heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra veitti hann Birni Önundarsyni og öðrum
tryggingalæknum heimild til að stunda aukavinnu í
vinnutímanum og eins í húsnæði Tryggingastofnunar
ríkisins. Jón Sœmundur Sigurjónsson, formaður trygg-
ingaráðs, sagði að í ljósi þessara staðreynda hefði trygg-
ingaráð ekki frekari afskipti af aukavinnu trygginga-
lækna í vinnutímanum.
Áður hefur komið fram í PRESSUNNI að trygginga-
læknarnir stunda umtalsverða aukavinnu, og það í
vinnutímanum. Þar ber Björn Önundarson yfirtrygg-
ingalækni hæst. Ætla má að Björn hafi verulegar auka-
tekjur af því að meta örorku, en hann gerir það fyrir
tryggingafélögin. Heimildir PRESSUNNAR, innan Trygg-
ingastofnunar, segja að Stefán Bogason hafi einnig um-
talsverðar aukatekjur en þriðji læknirinn, Jón K. Jó-
hannsson, mun vera eftirbátur félaga sinna og hafa mun
minni aukatekjur.
Fyrrum formaður trj'ggingaráðs,
Bolli Héðinsson, skrifaði Birni Ön-
undarsyni bréf fyrir síðustu áramót,
þar sem hann bað um skýringar á
aukavinnu Björns. Svar Íæknisins
var nánast á þá leið að þar sem
hann hefði heimild ráðherra til að
sinna þessari umdeildu aukavinnu
teldi hann sér ekki skylt að svara
tryggingaráði neinu þar um.
MÁLINU ER LOKIÐ
Eftir að svar Björns lá fyrir sagði
Bolli Héðinsson í samtali við PRESS-
UNA að hann tæki svarið ekki giit
og málinu væri ekki lokið. Síðan
hafa orðið formannsskipti í trygg-
ingaráði og nýi formaðurinn, Jón
Sæmundur Sigurjónsson, sagði við
PRESSUNA að þar sem Matthías
Bjarnason, fyrrum heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, hefði sagt að
hann væri tilbúinn að skrifa undir
yfirlýsingu þess efnis að hann hefði
gefið læknunum heimild til að sinna
aukavinnu í vinnutímanum, og eins
í húsnæði Tryggingastofnunar, væri
málinu lokið af hálfu tryggingaráðs.
Þess ber að geta að þeir læknar,
sem störfuðu uppgefið hjá Trygg-
ingastofnun á undan þeim sem þar
eru nú, gátu einnig sinnt svipaðri
aukavinnu.
SKIPTIR MILLJÓNUM KRÓNA
Aukavinnan sem tryggingalækn-
arnir sinna í vinnutímanum og í hús-
næði Tryggingastofnunar er fyrst og
fremst mat á örorku. Þeir sem slas-
ast og eiga í málum við tryggingafé-
lögin þurfa á örorkumati að halda
áður en uppgjör bóta fer fram. Þess-
ir sömu læknar meta einnig örorku
viðkomandi sjúklinga fyrir Trygg-
ingastofnun, til að hægt sé að meta
örorkubætur til handa þeim sem
lenda í slysum.
Samkvæmt könnun sem PRESS-
AN hefur gert er Björn Önundarson
sá læknir sem sennilega afgreiðir
flest möt allra lækna. Ekki er unnt
að fá hjá tryggingafélögunum
hvernig mötin skiptast á milli lækn-
anna. Þeir sem rætt hefur verið við
segja að Björn skili inn tvö til þrjú
hundruð mötum á ári. Sumar heim-
ildir PRESSUNNAR segja að óhætt
sé að reikna með að Björn geri allt
að fimm hundruð örorkumötum á
ári. Fyrir hvert mat greiða trygg-
ingafélögin 25 þúsund krónur. Ef
hæsta talan er rétt er verið að tala
um aukatekjur upp á annan tug
milljóna króna.
Stefán Bogason mun skila af sér
eitt hundrað til eitt hundrað og
fimmtíu mötum á ári, eða fyrir á
þriðju milljón króna á ári. Jón K. Jó-
hannsson kemur langt á eftir þeim
Birni og Stefáni með innan við tíu
örorkumöt á ári.
Það eru fleiri læknar en læknar
Tryggingastofnunar sem meta ör-
orku. Um þá gegnir hins vegar tals-
vert öðru máli, þar sem þeir eru
með einkastofur úti í bæ og sinna
þessari vinnu þar, en ekki í vinnu-
tíma hjá ríkinu eða í húsnæði sem er
eign ríkisins.
UMFANGSMIKILL BISSNESS
Á sínum tíma óskaði tryggingaráð
þess að Björn gæfi ráðinu skýringar
á umfangi þessarar vinnu. Hann
svaraði, eins og áður hefur komið
fram, nánast engu.
Bolli Héðinsson, þáverandi for-
maður tryggingaráðs, sagði þá í
samtali við PRESSUNA, að svar
Björns hefði ekki verið fullnægj-
andi. í máli Bolla kom fram að lækn-
arnir hefðu stundað umtalsverða
aukavinnu, eða einkabissness.
Hann sagðist ekki viss um umfang
vinnunnar og einmitt þess vegna
hefði tryggingaráð óskað frekari
upplýsinga.
Bolii sagði að bréf Björns hefði
verið til tryggingaráðs og ekki til
birtingar í fjölmiðlum. PRESSUNNi
er kunnugt um að svar Björns þótti
ekki fullnægjandi þegar það barst,
enda tók Bolli undir það. Hann
bætti því við að unnið yrði að mál-
inu. Eins og áður kom fram telur nú-
verandi formaður enga nauðsyn á
því.
Þegar tryggingaráð óskaði svara
frá Birni var ráðuneytinu gert kunn-
ugt um málið. Eins var því tilkynnt
svar Björns Önundarsonar.
í viðtali sem PRESSAN átti við
Bolla Héðinsson kom fram að hann
hafði þær hugmyndir að ná þessum
aukatekjum iæknanna sem sértekj-
um fyrir Tryggingastofnun.
TEKJURNAR SÝNA EKKI
MIKLA AUKAVINNU
Samkvæmt skattskrá Reykjavíkur
hafa tryggingalæknarnir ekki haft
mikla aukavinnu. Árstekjur Björns
Önundarsonar voru á síðasta ári 3,2
milljónir króna, sem gera um 260
þúsund á mánuði. Árstekjur Jóns K.
Jóhannssonar voru 2.750 þúsund
krónur, eða 230 þúsund á mánuði.
Stefán Bogason gaf upp rúmlega 2,1
milljón í tekjur á síðasta ári, eða 175
þúsund á mánuði.
Ef mið er tekið af uppgefnum tekj-
um læknanna virðist sem þeir gefi
ekki upp alla þá aukavinnu sem þeir
inna af hendi.
BJÖRN OG MATTHÍAS
GAMLIR VINIR
Matthías Bjarnason og Björn Ön-
undarson eru gamlir vinir. Þegar
Matthías var að berjast til að ná
fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna á
Vestfjörðum var Björn héraðslækn-
ir á Flateyri. Björn var einhver
tryggasti stuðningsmaður Matthías-
ar í kjördæminu og er hans þáttur
ekki talinn lítill í þeirri baráttu sem
Matthías háði fyrir sæti sínu.
Eftir að Matthias varð ráðherra
tryggingamála skipaði hann hinn
gamla vin sinn yfirtryggingalækni.
Sigurjón Magnús Egilsson