Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 9

Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 9 Forstjóri Flugleiða, Sigurður Helgason, þarf nú að glíma við erfiðan hlutabréfamarkað um leið og hann hefur sagt að það þurfi að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækisins. erktakafyrirtækið Gunnar og Guðmundur fékk ágætt verkefni á vegum Kópavogsbæjar í sumar, en það voru fram- kvæmdir við götuna Vesturvör. Þess skal getið að annar eig- enda fyrirtækisins er Gunnar I. Birg- isson, formaður bæjarráðs í Kópa- vogi. Gunnar og Guðmundur buðu tíu milljónir króna í verkið. Þegar upp var staðið reyndist kostnaður- inn til muna hærri, eða 16 milljónir króna, sem þýðir að verktakinn Gunnar 1. Birgisson fékk greiddar sex milljónir umfram það sem hann bauð í verkið. Meðal þeirra sem gáfu grænt ljós á þessa auknu greiðslu var Gunnar I. Birgisson, for- maður bæjarráðs . . . N JL ^ ýtt kvótaár hófst um síðustu mánaðamót. Það eru fleiri en karlar sem fást við útgerð. Guðrún Lárus- dóttir, útgerðarmaður í Hafnar- firði,jgerir út tvo togara, frystitogar- ann Ymi og Rán. Samtals hafa togar- ar Guðrúnar 3.700 tonna kvóta sem mundi kosta nálægt 600 milljónum króna væri hann seldur... ónir króna, sem aðallega stafaði af lækkun á gengi bandaríkjadollars. Um 85% af skuldum félagsins eru í dollurum. Þetta var mikil breyting frá því árið á undan en þá nam gengistap 777 milljónum króna. Þessar upphæðir eru á verðlagi hvers árs. I ár hefur þróun dollarsins hins vegar verið fyrirtækinu ákaflega óhagstæð, en dollarinn hefur hækk- að um 10,1 % frá áramótum. Út frá skuldastöðu fyrirtækisins, sem skuldaði 11.263 milljónir um síðustu áramót, má ætla að gengistap þess, það sem af er árinu, nemi nú um 1.058 milljónum króna. Þetta er bókfært sem tap í reikninga Flug- leiða og rýrir að sjálfsögðu eiginfjár- stöðu fyrirtækisins. Það sem er hins vegar alvarlegra fyrir afkomu félagsins er þróun Evr- ópugjaldmiðla gagnvart islensku krónunni, en þaðan koma tekjur fé- lagsins. Evrópska mynteiningin ECU hefur lækkað um 4,4% gagn- vart íslensku krónunni síðan um áramót. HLUTABRÉFIN FALLIN ÚR A-FLOKKI í síðustu viku gerðust óvenjulegir hlutir varðandi hlutabréf Flugleiða. Eftir jafna og stöðuga hækkun frá því bréfin voru skráð á almennum hlutabréfamarkaði féllu þau í verði. Hlutabréfasalar segja að lækkunin sé upp á 2% í síðustu viku en það segir ekki alla söguna. Verðbréfa- fyrirtækin taka nú aðeins við hluta- bréfunum í umboðssölu, sem þýðir að í raun er ekkert gengi skráð á þau. Þetta þýðir að verðbréfafyrir- tækin treysta sér ekki til að kaupa hlutabréfin í eigin reikning vegna þess að þau óttast gengisfall á þeim. Þetta er mikil breyting frá því sem var þegar menn biðu í röðum eftir að kaupa hlutabréfin. Á köflum tengdist það reyndar valdabaráttu innan félagsins. Nú geta eigendur bréfanna ekki gengið inn í verð- bréfafyrirtækin og fengið þau greidd samstundis eins og er enn með Eimskipabréfin. Sumir vilja tala um að bréfin séu fallin úr Á- flokki íslenskra hlutabréfa. Verðbréfasalar sem við er rætt vilja ekki gera mikið úr þessari lækkun — segja að um sé að ræða eðlilega aðlögun á markaðinum. Skýring Flugleiðamanna er af svip- uðum toga. PRESSAN heyrði hins vegar frá manni nákomnum fyrir- tækinu að ekki yrði séð fyrir end- ann á lækkun bréfanna — hefur því verið spáð að þau eigi eftir að lækka enn frekar á næstu dögum. Ef það er staðreyndin eru Flug- leiðir að ganga í gegnum svipaða hluti og evrópsk flugfélög. Má sem dæmi taka að um mitt sumar lækk- uðu hlutabréf í hollenska flugfélag- inu KLM um 50% og bréfin í Luft- hansa um þriðjung. Sömuleiðis hafa hlutabréf SAS lækkað verulega. HEIMILDIN TIL IÍLUTAFJÁRAUKNINGAR ENN ÓNOTUÐ í ársskýrslu Flugleiða má lesa í ávarpi fráfarandi stjórnarformanns, Siguröar Helgasonar, að hann telur að fyrirtækið verði að ná sér í nýtt hlutafé upp á 500 milljónir króna að nafnvirði. Þáð hefði fært fyrirtæk- inu um 1,5 milljarða ef miðað er við sölugengi þá. Á aðalfundi fyrirtækisins fékk síð- an stjórn þess heimild til að hefja hlutafjárútboð upp á 400 milljónir króna. Það útboð átti að verða á al- mennum markaði en ekki lokað eins og var með hlutafjáraukning- una í fyrra. í fyrstu var gert ráð fyrir að ráðist yrði í hlutafjáraukninguna í vor en æ. yrir vestan haf er til félagsskap- ur er nefnist Félag Sameinuðu þjóð- anna í Bandaríkjunum. Þessa dag- ana er að líða frestur til að skila inn svör- um í skoðanakönn- un félagsins, þar sem spurt er hvaða einstaklingur við- komandi vilji að taki við af Perez de Cuellar sem aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Könnunin fer þannig fram að birtur er listi með nöfnum 16 einstaklinga sem mest er talað um í stöðuna, en einnig gefinn kost- ur á að nefna önnur nöfn. Skemmst er frá því að segja að félagið sá enga ástæðu til að hafa Steingrím Her- mannsson á listanum, en eins og PRESSAN hefur greint frá viðraði Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra þann möguleika fyrir vestan að Steingrímur hlyti stöð- una. Augu manna í ofangreindu fé- lagi beinast hins vegar að fólki eins og Gro Harlem Brundtland, leið- toga jafnaðarmanna í Noregi, Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkja- forseta, Eduard Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkj- ana, Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, Sa- ruddin Aga Khan, prins frá íran, og Pehr Gustaf Gyllenhammar, stjórnarformanni Volvo í Sví- þjóð ... stöðugur dráttur hefur orðið á því. Þar sem svo mikil óvissa ríkir með gengi hlutabréfanna í dag má telja líklegt að framkvæmdinni verði frestað enn um sinn. GÍFURLEG FJÁRFESTING VELDUR ÓVISSU Flugleiðir hafa staðið í gífurlegum fjárfestingum á undanförnum árum. Félagið hefur endurnýjað allan millilandaflugflotann hjá Boeing, keypt fjórar 737-400-vélar og þrjár 757-200-vélar. Síðustu vélarnar komu í vor. í júlí í fyrra seldi félagið síðan inn- anlandsflugflotann, fimm Fokker F-27-flugvélar, fyrir 7,5 milljónir dollara. Vélarnar voru síðan leigðar og um leið undirritaður samningur um kaupleigu á fjórum Fokker 50-vélum. Flugleiðamönnum er tamt að tala um ágæti þessara fjárfestinga og hafa ýmislegt til síns máls. Þeir gerðu samninga um kaupin á tiltölu- lega hagkvæmum tíma og seldu eldri vélar á þeim tíma þegar enn var hægt að fá verð fyrir þær. Innan flugheimsins er hins vegar bent á að svo mikilfengleg endurnýjun sé fá- tíð — einfaldlega af því að ekkert fé- lag vilji leggja öll eggin í sömu körfu. Vegna þróunarinnar í flug- heiminum er mikill fjöldi flugvéla til Samkeppni við Guðna i Sunnu hefur þýtt tekju- minnkun af Evrópufluginu. sölu og hefur markaðsverð þeirra fallið, sem hefur að sjálfsögðu haft áhrif á verðmæti flugflota Flugleiða. Spár um það í upphafi ársins hafa gengið eftir. Það er því spurning hvernig félag- ið gæti brugðist við samdrætti í rekstrartekjum eins og blasir við. Sala flugvéla er tæpast æskileg vegna lækkunar á markaðsverði en spurning hvaða valkosti félagið á — sérstaklega ef það getur ekki sótt betri eiginfjárstöðu inn á íslenskan hlutabréfamarkað. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.