Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 22

Pressan - 05.09.1991, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991 ÞESSI NÖFN VORU LESIN UPP Vigdís Finnbogadóttir forseti. Steingrímur Hermannsson, fyrr- um forsætis- og utanríkisráöherra. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra. Ólafur Ragnar Grimsson, fyrrum fjármálaráðherra. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og fyrrum borgarstjóri. Halldór Laxness rithöfundur. Kristján Jóhannsson óperusöngv- ari. Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnu- maður. Kristján Arason handboltamaður. Einar Vilhjálmsson spjótkastari. Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maö- ur heims. Jóhann Hjartarson skakmaður. Helgi Tómasson, ballettdansari og danshöfundur. Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda- gerðarmaður, Joe Grímsson 1<aupsýslumaður. Björk Guðmundsdóttir rokksöng- kona. Ólafur Jóhann Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjá Sony. Hólmfriður Karlsdóttir, ungfrú heimur 1985 Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur 1988. Við eigum heimsfrægan forseta, heimsfrægan óperusöngvara, heimsfrægan spjótkastara, heimsfrægan skákmann, heimsfrægan sterkasta manninn, heimsfrægan kvikmyndaleikstjóra, heimsfrægt Nóbelsskáld. Iwcuf? „ Sagðirðu Kristjan Johanns- son? Getur verið að hann sé leikari?“ spurði einn af níu rit- stjórum þekktra erlendra tíma- rita og dagblaða sem PRESSAN ræddi við og spurði hvort þeir þekktu einhver íslensk nöfn, annaðhvort af sjálfsdáðum eða við að heyra nöfnin nefnd. „Getur ekki verið að það sé mikið um svart grjót í landslag- inu?“ spurði annar þegar spurt var um ísland almennt. Af átta ritstjórum í Evrópu og einum í Bandaríkjunum gátu þrír nefnt (Vigdísi) Finnbogadóttur af sjálfsdáðum og tveir (Stein- grím) Hermannsson. Og í huga ritstjóranna komu helst upp myndir af spúandi hverum og leiðtogafundinum í Höfða. íslendingum er annt um orðstír landans í útlöndum, en ekki er alltaf gott að segja til um hvort til- teknir einstaklingar séu raunveru- lega heimsfrægir eða bara plat- frægir, í anda Garðars Hólm. PRESSAN hringdi í hóp ritstjóra •þekktra erlendra dagblaða og tímarita í Evrópu og Bandaríkjun- um og spurði hvort þeir þekktu einhverja Islendinga og hvað þeir vissu um ísland. Okkur tókst að ná tali af átta stykkjuin í Evrópu og einum í Bandaríkjunum. Astæðan fyrir rýrri uppskeru vestanhafs er einföld; hátt settir menn þar voru ekki til viðtals (vandlega verndaðir af riturum og PR-fólki) eða höfðu ekki áhuga á að taka þátt í gamninu. Voru kannski óhóflega meðvitaðir um fákunnáttu sína. Vildu láta skrifa sér bréf með formlegri beiðni um viðtal. KRISTJAN JÓHANNSSON: 0 - EGILL SKALLAGRÍMSSON: 1 Viðmælendur PRESSUNNAR voru ritstjórar þriggja franskra blaða, tveggja enskra, eins ítalsks, eins spænsks og eins bandarísks. Fyrst voru þeir spurðir hvort þeir gætu af sjálfsdáðum nefnt ein- hverjar persónur frá íslandi. Þrír gátu hjálparlaust nefnt Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Tveir nefndu Steingrím Hermannsson. Englendingarnir nefndu báðir Magnús Magnússon sjónvarps- mann, annar þeirra reyndar með aðstoð félaga sins. Eitt atkvæði í fyrstu atrennu hlutu Guðni Bergs- son, Davíð Oddsson, Egill Skalla- grímsson og Sveinn Björnsson for- seti. í sjálfu sér varð uppskeran ekki miklum mun meiri þegar lesin voru upp nöfn íslendinga sem ástæða er til að ætla að gætu hljómað kunnuglega í útlandinu. Sumir stöldruðu við nafn Kristjáns Jóhannssonar; einum datt í hug að hann væri leikari, öðrum að hann væri íþróttamaður. Tveir kveiktu strax á nafni Halldórs Lax- ness. Einn skaut rétt á að Jón Baldvin væri ráðherra, annar taldi að hann væri leiðtogi stjórnarand- stöðunnar. Og við upplesturinn fengu eitt atkvæði hver Davíð Oddsson, Vigdís Finnbogadóttir, Ásgeir Sigurvinsson og Helgi Tóm- asson. Sjálfsagt hefði Helgi Tómas- son fengið fleiri tilnefningar ef rit- stjórar vestanhafs hefðu tekið sím- ann. Þegar spurt var um ísland al- mennt var þekkingin meiri, en þó ærið misjöfn. Efst í huga flestra var leiðtogafundur Reagans og Gorbasjovs og að hér væru hverir. FALLEGT LANDSLAG MEÐ SPÚANDI HVERUM SERGE LAFAURIE, annar aðalrit- stjóra franska tímaritsins Le nou- vel OBSERVATEUR, þekkti engan íslending. Hann hikaði við þegar hann heyrði nafn Kristjáns Jó- hannssonar, sagðist hafa heyrt nafnið, en gaeti ekki sagt í hvaða sambandi. ,,Ég veit mjög lítið um íslendinga og ísland. Hef bara heyrt að það sé frábært land að koma til, með fallegu landslagi, spúandi hverum og fleiru. Ég gæti vel hugsað mér að fara til íslands, en ég held að þekking almennings á landinu sé afar takmörkuð." JOCHUM SCHILDT, ritstjóri er- lendra málefna hjá þýska tímarit- ■o c >- O) 83 0) -c N 0) C E O «3 1 = = E « 3 c a C </) O 2.5 X LU

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.