Pressan - 05.09.1991, Page 19
Við höldum einíaldlega áfram að ðjóða framúrskarandi
sjónvarpsefni sérstaklega valið fyrir áskrifendur okkar
Afi snýp aftup!
Afi hefur verið í sumarfríi undanfarið,
en nú snýr hann aftur fjallhress að vanda.
Afi kemur aftur á skerminn laugardaginn
28. september og heldur áfram að
skemmta börnunum eins og honum
ereinum lagið.
Paiastrákar
er sannsöguleg mynd um óhugnanleg;
skipulagt fjárglæfraspil ungs manns,
sem lýst var sem samviskulausu -
skrímsli. Fyrri hlutinn verður sýndur
sunnudagskvöldið 22. september
en seinni hlutinn kvöldið eftir.
Leikið tveimur skjöldum
heitir hörku njósnamynd í tveim þáttum og fjallar
um njósnara sem selur Rússum upplýsingar og
flækir um leið vini og ættingja í net stórhættulegra
og illskeyttra njósnamála. Fyrri þátturinn verður
sýndur sunnudagskvöldið 8. september, hinn
seinni þriðjudagskvöldið 10. september.
Fimm og iuröudýrið
Sögurnar um furðudýrið og fimm káta
krakka, er myndaflokkur sem nú hefur
göngu sína á Stöð tvö. Myndaflokkurinn
er eitt allra vinsælasta framhaldsefni
sem gert hefur verið á vegum BBC.
Það tók tæknilið BBC átta vikur að
fullgera furðudýrið, sem er stjórnað
af sex mönnum. Fimm og furðudýrið
mæta í fyrsta sinn laugardagsmorguninn
14. september.
Réttur Rosie O'Neili
í þessum nýju þáttum fylgjumst við með lífi Rosie, sem hefur sagt skilið við
eiginmann sinn og lögfræðiskrifstofuna sem þau þyggðu upp saman. Hún fær sér
vinnu á ríkisrekinni lögfræðistofu, sem sinnir vandamálum þeirra sem minna mega
sín. Þessi þættir hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda, bæði fyrir leik og vönduð
vinnubrögð. Þessir vikulegu þættir hefjast miðvikudagskvöldið 11. september.
Á ooröonslóöont
Nýr og gamansamur myndaflokkur,
sem náði strax miklum vinsældum
í Bandaríkjunum. Hann segir frá
ungum lækni, sem gerir sitt besta
tilþess að aðlagast daglegu lífi
smábæjarins Cicely þar sem
nútíma þægindi skipa ekki efsta
sess í hugum þorpsbúa. Þessi
vikulegi gamanþáttur fer af stað
laugardagskvöldið 7. september.
Indiana Jones
og síðasta krossferöin
Frábær kvikmynd frumsýnd laugardaginn
7. september.
Guð blessi barnið, Fjölskylduflækja,
Ódæðið, Dýragrafreiturinn, Refskák,
Lokaslagurinn og Mannvonska,
allt góðar myndir sem verða á dagskrá
í september.
Relgíski sérvitringuring
Hercule Poirot
Nú fara einkaspæjarinn frægi Hercule
Poirot og sérlegur aðstoðarmaður hans
Hastings aftur á kreik í tíu vönduðum
þáttum. Að vanda fæst Poirot við nýtt
og dularfullt mál í hverjum þætti.
Sá fyrsti verður á dagsskrá
sunnudagskvöldið 22. september.
Klassfskir þættir um Poirot og Hastings.
Engin vetrardagsskrn
- einialdlega gott sjónvarpseíni