Pressan - 05.09.1991, Side 23
23
Halldór Kiljan Laxness Nóbelsskáld.
IMafnið virðist gleymt, en eitthvað
örlaði á því að menn vissu til þess að
íslendingur hefði hlotið bókmennta-
verðlaun Nóbels.
inu STERN, mundi engin nöfn.
Hann vissi þó að við hefðum
kvenkyns forseta og áttaði sig á
Ásgeiri Sigurvinssyni þegar hann
heyrði starfið nefnt. ,,Hvað veit ég
um ísland? Ég kom til landsins fyr-
ir 10 árum en veit samt ósköp lítið
um það. Þarna var leiðtogafundur,
þarna er herstöð Atlantshafs-
bandalagsins og miklar fiskveiðar.
Ég gerði reyndar kvikmynd um
fiskveiðivandamálið. ísland er lítil
eyja þar sem kona er forseti og
öðlaðist sjálfstæði frá Danmörku.
Og held ég að þá sé allt upptalið!"
ALEX FINER, ritstjóri hjá tímarit-
inu ESQUIRE i Englandi, mundi
ekki eftir neinu íslensku nafni, en
eftir að hafa kallað til félaga síns
nefndi hann (Guðna) Bergsson
knattspyrnumann hjá Tottenham
og Magnús Magnússon sjónvarps-
mann.
Þegar rennt var yfir nafnalistann
sagðist Alex hafa heyrt nafnið
Kristján Jóhannsson nefnt, en
mundi ekki af hverju. Þegar listinn
var hálfnaður var blaðamaðurinn
stöðvaður. ,,Ég trúi að þú hafir
sýnt fram á það með áþreifanleg-
um hætti hversu þekking mín á ís-
landi er lítil."
Það eina sem kom upp í huga
Alex frammi fyrir miklum þrýst-
ingi blaðamannsins var orðið
„fiords" (firðir).
ER EKKI SVART GRJÓT í
LANDSLAGINU?
DANIEL VERNET, ritstjóri er-
lendra frétta hjá franska dagblað-
inu LE MONDE, þekkti strax við
upplesturinn Vigdísi Finnbogadótt-
ur og Steingrím Hermannsson.
Hélt þó að Steingrímur væri enn
forsætisráðherra. Hann kannaðist
við Oddsson þegar blaðamaðurinn
bætti stöðuheiti Davíðs við. ,,Já,
auðvitað, þetta vissi ég,“ sagði
hann. Þá vissi Daniel að Jón Bald-
vin var ráðherra en ekki hvaða
málaflokks. Loks var hann örugg-
ur á Halldóri Laxness.
Onnur nöfn á listanum voru
Daniel ókunn. Hann sagðist helst
geta nefnt ísland í sambandi við
viðræður EFTA og EB um evr-
ópskt efnahagssvæði og stöðu ís-
lands og taldi þekkingu almenn-
ings í Frakklandi um Island og ís-
lendinga mjög takmarkaða. „Ég er
hræddur um að fyrir utan gos-
hverina ykkar og heitu laugarnar
sé það ekki margt sem fólk veit
um."
MARILO RUIZ DE ELVIRA, rit-
stjóri erlendra frétta hjá EL PAIS í
Madríd. vissi um Finnbogadóttur,
forseta íslands, og hver hefði verið
fyrsti forsetinn, Sveinn Björnsson!
,.Ég man líka að maður frá ís-
iandi hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels. en nafnið man ég ekki al-
veg." Þegar nafn Halldórs Laxness
var nefnt kveikti hún strax á per-
unni og bætti við frá eigin brjósti:
..Alveg rétt. Hann heitir líka Kiljan
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
Jón Páll Sigmarsson, vor heimsfrægi
sterkasti maöur heims. Enginn hafði
heyrt hans getiö.
er það ekki?“ Hún kannaðist loks
við nafnið Oddsson en vissi ekki
af hverju.
„Ég veit ekki mikið um ísland.
Þið hafið fleiri konur á þingi en
við og, jú, nú man ég að Reagan
og Gorbasjov hittust hjá ykkur. Ég
sá það í sjónvarpinu og tók eftir
að það var mjög kalt. Er það ekki
rétt munað? Ég man síðan eftir
einhverjum landslagsmyndum,
getur ekki verið að það sé mikið
um svart grjót í landslaginu?"
FREDERIC JOIGNOT, ritstjóri
franska tímaritsins ACTUEL, þekkti
enga íslenska einstaklinga, en
þótti nafn Kristjáns Jóhannssonar
Kristján Jóhannsson, vor heimsfrægi
óperusöngvari. „Er hann ekki leik-
ari?" spurði einn. „Er hann ekki
íþróttamaöur?" spurði annar. Rit-
stjóri ítalska dagblaðsins La Repu-
blica þekkti ekki nafnið.
legar drykkjutímareglur og öflug-
an Kvennalista. Það skal tekið
fram að Daniel Franklin var hér á
landi þegar leiðtogafundurinn var
haldinn 1986.
„FORSÆTISRÁÐHERRA
YKKAR ER KONA“
PAOLO GARIM BERDI, ritstjóri
erlendra frétta hjá dagblaðinu LA
REPUBLICA í Róm, mundi engin
íslensk nöfn, hvorki með né án
aðstoðar. Þó fannst honum nafn
Kristjáns Jóhannssonar hljóma
kunnuglega, en gat ekki sett það í
Einar Vilhjálmsson, vor heimsfrægi
spjótkastari. Nafn hans kveikti á eng-
um perum.
nefndri stórborg, taldi sig vita að
forsætisráðherra íslands væri
kona! („Ó, var það forseti, já auð-
vitað.") Hann nefndi einnig að
hann vissi til þess að íslendingur
hefði eitt sinn hlotið bókmennta-
verðlaun Nóbels.
Þegar farið var yfir listann með
Kosner kveikti hann á nafni Vig-
dísar og spurði hvort hún væri
ekki einmitt kvenforsetinn. Og um
leið og nafn Helga Tómassonar
var nefnt fékk PRESSAN smáfyrir-
lestur um Helga. „Hann stjórnar
San Francisco-ballettinum. Það
kemur grein um hann í blað okkar
eftir tvær vikur. Ég hefði samt
kannast vel við nafnið þar fyrir ut-
an, því hann var lengi hjá New
York City Ballet."
Kosner kveikti ekki á öðrum
nöfnum. „Hvað get ég nefnt um
ísland? Reykjavík, Keflavík. Ice-
land Air var með ódýrustu far-
gjöldin fyrir mörgum árum. Bobby
Fischer háði einvígi á íslandi.
Landið var norsk eða dönsk ný-
lenda sem hlaut sjálfstæði fyrir lif-
andi löngu. í seinni heimsstyrjöld-
inni komu skipalestir við á Islandi.
Frú Vigdís Finnbogadóttir og Stein-
grímur Hermannsson. Meðal rit-
stjóra heimsblaðanna eru þau hin
einu sem komast svo heitið geti á
blaö. Þrír nefndu Vigdísi hjálparlaust.
Fleiri vissu að þjóðhöfðinginn væri
kvenkyns. Tveir nefndu Steingrím,
annar þeirra hélt að hann væri ennþá
forsætisráðherra.
hljóma kunnuglega. „Getur verið
að hann sé leikari?"
Eins og með Alex Finer var
blaðamaður stöðvaður þegar upp-
lestur listans var hálfnaður. „Mér
þykir það leitt, en ég þekki engan
frá landinu ykkar." Undir þrýstingi
kveikti hann þó loks á nafninu
Sugarcubes sem rokkhljómsveit.
BRETINN Á ECONOMIST KOM,
SÁ OG SIGRAÐI
DANIEL FRANKLIN, ritstjóri evr-
ópskra málefna hjá THE
ECONOMIST í London, sýndi hins
vegar fram á talsverða þekkingu á
landi og þjóð. Án aðstoðar nefndi
hann Oddsson sem fyrrverandi
borgarstjóra og núverandi forsæt-
isráðherra, nefndi Finnbogadóttur,
en var ekki viss hvort hún væri
enn forseti, og nefndi Hermanns-
son fyrrverandi forsætisráðherra.
Hann nefndi einnig Magnús Magn-
ússon og meira að segja „Egil
from the sagas", sagðist hafa lesið
nokkrar íslendingasögur.
Þá mundi hann eftir að við
hefðum átt „Ungfrú heim" „með
gælunafni" og kveikti strax á per-
unni þegar nafn Hófíar var nefnt.
Loks vissi hann af einhverjum Is-
lendingum í ensku knattspyrn-
unni, en mundi ekki nöfn.
Af listanum fannst honum nafn
Jóns Baldvins Hannibalssonar
kunnuglegt, taldi líklegt að hann
væri leiðtogi stjórnarandstöðunnar
eða fyrrum forsætisráðherra. Önn-
ur nöfn kannaðist hann ekki við
nema hvað hann rámaði í nafn
Kristjáns Jóhannssonar og „er
hann ekki íþróttamaður"?
Um ísland vissi hann talsvert,
nefndi hveri, hreint loft, fiskveiðar,
þorskastríð, mjög lítið þinghús en
elsta þing heims, leiðtogafundinn,
Höfða, undarlega fiskrétti, undar-
Björk Guömundsdóttir, vor heimsfræga rokksöngkona. Einn viðmælenda
rankaði viö sér þegar Sugarcubes voru nefndir.
samhengi og breytti engu þótt
hann fengi að vita að Kristján
væri á menningarsviðinu.
„Þú afsakar, en ég er hræddur
um að ég viti afar lítið um málefni
íslands. Ég minnist leiðtogafundar-
ins hjá Reagan og Gorbasjov.
Gamall vinur minn var sendiherra
í Reykjavík fyrir mörgum árum og
hann sagði að Island væri mjög
þægilegt land að búa í, kannski
dálítið leiðigjarnt, en þægilegt."
EDWARD KOSNER, aðalritstjóri
tímaritsins NEW YORK í sam-
Þarna eru hverir og ungt fólk fjöl-
mennir á marga skemmtistaði. Og,
jú mikið rétt, þárna var leiðtoga-
fundurinn haldinn. Þótt ég rembist
man ég ekki eftir fleiru. Eg er
hræddur um að ísland sé ekki of-
arlega í hugum fólks hér. Það rugl-
ar landinu gjarnan saman við
Grænland og sér fyrir sér ísbreið-
ur."
Friðrik Þór Guömundsson ásamt
Margréti Elisabetu Ólafsdóttur
I—lyfsalar hafa kvartað sáran und-
an afkomu sinni síðustu vikurnar. í
nýjasta blaði Frjálsrar verslunar er
að finna lista yfir
tekjuhækkun lyfsala
á milli áranna 1989
og 1990. Þar kemurí
ljós að tekjur þeirra
hækkuðu um 26
prósent, það er
raunhækkun um-
fram verðbólgu. Á milli áranna 1988
og 1989 varð raunhækkun á tekjum
apótekara 18 prósent, þannig að af
þessu má sjá að þetta ágæta fólk
hefur fengið þokkalega hækkun á
síðustu árum. í úttekt Frjálsrar versl-
unar er miðað við meðalhækkun tíu
lyfsala, þar má finna nöfn eins og
Werner Rasmusson í ingólfsapó-
teki og Jón Björnsson, en hann er
formaður apótekarafélagsins . . .
s
fc^Jtuðningsmenn Vals í knatt-
spyrnu eru flestir afar óánægðir
með að lið þeirra tapaði fyrir Víði
um síðustu helgi.
Sárafáir mættu til að
horfa leikinn, sem
háður var á heima-
velli Vals, Hlíðar-
enda. Leikmenn
Vals þóttu áhugalitt-
ir og daufir. Þegar
spurðist út að þeir hefðu verið að
skemmta sér fram á fimmtudags-
morgun, nóttina eftir að þeir hömp-
uðu Mjólkurbikarnum, urðu stuðn-
ingsmennirnir æfir. Eins og kunnugt
er á Valur í mikilli fallbaráttu og því
þótti stuðningsmönnum liðsins sjálf-
sagt að Ingi Björn Albertsson
þjálfari og hans menn tækju leikinn
við Víði af fullri alvöru en mættu
ekki hálftimbraðir til leiks . . .
✓
^^^lsarar hafa löngum haft úr
fleiri sjónvarpsstöðvum að velja en
flestir aðrir. Það er vegna þess að til
margra ára hefur verið rekin sjón;
varpsstöðin Villa-Vídeó í Ólafsvík. í
fyrstu var Villa-Vídeó sjóræningja-
stöð, það er áður en sjónvarpsrekst-
ur var gefinn frjáls. Villa-Vídeó er
með kapalkerfi, sem nánast hvert
einasta hús á staðnum er tengt við.
Nú dreifir stöðin átta sjónvarpsrás-
um; Ríkissjónvarpinu, Stöð 2, fimm
gervihnattarásum og sérstakri kvik-
myndarás, samskonar rás og
Villa-Vídeó var með á árdögum fyr-
irtækisins. Eigandi Villa-Vídeós er
Vilhelm Árnason. Vegna kapalkerf-
isins eru mjög fá sjónvarpsloftnet í
Ólafsvík ...
F
JLJitt þeirra fyrirtækja sem keppa
á sorphirðumarkaðinum er dóttur-
dótturfyrirtæki Eimskips, Hirðir hf.
Aðaleigandi Hirðis
er Hafnarbakki hf.
Þar sem Hörður
Sigurgestsson og
félagar hjá Eimskip
hafa þótt stórtækir í
viðskiptalífinu, og
teygt arma sína
víða, hafa starfsmenn Eimskips haft
það í flimtingum að réttast væri að
gamli risinn, Eimskip, fengi nafn
dótturdótturfyrirtækisins, það er
Hirðis. Menn hafa verið að grínast
með að þar sem Eimskip hirði allt
hvort eð er sé allt eins gott að breyta
nafni fyrirtækisins. Síðustu misseri
eru Eimskipafélagsmenn sagðir
hafa „hirt" samkeppnisaðila, hluta-
bréf og ekki síst völdin í öðrum stór-
um fyrirtækjum . ..