Pressan - 05.09.1991, Síða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. SEPTEMBER 1991
29
bíói að sleppa hléi í sjöbíó
það verður þá hægt að fara á
aðrar sýningar og losna við
tuðið í menningarpostulunum
þegar ljósin kvikna
Að fólk láti líta út fyrir að
þvi liði vel
„fake it till you make it,“ —
segir kaninn og ef menn þykj-
ast nógu lengi munu þeir á
endanum höndla hamingjuna
Að fréttastofur sjónvarps-
stððvanna cndurskipuleggi
vaktakerfi sín og fjölgi á
helgarvðktum
fréttatimarnir um helgar eru
einfaldiega ekki boðlegir
ÍNNÍ
Langar neglur. Sjáið bara negl-
urnar á Herði Torfasyni.
Kannski eiga þær að tákna
dekadens. Kannski notar hann
þær bara til að spila á gítarinn
sinn. En Jón Baldvin Hanni-
balsson hefur líka sést með
langar neglur í sjónvarpinu; til
dæmis í rauða sófanum með
Davíð. Með þær að vopni og í
tweedjakkanum er Jón eins og
sautjándu aldar breskt aristó-
krat. Það er ekki fyrr en ís-
lenski karlmaðurinn er kominn
með langar og vel snyrtar negl-
ur að hann hefur yfirgefið
moldarkofann endanlega.
f •
UTI
3RuctWa.us
lU+tnu?
Páttaskil
hjá Hcrði
Torfasyni
Þáttaskil er yfirskrift
tónleikanna hans Harðar
Torfasonar í Borgarleik-
húsinu annað kvöld. Það
er líka nafnið á geisladiski
setn hann sendir frá sér
síðar í haust. Það er ekki
að ástæðulausu að Hörður
hefur valið þetta nafn.
Þáttaskilin eru tvenn.
Hann er í fyrsta lagi fluttur
heim til íslands eftir 16
búsetu erlendis.
„Það er gott að vera
kominn heim og geta
talað íslensku á
hverjum degi,“ segir
Hörður, þótt hann hafi
reyndar oft dvalið hér
á landi stóran hluta
ársins á meðan hann
bjó úti. Hin þátta-
skilin eru í
tónlistinni. „Ég hef
verið að þróa með
mér nýjan áslátt á
gítarinn og hann
verður mjög áberandi á \
nýja diskinum. Ég notaði
hann í fyrsta sinn í laginu
„Lítill fugl".“ Takturinn er
í ætt við suður-ameríska og
spánska tónlist, sem Hörður
segist samt ekki vera undir
neinum áhrifum frá, frekar
en annarri tónlist. „Þessi
ásláttur er þannig til kominn
að yngri bróðir minn, sem er
gitarleikari, heyrði þetta spil-
að á járnbrautarstöð í París.
Hann fór að fikta við þetta og
ég fór síðan að herma eftir
honum,“ segir Hörður. Það er
vert að taka fram að tónleikar
Harðar verða ekki endur-
teknir. „Það var mikið kvart-
að yfir því við mig eftir tón-
leikana mína í fyrra að þeir
skyldu ekki vera endurteknir,
því margir þurftu frá að
hverfa. Með því að velja Borg-
arleikhúsið er ég að vona að
enginn þurfi þess núna.“
ar
...fær Logi Ólafsson,
þjálfari Vtkinga. Það
þarfgóðan þjálfara til
að skáka liðum sem eru
miklu betri á
pappírunum.
Við
mæLum
MEÖ
Að einn áhorfandi verði
pikkaður út á stórmótum í
frjálsum íþróttum og látinn
keppa í hverri grein
þá fær maður samanburð og
sér hvað hetjurnar eru í raun
góðar
Að fleiri bíókóngar taki það
upp eftir Friðbert í Háskóla-
STÖÐ2
Indiana Jones og síðasta kross-
ferðin Indiana Jones and the
Last Crusade laugardags-
kvöldið kl. 21.40. Frumsýning
á síðustu ævintýramyndinni
um fornleifafræðinginn og
regintöffarann sem Harrison
Ford hefur gert ódauðlegan
(eða öfugt). Og nú er Sean
Connery með í för. Fyrsta
flokks skemmtun.
segja límd við skjáinn á föstu-
dagskvöldið. Fyrst kemur
Djasshátíð á Austurlandi. Þar
greinir frá Djasssmiðju Aust-
urlands sem skipuð er tónlist-
arfóiki úr fjórðungnum. Og
undir miðnætti er það Föstu-
dagsrokk The Golden Age of
Rock n' Roll. Þar ræður þjóð-
lagatónlistin ríkjum: Dylan,
The Byrds, Simon & Garfunkel
og The Mamas and the Papas.
SJÓNVARPIÐ
Tónlistarfríkin veröa rétt að
BÍÓIN
BÍÓBORGIN Rússlandsdeildin*
Á flótta** Lagarefir** Skjald-
bokurnar 2** Eddi klippi-
krumla**
BÍÓHÖLLIN Mömmudrengur**
Lífið er óþverri 0, New Jack
City*** Skjaldbökurnar 2**
Aleinn heima*** í kvennak-
landri* Sofið hjá óvinin-
um***
HÁSKÓLABÍÓ Beint á ská ZVi **
Alice*** Lömbin þagna***
Bittu mig, elskaðu mig* Júlía
og elskhugar hennar** Allt í
besta lagi*** Skjaldbökurn-
ar***
BÍÓIN
RÚSSLANDSDEILDIN The Russia House BIÓBORGIN
Hálfþunnur þrettándi og lýsir því hvaö Gorbatsjov og Jeltsín hafa gert njósna-
sögunni. En Sean Connery er sætur, svo sætur að Michelle Pfeiffer fellur meira
að segja í skuggann. ★
HUDSON HAWK STJÖRNUBÍÓI
Bruce Willis er eins og svo margt annaó fólk sem er skemmtilegt við fyrstu
kynni. Þegar maöur rekst á það aftur er eins og maður sé að hlusta á sömu
plötuna. Og svo aftur og aftur. Annað er skárra í myndinni. ★★
Hvað ætlarðu að
gera um helgina, Jón
Stefánsson skáld?
Á föstudagskvöldið ætla
ég að bjóða Maríu Karen út
að borða á Horninu — og
panta hér með borð fyrir
tvo klukkan átta. Svo tekur
maður kannski smárúnt
um Bíóbarinn og 22. Gæti
hugsast. Á laugardaginn
erum við svo boðin í sum-
arbústað með Einari Fal og
Ingu. Hápunkturinn er hins
vegar ásunnudaginn þegar
blúsmenn og skáld
djamma saman á Púlsin-
um. Það verður dúndur-
stemmning!
Café Ópera og Pisa eiga heiður
skilinn fyrir að veita svöngum
mat þótt eitthvað sé liðið á
kvöld. Þótt otrulegt megi virð-
ast er það nú einu sinni svo að
fólk hættir ekki að vera svangt
þó klukkan sé tíu, ellefu eða
hvenær veitingastaðir loka yf-
irleitt eldhúsinu. Hornið hefur
líka bjargað mörgum mannin-
um með því að taka við pizzu-
pöntunum fram til klukkan
hálftólf.
HVERJIR ERU HVAR?
Madonna. Versta afsprengi
ítalsk-amerískrar menningar.
Verri en Sylvester Stallone og
vakómpakkaðar pizzur. Mad-
onna gaf út þá yfirlýsingu um
daginn að hún vildi eignast
barn og eftir það hefur mátt
heyra lífsklukku hennar klingja
eins og Big Ben um allan heim.
Okkar spá er sú að Madonna
finni aldrei neinn verðugan
þess að verða faðirinn. Og ef
hún hefur farið í taugarnar á
ykkur fram til þess þá getið þið
ímyndað ykkur hvernig hún
verður á breytingaaldrinum.
LAUGARÁSBÍÓ Eldhugar**
Leikaralöggan** Dansað við
Regitze***
REGNBOGINN Hrói höttur**
Dansar við úlfa*** Cyrano de
Bergerac*** Glæpakóngur-
inn** Skúrkar* Litli þjófur-
inn*
VEITINGAHÚSIN
Nokkrir fastagestir á Jónatani
Livingston mávi: Sigurður
Gísli Pálmason í Hagkaup, Páll
Dungal í Pennanum og Elín
arkitekt Kjartansdóttir, Eyjólf-
ur Kristjánsson söngvari,
Biggi og Simbi hjá Jóa og fé-
lögum, Lýður Friðjónsson hjá
Coca Cola, Ásgeir Bolli Krist-
insson og Svava Johansen í
Sautján, Magnús Hreggviðs-
son hjá Frjálsu framtaki, Sig-
fús Sigfússon i Heklu, Guðrún
Ingólfsdóttir og Úlfar Teitsson
í Clöru. .
Nú geta Mick Jagger, David
Bowie, Jón Óttar Ragnarsson
og aðrir smávaxnir menn lagt
háhæluðu skónum. Danny De-
Vito hefur fundið miklu betri
lausn á því að virðast hærri.
Þetta er svokölluð „marg-
hattalausn". Hún er fólgin í því
að hafa ekki einn hatt á höfð-
inu heldur eins marga og þörf
er á. Danny DeVito er hér með
fjóra.
STJÖRNUBÍÓ Hudson Hawk**
Börn náttúrunnar** The
Doors 0.
feóbUt
Thomas Harris:
Lömbin þagna/The
Silence of the Lambs
Nú kemur upp hið sí-
gilda vandamál: Hvort
er betra að lesa bók-
ina fyrst og sjá svo
myndina eða sjá
myndina fyrst og lesa
svo bókina? Bókin er
meistaraverk á sviði
spennubóka, ískyggi-
lega hrollvekjandi frá
upphafi til enda. Þú
sleppur vel ef mar-
tröðunum linnir eftir
þriggja nátta svitakóf.
Og við gefum henni
8 af 10.
Vinsozlcistci
myndböndin
1. Rookie
2. Pacific Heights
3. Rocky 5
4. Flight of the Intruders
5. Firebirds
6. Memphis Belle
7. Stanley and Iris
8. Cover up
9. Silhouette