Pressan - 10.10.1991, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10, OKTÓBER 1991
17
Lfsi
3)
heilsunnar vegna...
OMEGA-3 LÝSISPERLUR innihalda
mun meira magn af Omega-3 fjölómett-
uðum fitusýrum en venjulegt þorskalýsi
án þess að A og D vítamín innihald
þeirra hafi hækkað að ráði. Omega-3
lýsið er því hentugt fyrir fólk sem telur
sig þurfa á að halda meira af
þessum fitusýrum, sem taldar
eru veita vörn gegn kransæða-
sjúkdómum. Petta á einkum
við ákveðna áhættuhópa.
Með því að taka inn lýsi daglega ertu ekki bara að stuðla að bættri heilsu í dagsins önn,
heldur leggur þú einnig hornstein að heilsu þinni í framtíðinni.
i
l n
OLHÆL
LÚÐULÝSISPERLUR eru nær eingöngu
notaðar sem A og D vítamín gjafar. Pær eru
því ætlaðar þeim sem taka ekki inn þorska-
lýsi né ufsalýsi en vilja þó fá A og D vítamín.
Það er ekki ráðlagt að taka aðrar lýsisafurðir
með lúðulýsis-
perlum vegna
hins háa vítamín
innihalds.
UFSALÝSI inniheldur helmingi
meira af A og D vítamínum en
þorskalýsi. Því er æskilegt að börn
og unglingar sem enn eru í vexti
noti ufsalýsi til að styrkja beinin og
bæta sjónina. D vítamín stuðlar að
vexti og viðhaldi beina en A vítamín
er mikilvægt fyrir sjónina og heil-
brigði húðar.
ÁVAXTALÝSI
og MINTLÝSI er sniðið fyrir
þá sem vilja bragðbætt lýsi.
Petta er þorskalýsi sem
bragðefnum hefur verið bætt
út í. Bragðefnin draga úr
lýsisbragðinu.
ÞORSKALÝSI er ætlað fyrir miðaldra og eldra fólk
sem hefur meiri þörf fyrir þær fjölómettuðu
fitusýrur sem finnast í lýsinu en A og D vítamín.
Pessar fitusýrur eru af Omega-3 gerð
og er talið að þær veiti vörn gegn kransæða-
sjúkdómum. Porskalýsi inniheldur um það bil
helming þess A og D vítamín magns
sem er í ufsalýsi þannig að fólki gefst kostur á að
taka inn mun meira magn af þessum
fjölómettuðu fitusýrum og gæta jafnframt hófs í
A og D vítamín neyslu.
PORSKALÝSISPERLUR eru ætlaðar fólki sem vill eða getur ekki
tekið inn fljótandi lýsi. í perlunum er venjulegt þorskalýsi.
Lýsisperlur eru einnig tilvaldar
í ferðalagið og auðvelt að hafa
við hendina hvar sem er.
Mundu eftir lýsisperlunum í
ferðatöskuna næst þegar þú
leggur í hann.
AFBRAGÐSLÝSI er lýsi sem er sérstak-
lega valið og meðhöndlað til að fjarlægja
bæði lykt og bragð sem yfirleitt fylgir
þorskalýsi. Afbragðslýsi er því einkar
hentugt fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka inn lýsi vegna lýsisbragðsins.
Hér er um að ræða nýja leið fyrir þá sem
hafa viljað taka lýsi
en ekki séð sér það
fært hingað til
vegna bragðsins.