Pressan - 10.10.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR PRMSSAN 10, OKTÓBER 1991
Forystumenn Skáksambandsins og Flugbjörgunarsveitanna
TELJA AB HÁSKÚLINN
HAFISTOLHIHUGMYNBINNI
AB SJÖBSHAPPBRÆTTINU
Mikit óánœgja er medal forystu-
manna Skáksambands íslands og
Landssambands flugbjörgunar-
sveita med þad hvernig Happdrœtti
Háskóla íslands hefur farid af stad
med sjóöshappdrœttiö ..Happó".
Telja forystumenn SÍ og flugbjorg-
unarsveitanna ad Háskólahapp-
drættid hafi hirt allar liugmyndir
þeirra ad sjódshappdrœtti. sem þeir
hafi unniö ad í langan tíma. Telja
skák- og flugbjörgunarsveitarmenn-
irnir ad þeir hafi verid látnir ganga
þrautagöngu i gegnum dómsmála-
ráóuneytid þar sem þrír embœttis-
menn, sem jafnframt sitji í happ-
drœttisrádi Háskólans, hafi lagt
stein í götu þeirra. Er þaö œtlun
þeirra uö fara fram á bœtur fyrir
stuld á hugmynd þeirra.
Ragnar Ingimarsson, forstjóri Happ-
drættis Háskólans: „Einföld hug-
mynd og kjánalegt að halda því fram
að einhver hafi fundið hana upp."
Snemma árs 1990 var sett á fót
undirbúningsnefnd sem átti að
vinna að fjáröflunarleiðum fyrir
Skáksambandið og flugbjörgunar-
sveitirnar. Fyrir hönd Skáksam-
bandsins sátu þeir Einar S. Einars-
son og Ftíll Magnússon í nefndinni.
Frá björgunarsveitunum þeir Grím-
ur Laxdal, Jón Gunnarsson og
Gunnar Bragason. Nefndin skilaði
frá sér fyrstu greinargerð 27. febrú-
ar 1990 þar sem lagt er til að búið
verði til sjóðshappdrætti sem heiti
..Lukkupottur" og vinningarnir
verði greiddir út í formi ríkisskulda-
bréfa.
20. mars 1990 er síðan dómsmála-
ráðuneytinu send umsókn frá
Landssambandi flugbjörgunar-
sveita og Skáksambandinu. Þar er
farið fram á leyfi fyrir starfrækslu
happdrættis þar sem dregið verði úr
sérstökum potti mánaðarlega og fái
einn vinningshafi stærsta vinning-
inn. Gert er ráð fyrir að hann verði
greiddur út i formi ríkisskuldabréfa,
en þannig ætluðu menn að komast
framhjá einkaleyfi Happdrættis Há-
skólans á peningahappdrætti. Var
þá hugmyndin að miðinn kostaði
500 krónur og átti að draga einu
sinni í mánuði. Helmingur þess sem
inn kom átti að fara í vinninga.
Skömmu síðar sömdu þeir Einar og
Grímur frumvarpsdrög að ,,pott-
leik".
BREYTINGAR
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIS
í dómsmálaráðuneytinu tók um-
sóknin síðan ýmsum breytingum. í
stað 2/5 hluta hagnaðar áttu ein-
ungis 2/5 að renna til rekstraraðila
en 60% í sérstakan þyrlu- og björg-
unarsjóð, sem verja skyldi til kaupa
á björgunarþyrlu fyrir Landhelgis-
gæslu Islands. Hugmyndin að þessu
segja þeir Einar og Grímur að sé
komin innan úr ráðuneytinu, en þar
starfa þrír embættismenn sem jafn-
framt sitja í happdrættisráði Há-
skóla íslands. Það eru Ólafur W.
Stefánsson skrifstofustjóri, sem er
formaður ráðsins, Drifa Ftílsdóttir
deildarstjóri og Jón Thors skrifstofu-
stjóri, sem er varamaður. Auk þeirra
er Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, í ráðinu. Happdrættisráðið
er fyrst og fremst eftirlitsaðili, en
happdrættið hefur auk þess sína
stjórn.
Nú, þegar Háskólahappdrættið
hefur hafið starfrækslu sjóðshapp-
drættis, bregður hins vegar svo við
að hvergi örlar á að greiða eigi til
Grímur Laxdal hjá Flugbjörgunar-
svert Reykjavíkur: „Ljósrítuóu hug-
mynd okkar."
þyrlukaupa. Þess ber þó að geta að
Háskólahappdrættið greiðir eitt
happdrætta 20% skatt til ríkissjóðs.
Það var síðan Óli Þ. Guöbjartsson,
þáverandi dómsmálaráðherra, sem
flutti frumvarpið í lok desember
1990 með samþykki fyrrverandi rík-
isstjórnar. Það var svo skömmu fyrir
þinglok að ljóst mátti vera að það
næði ekki fram að ganga.
Frumvarpið vakti mikil viðbrögð
á Alþingi og þótti mörgum þing-
mönnum út í hött að láta aðeins
þessi tvenn samtök njóta sjóðshapp-
drættis. Var því Slysavarnafélagi Is-
lands og Hjálparsveit skáta bætt inn
í. Varð þá niðurstaðan að Skáksam-
bandið fengi 12,5% ágóðans, björg-
unarsveitirnar 37,5% og þyrlusjóð-
urinn 50%.
Máiið dó hins vegar í höndum
þingsins eftir að Örlygur Hálfdánar-
son, fyrir hönd Slysavarnafélags ís-
lands, sendi allsherjarnefnd efri
deildar Alþingis ályktun fundar
sambandsins frá 25. febrúar síðast-
liðnum. Þar segir: „Fundurinn telur
miður að félagasamtök nýti sér það
ástand sem er í þyrlumálum Land-
helgisgæslunnar sér til fjáröflunar.
Því telur fundurinn eðlilegt að hugs-
anlegar tekjur af væntanlegu sjóðs-
happdrætti, samkvæmt frumvarpi
til laga sem nú liggur fyrir Alþingi,
gangi óskiptar til þyrlukaupa Land-
helgisgæslunnar, a.m.k. næstu
fimm árin." Þetta urðu í raun enda-
lok málsins á Alþingi.
„UÓSRITUÐU
HUGMYND OKKAR“
Á meðan á þessari þrautagöngu
skák- og flugbjörgunarsveitar-
manna stóð unnu forráðamenn Há-
skólahappdrættisins að sínum mál-
um í kyrrþey. í ágúst síðastliðnum
var síðan samþykkt reglugerð, sem
hið nýja happdrætti þeirra, Happó,
starfar eftir.
,,Ég tel að Happó sé bara Ijósrit af
hugmyndum okkar sem við iögðum
fyrir dómsmálaráðuneytið. Hug-
mynd okkar virðist vera þarna öll
eins og hún leggur sig; við ætluðum
að vera með sjóðshappdrætti, hafa
helming innkomunnar í vinning,
selja miðann á 250 krónur og draga
hálfsmánaðarlega í sjónvarpi.
Happdrætti Háskóla íslands hefur
tekið þessar hugmyndir og fram-
kvæmt þær. Okkur finnst þetta auð-
vitað dálítið siðlaust," sagði Grímur
Laxdal hjá Flugbjörgunarsveit
Reykjavíkur.
I sama streng tekur Einar S. Ein-
arsson, forstjóri VÍSA og fyrrverandi
formaður Skáksambands íslands.
„Mér hefði þótt það sjálfsögð kurt-
eisi að tala við hugmyndasmiðina
og reyndar þykir mér dálítið blóð-
ugt að Happdrætti Háskóla íslands
skuli ekki víla fyrir sér að taka þessa
hugmynd. Ég tel þetta hugmynda-
stuld af grófustu gerð," sagði Einar,
en hann sagði að þessir sömu aðilar
hefðu hugsað sér til hreyfings aftur
í málinu þegar þeir höfðu spurnir af
því að Happó væri að fara af stað.
„SVO EINFÖLD HUGMYND AÐ
ÞAÐ ER KJÁNALEGT AÐ SEGJA
AÐ EINHVER HAFI
FUNDIÐ HANA UPP“
„Mér finnst þessi hugmynd svo
einföld að það er kjánalegt að halda
því fram að einhver hafi fundið
hana upp,“ sagði Ragnar Ingimars-
Óli Þ. Guóbjartsson: Flutti frumvarp
fyrir skák- og flugbjörgunarsveitar-
menn en leyffti síftan Háskólahapp-
drættinu aft hefja sjóftshappdratti.
son, forstjóri Háskólahappdrættis-
ins. Hann segir að hugmyndir um
nýjar gerðir af happdrætti séu sífellt
i gangi hjá Háskólahappdrættinu og
vangaveltur um sjóðshappdrætti
hafi verið til lengi þar. Hann gat hins
vegar ekki bent á neiriar staðfestar
samþykktir fyrir því nema sam-
þykkt stjórnarfundar frá 4. október
í fyrra, þar sem forstjóra var falið að
vinna ótrauður að nýju happdrætti.
Sagði hann að Háskólahappdrættið
hefði fengið leyfi fyrrverandi dóms-
málaráðherra fyrir Happó í janúar
síðastliðnum.
Sagði Ragnar að um leið og hann
hefði sest í forstjórastólinn, eftir frá-
fall fyrrverandi forstjóra í septem-
ber í fyrra, hefði hann strax farið að
vinna að nýjum möguleikum.
Happó væri meðal annars afrakstur
þess, svo og ýmsir fleiri möguleikar
sem hafa verið skoðaðir.
Einar S. Einarsson i fjáröflunarnefnd
Skáksambandsins: „Hef Ai verift sjálf-
sögA kurteisi að tala viA hugmynda-
smiAina."
„Þá má líka benda á að við vorum
byrjaðir með skafmiðahappdrætti
1987 og þá fóru björgunarsveitirnar
út í það, þannig að ég veit ekki ann-
að en þeir hafi leitað inn á okkar
markað. Við gætum eins spurt hvort
þeir vildu að við færum að selja flug-
elda um áramótin," sagði Ragnar.
„Ég tel ekki hægt að tala um höf-
undarrétt í þessu sambandi, þetta er
í raun svo einföld hugmynd. Ég sé
ekki annað en þetta sé allt sama tób-
akið; happó, lottó og getraunir,"
sagði Jón Thors í dómsmálaráðu-
neytinu.
ÆTLA AÐ FARA
FRAM Á BÆTUR
„Það er ætlun okkar að fá fund
með fulltrúum dómsmálaráðuneyt-
isins og fara fram á bætur vegna
þess hvernig fór fyrir hugmynd okk-
ar," sagði Grímur Laxdal. Bæði hann
og Einar telja að ráðuneytið hafi lagt
stein í götu þeirra á meðan unnið
var að sjóðshappdrættishugmynd
þeirra og bera fyrir sig áðurnefnda
embættismenn. „Þeir viðurkenna
að þeir vilji tryggja stöðu Háskóla-
happdrættisins gagnvart sam-
keppni og það hlýtur að vera óvið-
unandi fyrir aðra sem ætla sér inn á
þennan markað," sagði Grímur.
Hann sagðist telja þann 20% hlut
sem greiða ætti til ríkisins nokkurn
veginn viðunandi bætur fyrir þá
vinnu sem lögð hefði verið í undir-
búninginn og fyrir hugmyndina.
Einar sagðist ekki útiloka mála-
rekstur út af þessu máli ef þeir
fengju ekki ágóðahlut af Happó.
Sigurður Már Jónsson