Pressan - 28.11.1991, Side 7

Pressan - 28.11.1991, Side 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 7 ívar Hauksson. Hann hefur verið ákærður tvisvar. Annars vegar fyrir líkamsárás og hins vegar fyrir alvarlegar ofbeldishótanir. RUKKAR Hallvaröur Einvardsson ríkissak- sóknari staðfestir að embætti hans hafi gefið út ákæru á hendur ívari Haukssyni vaxtarræktarmanni. Akæran er gefin út vegna fann- sókna á hótunum ívars við inn- heimtuaðgerðir. Gunnar Steíáns- son, fulltrúi ríkissaksóknara, fer með málið af hálfu embættisins. Hann staðfestir einnig að búið sé að gefa út ákæru. Málið er komið til meðferðar í Sakadómi Reykjavíkur. Ekki náðist til dómarans sem fer með málið og því fékkst ekki staðfest hvort búið væri að birta ívari ákæruna. Rannsóknarlögreglan hefur haft nokkrar kærur á hendur ívari Haukssyni til meðferðar. HÓTAÐl ALVARLEGU OFBELDI ívar er ákærður fyrir að hafa hót- að ofbeldi við innheimtuaðgerðir. í þeim málum sem nýja ákæran er byggð á var ekki um ofbeldi að ræða, heldur alvarlegar hótanir um líkamsmeiðingar. ívar hótaði að neyta aflsmunar, en eins og flestir vita er Ivar þrautþjálfaður vaxtar- ræktarmaður og hefur eflaust mikla líkamsburði. Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR er ívar ákærður fyrir að hafa brotið gegn 233. grein al- mennra hegningarlaga. Þar segir: „Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heil- brigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 2 árum.“ í Sakadómi Reykjavíkur er eldra mál á hendur ívari til meðferðar. Þar er hann ákærður fyrir líkams- árás. í því tilfelli mun ekki vera um innheimtuaðgerðir að ræða, sam- kvæmt því sem PRESSAN kemst næst, heldur átök við annan mann á skemmtistað. Þar sem búið er að ákæra hann aftur er líklegt að þessi mál verði sameinuð og rekin samtimis fyrir dómnum. ívar Hauksson er ekki eini maður- inn sem kærður hefur verið til lög- reglu fyrir að hafa farið offari við innheimtuaðgerðir. Rannsóknar- lögreglan hefur haft kærur á hendur fleiri mönnum til rannsóknar. PRESSUNNI er ekki kunnugt um að fleiri menn hafi sætt ákæru vegna fantalegra innheimtuaðgerða. FÓLK ER HRÆTT VIÐ ÍVAR Það hefur færst í vöxt að inn- heimta sé reynd með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi. Nokkrir af við- mælendum PRESSUNNAR segja að þessu verði að linna þar sem um sé að ræða óvægnar aðferðir þar sem venjulegt fólk eigi sér litla von gegn þrautþjálfuðum kraftamönnum. ,,Ég vildi frekar vera í skotgröfun- um en segja eitthvað um ívar Hauksson opinberlega," sagði einn þeirra sem fengu ívar yfir sig í inn- heimtuham. „Maður tengdur mér lenti í einum þessara manna. Ég vil ekki segja hver það er, en rukkarinn er vel þekktur maður," sagði einn viðmæl- enda PRESSUNNAR. í sumar sem leið var ívar kærður til lögreglunnar í Hafnarfirði. I því tilfelli var um líkamsárás að ræða. Málið er til rannsóknar. Lögreglan í Hafnarfirði hefur sent málið frá sér. VONUM SEINNA Eftir því sem næst verður komist starfar Ivar nær eingöngu við inn- heimtu. Hann starfar einnig fyrir Al- an Ball sem flytur inn erlendar rokksveitir og hefur staðið fyrir hljómleikahaldi hér á landi. Ivar er nokkurs konar lífvörður meðlima þeirra erlendu hljómsveita sem hingað koma á vegum Alans Ball. „Ivari var falið að innheimta skuld hjá Alan. Skuldin var aldrei innheimt heldur réð Alan ívar til starfa hjá sér,“ sagði einn þeirra sem PRESSAN ræddi við. PRESSAN leitaði til rannsóknar- lögreglu ríkisins vegna þessa máls. Ekki var hægt að fá uppgefin efnis- atriði einstakra mála, en staðfest var að rannsóknarlögreglan hefði haft kærur á hendur Ivari til með- ferðar. „Það hefði átt að vera búið að stöðva þennan mann fyrir löngu. Það er ekki verjandi að hann og aðr- ir ámóta komist upp með að hrella fólk, hóta því og jafnvel berja, vegna þess eins að það skuldar peninga. Segja má að þetta sé vonum seinna sem ákæran kemur,“ sagði lögreglu- maður sem PRESSAN ræddi við. Hjá þeim viðmælendum sem PRESSAN leitaði til kom greinilega í ljós að fólk er hrætt við að tala um samskipti sín og ívars. Einn þeirra sem rætt var við sagði það skiljanlegt og bætti við að þeir sem hefðu lent í honum einu sinni kærðu sig ekki um að lenda í slíku aftur. FÉLL Á LYFJAPRÓFI ívar Hauksson keppti sem Islands- meistari á heimsmeistaramóti vaxt- arræktarmanna. ívar var tekinn í lyfjapróf og í niðurstöðum prófanna kom í Ijós að hann hafði neytt horm- ónalyfja. Það varð til þess að hann var úrskurðaður frá frekari keppni. Áður en ívar sneri sér að vaxtar- rækt var hann efnilegur golfleikari. Hann þótti eiga talsverða framtíð fyrir sér í þeirri íþrótt, en hann sneri sér að vaxtarrækt og hefur ekki keppt í golfi síðustu ár. Sigurjón Magnús Egilsson Sigurður Már Jónsson, og Haraldur Jónsson Embætti ríkissaksóknara hefur sent frá sér ákæru á hendur ívari Haukssyni vaxtarræktarmanni. Hann er ákærður fyrir brot á 233. grein hegningarlaga. í henni segir: „Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að tveimur árum."

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.