Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991
Í-J m mánaðamótin kemur út
nýtt tímarit sem hlotið hefur nafnið
Hamingja. Blaðinu verður dreift
frítt í alla skóla og tískuvöruverslan-
ir meðal annars. í blaðinu verður
fjallað um tísku, tónlist, kvikmyndir
og annað sem viðkemur lífi fólks.
Að Hamingju standa Valgarður
Bragason, myndlistarmaðurinn
Jón Sæmundur Björnholt, Einar
Snorri Einarsson og Eiður S. Ey-
steinsson, sem um árið var kosinn
„Herra ísland" og ber þann titil víst
enn ...
s
l^kaldsaga Guðmundar Andra
Thorssonar, sem kemur út nú fyrir
jólin og átti að bera nafnið „Blái
bláminn", hefur nú
fengið nýtt nafn.
Skáldsagan nefnist
nú „fslenski draum-
urinn". Þetta kom
flatt upp á marga
þar sem höfundur
hafði lesið upp úr
Bláa blámanum og auk þess höfðu
lesendur PRESSUNNAR haft pata af
því að bókin bæri fyrra nafnið. En
það er semsagt úr sögunni; íslenski
draumurinn er orðinn að veru-
leika ...
M. orsteinn Antonsson rithöf-
undur sendir frá sér sögulega skáld-
sögu um jólin þar sem gamaikunn-
ugt mál skýtur upp
kollinum. í kynn-
ingu bókarinnar,
sem nefnist
„Áminntur um
sannsögli", segir
svo; Söguleg skáld-
saga um Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálið. Voru fjögur
ungmenni dæmd af Hæstarétti árið
1980 fyrir morð sem þau aidrei
frömdu?...
ÆT að hefur verið mikið uppistand
meðal körfuknattleiksmanna hjá
Þór á Akureyri að undanförnu. Þar
hefur farið fremstur
í flokki Sturla Ör-
lygsson, fyrrver-
andi þjálfari Þórs.
Sturla er hættur hjá
Þór og ekki vitað í
hvaða lið hann fer.
Hann ætti reyndar
að vita að hverju hann gengur, því
Sturla hefur verið ákaflega iðinn við
að flytja sig á milli liða. Hann hefur
nefnilega leikið með Njarðvík, Val,
ÍR, Tindastól og að sjálfsögðu Þór.
Ekki er vitað til þess að annar körfu-
knattleiksmaður hér á landi hafi
reynt sig með jafnmörgum lið-
um ...
: :: :
Kassettutæki m/hljóðnema
Þessi skemmtilegu hljómtæki eru hönnuð og
framleidd miðað við þarfir og getu yngstu
notendanna. Tækin eru sterkbyggð, takkar
stórir og í áberandi litum, öll horn eru ávöl
svo ekki er hægt að meiða sig á þeim.
Öll tækin eru án rafmagnstengi sem kemur í
veg fyrir fikt í innstungum og eru tækin mjög
sparsöm á rafhlöður.
Sem sagt tilvalin jólagjöf fyrir unga
tónlistaraðdáendur.
Kassettutæki fyrir þau yngstu.
Tækið slekkur á sér þegar spólan er á enda.
Vasadiskó með ól
JAPIS
m
HLJOMTÆKJAVERSLUN
UNGA FÓLKSINS
BRAUTARHOLT 2 • KRINOLUMMI SÍMI Bl
TPM-8000
WM-3000 * kr. 4420
L'OREAL