Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 36

Pressan - 28.11.1991, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR PRESSAN Sú kynslóÖ sem er að vaxa úr grasi hlustar á tónlist sem var vinsœl fyrir tuttugu árum, horfir á bíómyndir sem eru endur- gerðar útgáfur afmyndum sem foreldrar hennar horfðu á klœðist fötum sem taka mið aftískunni fyrir þrjátíu árum. Eina sjáanlega nýjungin sem þessi kynslóð hefur fœrt mannkyninu er að ífyrsta skipti í sögunni geta foreldrarnir dillað sér við tónlistina sem berst úr herbergi krakkanna. KYNSLÓE ÁNEINKEN Er kynslódin sem elsl upp í dag án allra sérkenna? Verd- ur ekki hægt aö tala um ’90-kynslódina eftir tuttugu ár sökum þess ad hán á sér engin einkenni, er hrœri- grautur fortíöar, nútídar og framtídar? Sautján ára unglingur í dag hlustar á tónlist frá 1960 til 1970, horfir á endurgerdir bíómynda sem uoru frum- sýndar 1940 til 1950, gengur í fötum frá pönktímabilinu 1980 eöa jafnvel frá 1965 og leikur sér í tölvuleikjum þar sem sögusvidid er áriö 2030. Þessi aumingjans ungling- ur á ekkert sem hans kynslóð hefur uppgötvað. Það er ekk- ert sem þessi kynslóð getur eignað sér eftir tuttugu ár, hún er ekki að skapa neitt nýtt í dag. Þetta er eiginlega tímalausa kynslóðin. Kannski verður það helst hættan á eyðni og umræðan í kringum hana sem verður þessari kynslóð minnisstæð. MEIRA AÐ SEGJA LITTLE RICHARD OG FATS DOMINO Vinsælasta tónlistin hjá unglingunum í dag er tónlist Bítlanna, RollingStones, Jimi Hendrix, Led Zeppelin, Cre- am, Credence Clearwater Revival og Janis Joplin. Þetta er sú tónlist sem hlustað er á í partíum í dag og þegar stuðið ágerist og lækka tekur í flöskunum má búast við að heyra Bill Hailey, Little Richard, Elvis Presley, Chuck Berry og jafnvel eitt og eitt lag með Fats Domino. Plötur og geisladiskar eru vinsælar afmælisgjafir sem fyrr, en nú er það ekki nýjasta plata Prince eða Dire Straits sem leynist í pakkanum. Nú er það Sergeant Pep- per’s-plata Bítlanna eða safn- plata með Rolling Stones eða eitthvað annað gamalt og gott og helst eldra en afmæl- isbarnið. Nú þegar Freddy Mercury, aðalsprauta hljómsveitarinn- ar Queen, er nýlátinn úr eyðni má búast við að lög með hljómsveitinni fari að heyrast í gríð og erg. Sjálfsagt munu útvarpsstöðvarnar hrinda skriðunni af stað, en ekki er að efa að sala á hljóm- plötum sveitarinnar eykst og þá væntanlega helst á eldri plötum Queen. GEISLASPILARAR SKÝRINGIN AÐ HLUTA Þessi fortíðarfíkn ungling- anna hefur staðið í um það bil tvö ár. Kvikmynd Olivers Stone um ævi Jims Morrison og feril hljómsveitar hans, Doors, ýtti síðan enn frekar á. En eftir að Doors-myndin var sýnd og tónlistin komst í tísku var eins og við manninn mælt að hún féll fljótlega út af sakramentinu. Unglingarnir höfðu nefnilega notað tónlist Doors til að skapa sér sér- stöðu og vera öðruvísi. Og um leið og allir fóru að fíla Doors hvarf sérstaðan; Doors varð allra og glansinn fór því fljótt af henni. Starfsfólk hljómplötuversl- ana er PRESSAN ræddi við er allt sammála um að áhugi unglinga á þessari gömlu tón- list sé mikill og þeir staðfesta líka að Doors er komin úr tísku. „Okkur finnst áberandi að tólf til nítján ára gamlir unglingar hlusta á Jimi Hendrix og fleiri. Svo er ákveðinn hópur unglinga aft- ur á pönkbylgjunni," segir Kristján Kristjánsson, versl- unarstjóri hjá Japis. Og í sama streng tók Halldór Andrésson í Plötubúðinni. Ný dönsk sækir til fortíðar- innar. „Erum að gera það sem okkur þykir skemmti- legt," segir Daníel Ágúst Haraldsson. Almenn geislaspilaraeign kann að hluta til að vera skýr- ingin á því að unglingarnir eru að uppgötva þessa tón- list. Eftir að geislaspilarar urðu almenningseign varð að sjálfsögðu að endurútgefa ýmislegt eldra efni. Það þýddi tvennt: í fyrsta lagi var þetta efni auglýst í blöðum og í sjónvarpi og í öðru lagi fengu útvarpsstöðvar gamla vínið á nýjum belgjum. Nú þurfti ekki lengur að notast við gamlar rispaðar plötur með lélegum hljómi. Því fór þetta efni að heyrast meira í út- varpi. UNGLINGARNIR AÐ UPPGÖTVA HVAÐ ÞESSI TÓNLIST ER GÓÐ „Þessi tónlist er mjög vin- sæl í dag. Krakkarnir eru að uppgötva hvað þetta er í raun og veru góð tónlist," segir Sig- urdur Kári Kristjánsson, átj- án ára nemi í Verslunarskóla íslands. Hann telur skýring- una með geislaspilarana eiga við að einhverju leyti en segir líka: „í mörgum bíómyndum eru þessi gömlu lög spiluð og þau vekja áhuga á að heyra fleiri lög.“ ívar Gröndal er sautján ára nemi í Menntaskólanum við Sund. Hann segir þessa gömlu tónlist tvímælalaust uppáhaldstónlist sína, en kann enga sérstaka skýringu á því af hverju hún er svona vinsæl. „Ég held að tískan fari bara í hringi," segir ívar. „Fólk langar í æði og að sameinast í einhverju," segir Stefán Baldur Árnason, ní- tján ára nemi í Menntaskól- anum við Sund. Stefán segist sjálfur hlusta á allar tegundir tónlistar en kveðst mjög hrif- inn af þeim hljómsveitum sem hér hefur verið minnst á. Margt spili saman sem verði þess valdandi að unglingarn- Stefan Baldur Arnason, til vinstri, segir kynsloð sina vanta samkennd, of mikið sé í boði af öllu. Ivar Gröndal telur tísk- una fara í hringi. Sigurður Kári Kristjánsson og Eva Margrét Ævarsdóttir eru hrifin af tónlistinni sem heillaði foreldra þeirra. Stefán Hjörleifsson segir strákana sem hann er að kenna bara vilja spila Hendrix og aðra slíka. ir í dag eru svona uppteknir af fortíðinni. „Ég hef lítið spáð í þetta en þetta er partímúsíkin, svona í og með,“ var það sem Eva Margrét Ævarsdóttir, átján ára nemi í Verslunarskóla ís- lands, hafði til málanna að leggja. Eva starfar einnig með leikfélagi VÍ, sem frum- sýndi nýlega leikritið „Börn mánans" eftir Michael Well- er. Það þarf engum að koma á óvart að það fjallar um ’68-kynslóðina og segir frá ungu fólki sem býr saman í kommúnu. En af hverju sýna leikrit um pabba og mömmur dagsins í dag? „Leikritið fjall- ar um ungt fólk og við sjáum þennan tíma í skemmtilegu ljósi. Þarna var vakning í gangi," er svar Evu. NÝ TÓNLIST EKKI EINS GÓÐ Skýringin á þessu öllu sam- an virðist ekki liggja á lausu og fiestir telja að þarna sé um marga samverkandi þætti að ræða. „Ætli aðalástæðan sé ekki sú að þetta eru betri listamenn,” sagði Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari að- spurður um hvort hann kynni einhverja skýringu á þessari fortíðarfíkn. Páll Óskar er tuttugu og eins árs og hann hefur ein- mitt vakið mikla athygli fyrir flutning sinn á gömlum lög- um. Hann tekur dæmi af Shakespeare og segir það enga tilviljun að hann skuli vera klassískur og óspart vitnað í hann. Shakespeare hafi einfaldlega verið snill- ingur. Það sama gildi um alla þessa gömlu tónlist; þar hafi snillingar verið að verki og því sé alltaf leitað til þeirra aftur og aftur og tónlistin sí- fellt spiluð. Þarna sé því ótæmandi uppspretta sem alltaf er hægt að leita í. Ný dönsk hefur vakið at- hygli fyrir tónlistarflutning sinn, en hljómurinn á nýjustu plötu þeirra er ekki ósvipað- ur því sem gerðist fyrir fimm- tán til tuttugu árum. „Mér finnst meiri músík í þessu en tölvupoppi,” segir Daníel Ág- ást Haraldsson, sörigvari Ný danskrar. Hann segir þá fé- laga einfaldlega vera að gera það sem þeim þykir skemmti- legt. Stefán Hjörleifsson, gítar- leikari Ný danskrar, segist verða var við fortíðarfíkn á framhaldsskólaböllunum. Það sjáist á klæðnaði krakk- anna og einnig sé greinilegt að þau vilji helst hlusta á eldri tónlist. Stefán er einnig gítar- kennari og hann verður var við það í kennslunni að strák- arnir vilja helst spila Hendrix og aðra slíka snillinga. PABBI, MAMMA, BÖRN OG TÓNLIST Fyrir rúmum áratug var pönkbylgjan í algleymingi, tíu árum þar á undan voru það Hendrix og Morrison. Nú, tuttugu árum síðar, eru það aftur Hendrix og Morri- son. Nú er ekkert nýtt æði nema ef vera skyldi hipp-hoppið og rappið, en það er þó ekki eins almennt og pönkið eða hippatónlistin var. Er þá ekkert að gerast í tónlist í dag sem kemur til með að lifa og verða aftur vinsælt að tuttugu árum liðn- um? „Ég held að krakkarnir tapi miklu á því að eiga ekki sína eigin músík,“ segir Halldór í Plötubúðinni, en við nánari umhugsun er hann þó ekki frá því að U2, REM og Pixies eigi eftir að lifa og jafnvel verða sígildir og aftur vinsæl- ir einhvern tímann. Sigurður Kári taldi ótrúlegt að nokkuð mundi lifa „nema kannski helst Dire Straits", sagði hann. „Það er engin hljómsveit í dag sem getur lifað eftir tutt- ugu ár,“ var skoðun Evu Margrétar. I sama streng tók ívar. Hann sagðist enga hljómsveit sjá í dag sem hlust- að yrði á að tveimur áratug- um liðnum. Á þessa leið voru svör flestra, en allir tóku þó fram að ómögulegt væri að sjá fram í tímann og þess vegna gæti það svo sem allt eins gerst að nýja tónlistin í dag yrði uppáhaldstónlist ung- linganna árið 2010. Núna hlusta krakkarnir á tónlistina sem mömmur og pabbar þeirra héldu vart vatni yfir á sínum tíma. Allt tal foreldra um garg og há- vaða úr hljómflutningstækj- um táninganna ætti því að hitta þá sjálfa fyrir. Óg for- eldrarnir ættu ekki að vera í vandræðum með að þekkja poppstjörnur dagsins í dag. Niðurstaðan er eiginlega sú, að fyrst foreldrarnir gátu ekki skilið tónlistarsmekk og viðhorf unglinga dagsins í dag tóku unglingarnir sig til og reyna nú að skilja viðhorf unglinganna um 1970, sem eru foreldrarnir í dag. Við skulum ætla að heimilisfrið- urinn sé meiri fyrir vikið. Haraldur Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.