Pressan - 28.11.1991, Page 13

Pressan - 28.11.1991, Page 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 13 Stjórnendur Ríkisskips: IfLMAUI jH2jm MIUJÚIMA Guðmundur Einarsson, forstjóri Ríkisskips. Frumvarp framsóknarmanna byggir á hugmyndum stjórnenda fyrirtækisins og stjórnarnefndar. Þar er gert ráð fyrir áframhaldandi ríkisstyrkjum upp á 700 til 2.000 milljónir á sjö ára tímabili. IUnV SJð ÁRUM Verðbréfafyrirtækin telja að hiutabréf í hugsanlegu hlutafélagi um Skipaútgerðina (Ríkisskip) muni ekki reynast vænlegur fjárfestingar- kostur á almennum verðbréfamark- aði ef ríkið verður meirihlutaeig- andi — eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi sem þingmenn Fram- sóknarflokksins hafa lagt fram. Sérstök undirbúningsnefnd áhugaaðila um stofnun hlutafélags um Skipaútgerðina hefur verið sett á laggirnar. Nefndin hefur valið Eyj- ólf Konrád Jónsson þingmann sem formann og er þar unnið út frá því að nýja félagið verði almennings- hlutafélag. Nefndin hefur því í raun hafnað frumvarpi framsóknar- manna. Hún gerir hins vegar ráð fyrir því í hugmyndum sínum að rík- ið styrki nýja félagið með ríkisfram- lögum í allt að sjö árum — framlög sem gætu numið allt frá 700 milljón- um upp í 2 milljarða króna. Forráðamaður eins verðbréfafyr- irtækjanna sagði gagnrýniverðast við frumvarpið að þar væri gert ráð fyrir 60 prósenta eignarhlut ríkisins og að hámarkseign annars einstaks aðila yrði 10 prósent. „Hver vill eiga í slíku félagi með ríkisjóði? Það er þá helst einhver sem hefur mikilla hagsmuna að gæta, en hugsar ekki fyrst og fremst um arð af eign sinni. Eg hygg að félag með þessu formi yrði ekki talið vænlegur kostur til að fjárfesta í af þorra aðila. Hins vegar gætu annars konar sjónarmið en ágóðasjónarmið komið inn, t.d. frá sveitarfélögum og stórfyrirtækj- um, sem byggja mikið á þjónustu þessa fyrirtækis og óttast kannski minnkandi samkeppni og jafnvel einokun. En það breytir ekki því, að hlutabréfin mundu ekki ganga vel á almennum verðbréfamarkaði." FRAMSÓKN VILL AÐ RÍKIÐ EIGI 60 PRÓSENT Frumvarp þingmanna Framsókn- arflokksins gengur út frá þvi að rík- ið leggi til allar eignir Skipaútgerð- arinnar og eigi fyrst í stað 100 pró- sent í nýja hlutafélaginu. Síðan verði heimilt að selja 40 prósent í fé- laginu með þeirri takmörkun að enginn einn aðili geti eignast meira en 10 prósent hlutafjár. Gefa á fast- ráðnu starfsfólki Skipaútgerðar rík- isins kost á sambærilegum störfum og það hefur gegnt hingað til og síð- an verði gerður þjónustusamningur við hið nýja hlutafélag vegna þjón- ustu við afskekktar hafnir landsins og um endurgjald fyrir þá þjónustu. Ekki er annað á frumvarpinu að sjá en hlutur ríkisins eigi áfram að vera „a.m.k. 60 af hundraði", en þó tiltekið að „verði hlutabréf rikis- sjóðs boðin til sölu, öll eða að hluta,“ skuli leita samþykkis Alþingis — og þá fyrst eftir „nokkurra ára reynslu". Ekki er að sjá að breyta eigi rekstri fyrirtækisins heldur eigi hann að vera svipaður rekstri Skipaútgerð- arinnar hingað til, en án hamla á skipulagsbreytingar og hagræðingu í rekstri. ALLT AÐ TVEGGJA MILLJARÐA FÓRNARKOSTNAÐUR TIL VIÐBÓTAR Frumvarp framsóknarmanna ber mjög keim af hugmyndum sem ríkt hafa innan Skipaútgerðarinnar sjálfrar. Hugmyndirnar ganga út frá því að haldið verði áfram að styrkja Skipaútgerðina með ríkisframlög- um í 7 ár. í því sambandi eru menn feimnir að nefna ákveðnar töiur. Framlagið í ár verður 234 milljónir króna, en í hugmyndum Skipaút- gerðarinnar er gert ráð fyrir stig- lækkandi ríkisframlögum, 100 til 150 milljónum til að byrja með. Gagnrýnendur frumvarps fram- sóknarmanna og hugmynda Skipa- útgerðarinnar benda hins vegar á að hvergi sé að finna tillögur um breyttan og bættan rekstur, burtséð frá breyttu eignarformi. Því sé raun- hæfara að gera ráð fyrir að Skipaút- gerðin „þurfi" áfram 200 til 300 milljóna króna ríkisframlag á ári — til að geta haldið uppi þjónustu við afskekktar hafnir. Skipaútgerðin gerir með öðrum orðum ráð fyrir 700 til 1.000 millj- óna „fórnarkostnaði" ríkissjóðs til viðbótar, en hinir, sem svartsýnni eru, sjá fyrir sér 1.500 til 2.000 millj- óna króna ríkisframlög á þessum sjö árum. Þess má geta að samkvæmt árs- skýrslu Skipaútgerðarinnar voru eignir fyrirtækisins metnar á 720 milljónir um síðustu áramót, þar af skipin á 410 milljónir og fasteignir á 140 milljónir. TAPIÐ 3,5 MILLJARÐAR Á 10 ÁRUM OG SKULDIR FELLDAR NIÐUR Árin 1981 til 1987 hljóðuðu áætl- anir fyrirtækisins, með ríkisfram- lögum, samtals upp á 82,5 milljóna króna tap að núvirði, en niðurstað- an varð 768 milljóna króna tap eða nær tífalt meira. Ríkisframlög til Ríkisskips 1981 til 1990 námu samtals 2.430 milljónum króna að núvirði. Framlagið í ár átti að vera 134 milijónir, en í fjárauka- lögum er gert ráð fyrir 100 milijón- um til viðbótar. Heildarframlög frá 1981 fara þá upp í tæpa 2,7 milij- arða. Á sama timabili var rekstraraf- koma með ríkisframlagi neikvæð um 1.060 milljónir króna. Raun- verulegur halli fyrirtækisins á þessu tímabili var því samtals um 3,5 millj- arðar króna. í apríl sl. voru síðan felldar niður vanskilaskuldir og dráttarvextir Ríkisskips við ríkissjóð og ríkis- ábyrgðarsjóð frá umliðnum árum. Þessi niðurfelling nam að núvirði 670 milljónum króna og gjörbreytir stöðu Ríkisskips. Fjármagnskostn- aður nam á umræddu tímabiii alls um 1.300 milljónum króna. Niður- fellingin þýddi að eiginfjárstaða fyr- irtækisins breyttist með einu penna- striki frá því að vera neikvæð um 113 milljónir í árslok 1989 í að vera jákvæð um 485 milljónir. NIÐURGREIDDIR STÓRFLUTNINGAR OG MIKILL STJÓRNUNARKOSTNAÐUR Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR innan og utan samgöngu- ráðuneytisins eru nokkrir þættir þyngstir á metunum þegar skýra á tapreksturinn. Þannig hefði kostn- aðurinn við að flytja hvert tonn á síðustu árum verið 4.700 krónur að meðaltali, að ríkisframlagi með- töldu. Á sama tíma væri verið að flytja áburð fyrir 1.388 krónur tonn- ið, sement fyrir 1.566 krónur tonnið og almennan varning fyrir 3.149 krónur tonnið. Meðalgjald á tonn er 2.200 krónur. Flutningur á sementi og áburði var boðinn út fyrir nokkrum árum og bauð Skipaútgerðin best. Hafa ríkisframlögin augljóslega skipt miklu máli í því sambandi. Þá vegur þungt hjá fyrirtækinu að sigla á litlu hafnirnar svokölluðu með lítinn varning. Einnig er bent á að Færeyjasiglingarnar réttlæti kaupin á þriðja skipi fyrirtækisins, án þeirra hefðu tvö skip dugað og því fylgt minni rekstrarkostnaður. Loks er á það ben t að stjórnunar- og skrifstofukostnaðu r Skipaútgerðar- innar hefur að meðaltali verið 22 prósent af rekstrartekjum, en 5 til 12 prósent hjá hinum skipafélögunum. AÐEINS FIMM HAFNIR „RAUN VERULEGT VANDAMÁL"? Þá er samkvæmt heimildum blaðsins verulega dregið í efa að vandamál ýmissa landsbyggðar- hafna séu eins alvarleg og af er látið. Bent er á bættar samgöngur á landi og möguleika á að þjóna einstökum höfnum frá öðrum höfnum með þjónustusamningum. Strangt til tek- ið séu þrjár litlar hafnir og tvær stærri sem kalla má raunverulegt vandamál; Norðurfjörður á Strönd- um, Bakkafjörður, Borgarfjörður eystra, Þórshöfn og Bíldudalur. Þetta eru þær hafnir sem dyttu út úr þjónustu án sérstakra aðgerða við það að Skipaútgerðin yrði lögð nið- ur. Nokkrar aðrar hafnir hafa síðan sérstöðu sem kallar á sérstakar úr- lausnir, t.d. Suðureyri, Grímsey og Höfn í Hornafirði. Auk þessara hafna eru nokkrar aðrar sem hvorki Eimskipafélagið né Samskip eru með á fastri áætlun; Þingeyri, Hrísey, Kópasker, Vopna- fjörður, Mjóifjörður, Djúpavík, Breiðdalsvík og Stöðvarfjörður. Þó má geta þess að Kópaskeri og Mjóa- firði er nú þjónað frá nærliggjandi höfnum^og á nokkrum hinna stað- anna eru Eimskip og Samskip með skipaafgreiðslur, þótt hafnirnar séu ekki í fastri áætlun. FORSTJÓRINN: RÍKISFRAMLAGIÐ LÆKKAR ÞVÍ FJÁRÞÖRFIN MINNKAR Guömundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, taldi ekki við hæfi að tjá sig í smáatriðum um áætlanir á bak við hið nýja félag á þessum tímapunkti. „Hvort ríkið á 70, 30 eða 0 pró- sent í félaginu er að mínu mati ekki aðalatriðið nú, það er atriði sem undirbúningsfélagið þarf að skoða. Varðandi ríkisstyrki í framtíðinni vil ég ekki nefna tölur, nema gert er ráð fyrir því að framlagið fari stig- lækkandi á næstu árum, enda liggur fyrir að fjárþörfin fer minnkandi með því að skipin eru skuldlaus orð- in.“ Um ástæður taprekstrar á umliðn- um árum sagði Guðmundur að erfitt væri að benda á ákveðin atriði öðr- um fremur. „Við erum með þéttriðn- ar áætlanir, samofið net. Einstaka hafnir eru augljóslega þannig að kostnaður við að sigla þangað er meiri en tekjurnar og skiljanlega eru það minni hafnirnar sem sýna halla. Við höfðum vonast til að framlegð af stærri höfnunum bætti þetta upp, en það hefur ekki gengið sem skyldi, því miður,“ sagði Guð- mundur.________________________ Frjðrik Þór Guðmundsson

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.