Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 18

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 IJNDIR OXINNI Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins — Er einhver verkaskiptarígur á milli Landhelgis- gæslunnar og Slysa- varnafélagsins þann- ig að hvorugur aðil- inn vill gefa eftir sitt hlutverk? „Nei, ekki á milli al- mennra starfsmanna. Samstarfið hefur ver- ið mjög gott. Mér finnst hins vegar ekki eðlilegt að björgunar- miðstöð SVFÍ, sem fer með yfirstjórn björgunarmála við strendur landsins og út að 12 mílum, skuli ekki geta milliliða- laust óskað eftir að- stoð þyrlu frá varnar- liðinu." — Er sem sé hugs- anlegt að stofnana- pólitík hafi hamlað þvi að tekið var af skarið með að fá þyrlu á slysstað strax? „Noi." . — SVFI reyndi árangurslaust í kort- er að ná sambandi við sína menn i Grindavik. Eru boðskipti í molum? „Þau eru ekki i mol- um. Álagið á öllu kerfinu var gífurlegt á þessu tímabili. Boðskiptaleiðir má alltaf bæta, en það kostar fjármuni. For- varnir og slysavarnir á Islandi þyldu meira fjármagn en til þeirra er veitt nú." — Þarf ekki að sameina þjónustu Landhelgisgæslunn- ar og SVFI í svona málum? „Ég ítreka þá skoð- un mína, að björgun- armiðstöð, sem á að fara með yfirstjórn björgunarmála, þarf að hafa ráð á öllum þeim búnaði sem grípa þarf til, þar á meðal þyrlu." Strand Eldhamars við Grindavik hefur vakiö spurningar, ekki sist af hverju þyrla varnarliðsins var ekki boðuð á vettvang fyrr. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri IDEILUM VHIDANARBU MPORSCHEBIL einu og hálfu ári, hafði tekið að sér að flytja Porsche-sport- bíl fyrir Hrafn til landsins. Bíllinn er svokallaður kit-bíll, sem felur í sér að hann er með yfirbyggingu úr plasti, framleiddur 1964 af blæju- gerð. Mun hafa samist svo um að Jón keypti bílinn úti og setti hann saman hér heima. Var bíllinn skráður á nafn Hrafns, sem greiddi Jóni jafn- óðum fyrir vinnuna í bílnum en tók um leið tryggingavíxla vegna innborgunarinnar. Varð bíllinn einhverju dýrari en gert var ráð fyrir, meðal annars vegna leðuráklæðis á sæti. Agreiningur varð síðan á milli Jóns og Hrafns um loka- verð bílsins, sem ekki hafði fengist lausn á þegar Jón lést sviplega af slysförum. Sam- kvæmt heimildum PRESS- UNNAR hljóp kergja í málið þegar tryggingavíxlarnir voru sendir í innheimtu og hefur það velkst á milli lög- manna um skeið. Það kom hins vegar fram hjá Gunn- laugi Þórðarsyni, hæstarétt- arlögmanni og föður Hrafns, að hætt hefði verið við að innheimta þá en ekki náðist í Hrafn sjálfan. Sagðist Gunn- iaugur ekki vita betur en mál- ið væri leyst, en samkvæmt heimildum PRESSUNNAR mun enn vera í gangi krafa um að Hrafn greiði loka- greiðslu til dánarbúsins. Þrœta er nú í gangi á milli Hrafns Gunnlaugssonar kuik- myndagerðarmanns og dán- arbús Jóns S. Halldórssonar út af viðskiptum þeirra með sportbU af Pbrsche-gerð. Jón heitinn, sem var einnaf kunnustu rallökumönnum ís- lands þegar hann lést fyrir Hrafn Gunnlaugsson setti Por- schinn á sölu í fyrra. Frjálsíþróttasamband fslaiids: Sex milljónir í vanskilum og skammtímalánum Frjálsíþróttasambandið skuldar sex milljónir króna. Öll skuldin erýmist í vanskil- um eða dýrum skammtíma- lánum. Fráfarandi gjaldkeri sambandsins mœtti ekki á ársþingið, sem haldið var um síðustu helgi. Á þinginu var samþykkt tillaga þess efnis að löggiltum endurskoðanda yrði falið að skoða reikninga sambandsins og gera úttekt á fjárhagsstöðu þess. Ljóst er að staða Frjáls- íþróttasambandsins er mjög erfið. Skuldirnar eru miklar, sérstaklega þegar litið er á að ársvelta sambandsins er rétt um 16 milljónir króna, og því hefur verið ákveðið að fara mjög varlega á næstu árum. Samþykkt var fjárhagsáætl- un fyrir næstu ár. Flestir munu vera sammála um að of geyst hafi verið farið í peningastjórnun og við því verður að bregðast með nið- urskurði. Þingfulltrúar voru sam- mála um að Frjálsíþróttasam- bandið leysti sjálft mál sín en leitaði ekki eftir utanaðkom- andi aðstoð. Fráfarandi gjaldkeri, Katrín Atladóttir, mætti ekki á þing- ið og gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Miklar umræður urðu um reikningana. Þeir voru gagnrýndir harðlega en ekkert kom fram sem benti til þess að misfarið hefði verið með fjármuni, heldur hefði ekki verið haldið um fjármál- in með þeirri festu sem til þyrfti. Magnús Jakobsson var endurkjörinn formaður. Haukur Ingibergsson tekur við gjaldkerastörfum sam- bandsins. Haukur er nýr í stjórn Frjálsíþróttsambands- ins. Helstu tekjuleiðir Frjáls- íþróttasambandsins eru í gegnum Lottóið og styrkir frá Iþróttasambandi Islands. Haukur Ingibergsson. Hann hefur veriö kjörinn gjaldkeri Frjálsíþróttasambandsins og fær því það verkefni aö ráöa fram úr erfiðri fjárhagsstöðu þess. Jakob Magnússon er menningarfulltrúi í sendiráði íslands í London. Aðferðir hans við íslandskynningu eru umdeildar. DEBET ,,Hann er mjög áhugasamur um eigin hag, hann er snyrtimenni með mjög gott og frjótt hug- myndaflug. Hann er afkastamikill í verkefnum sem hann tekur að sér. Ég mundi ekki vilja missa hann úr vinahópi mínum," segir Amundi Ámundason umboðsmaður. „Hann er dríf- andi ungur maður og snjall og drífandi prómó- maður," segir Rúnar Júlíusson tónlistar- maður. „Hann er heiðarlegur og hjálpsamur og drengur góður. Jakob býr yfir þeim hæfileika að hrífa fólk með sér í hvað sem er og hefur mikinn sannfæringarkraft," segir Egill Eðvarðsson kvikmyndagerðarmaður. „Jakob er mikill dugnaðarmaður og fylginn sér. Mikill smekk- maður og er réttur maður á réttum stað hjá utan- ríkisþjónustunni eins og stendur," segir Jón Ól- afsson, stjórnarformaður Skífunnar. Jakob Magnússon KREDIT „Hann hefur átt erfitt með að skipta um gír í lífinu og hefði átt að hætta í poppinu fyrir 10 árum. Hann á erfitt með að hlusta á aðra og á það til að ieita út fyrir hópinn til ann- arra sem hafa sömu skoðun til að koma hug- myndum sínum á framfæri,“ segir Ámundi Amundason. „Hann tekur kannski að sér allt of mikið í einu og er stundum að vasast í of mörgu í einu," segir Rúnar Júlíusson. „Jakob hefur eflaust sína galla en í samskiptum okkar hafa gallar hans ekki komið í ijós,“ segir Egill Eðvarðsson. „Hann vinnur stund- um svo hratt að hann er þar af leiðandi oft kominn fram úr þeim sem vinna með hon- um,“ segir Jón Ólafsson.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.