Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 27

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 27 Frumsýningargestir hjá Þjóðleikhúsinu fá um 3.000 til 3.600 krónur í styrk frá skattborgurum. Gestir á tónleikum Sinfóníunnar fá hins vegar rúmar 21 þúsund krónur í styrk. ÞIÍSUND KROUIA STYRKUR Miðaverð á tónleika Sinfón- íuhljómsveitar íslands er nið- urgreitt um 17 þúsund krónur að jafnaði af skattborgurum. Á einum tónleikum getur styrkur numið alls um 8,5 milljónum króna. Niður- greiðsla á miðum i Þjóðleik- húsið er minni, eða um 3.000 til 3.600 krónur. Þar sem gest- ir Listasafns íslands greiða ekkert fyrir aðgang að list- sýningum má líta svo á að þeir þiggi um 550 krónur í niðurgreiðslu. 21 ÞÚSUND KRÓNA NIÐURGREIÐSLA Á TÓNLEIKUM SINFÓNÍUNNAR Tónleikagestur sem kaupir sér miða í besta sæti á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands greiðir 1.500 krónur fyrir. Þar sem tekjur Sinfón- íunnar af miðasölu standa ekki undir nema um 7,6 pró- sentum af rekstrargjöldum hennar greiðir tónieikagest- urinn í raun aðeins hluta kostnaðarins af tónleikunum. Raunvirði miða hans er því um 22.760 krónur. Mismun- urinn á þeirri upphæð og þeim 1.500 krónum sem tón- leikagesturinn greiddi, eða um 21.260, kemur úr ríkis- sjóði og frá ríkisstofnunum. Verð á miðum á sinfóníu- tónleika er mismunandi eftir því hvar gestir sitja í Háskóla- bíói. Það er frá 900 og upp í 1.500 krónur, meðalverðið því um 1.200 krónur. Meðal- niðurgreiðslur á miða eru samkvæmt því um 17 þúsund krónur. Ef gengið er út frá því að tónleikagestir fylli Há- skólabíó að hálfu nema þær um 8,5 milljónum á hverja tónleika. Þessi niðurgreiðsla kemur annars vegar beint úr ríkis- sjóði og hins vegar frá Ríkis- útvarpinu. Ríkisútvarpið er sem kunnugt er á fjárlögum og ríkissjóður greiðir tap- rekstur þess. Það má því segja að niðurgreiðslan á miðunum á tónleika Sinfón- íunnar komi beint úr ríkis- sjóði, þó svo að hluti hennar renni í gegnum bókhald Rík- isútvarpsins. Þrátt fyrir að tónleikagestir greiði ekki nema rúm sjö pró- sent af rekstrarkostnaðinum er verði aðgöngumiða að tónleikum Sinfóníunnar mjög stillt í hóf. Til saman- burðar kostar um 500 krónur á erlenda bíómynd og um 700 krónur á innlenda mynd. Tónleikar Sinfóníunnar verða því að teljast tiltölulega ódýr skemmtun, — mjög ódýr ef miðað er við að tónleikarnir eru aðeins fluttir einu sinni og af miklum fjölda manna. HVER SYNING STYRKT UM 1,3 MILLJÓNIR Gestir í Þjóðleikhúsinu greiða einnig 1.500 krónur á venjulegar sýningar. Ef mikið er lagt í uppsetninguna hækkar miðaverðið. Þannig kemur til með að kosta 1.800 krónur á Rómeó og Júlíu. Þjóðleikhúsið fær 274 millj- ónir til rekstrar á fjárlögum og aukafjárlögum. Inni í þeirri tölu eru ekki framlög til viðgerða á húsinu sjálfu. Áætlað er að miðasala skili um 137 milljónum á árinu. Styrkur ríkisins er því helm- ingi hærri en framlag leikhús- gesta. Með öðrum orðum þá kost- ar miði á leiksýningu í Þjóð- leikhúsinu 4.500 til 5.400 krónur. Gestirnir greiða einn þriðja og ríkið niðurgreiðir miðann að tveimur þriðju. Þjóðleikhúsið tekur 530 manns í sæti. Ef gert er ráð fyrir að selt hafi verið í um 75 prósent sætanna er heildar- styrkurinn á hverja sýningu um 1,3 til 1,4 milljónir króna. FRÍTT INN OG ÓKEYPIS KAMPAVÍN í HLÉI Borgarleikhúsið er sjálf- stæð stofnun en nýtur styrkja frá ríki og borg. Þeir styrkir ná hins vegar ekki að greiða jafnstóran hluta af rekstrar- gjöldum Leikfélags Reykja- víkur og hjá Þjóðleikhúsinu. Undanfarin ár hafa styrkirnir numið rétt um 50 prósentum af útgjöldunum. Miðarnir í Borgarleikhúsið eru ekki nið- urgreiddir nema um helming á meðan miðarnir í Þjóðleik- húsinu eru niðurgreiddir um tvo þriðju. Opinberir styrkir til Leikfé- lags Reykjavíkur eru rúmar 100 milljónir í ár. Styrkir til rekstrar Þjóðleikhúsinu eru hins vegar 274 milljónir, eins og áður var sagt. Mismunur- inn er 174 milljónir. Einn leik- félagsmanna sagði í samtali við PRESSUNA að ef Leikfé- lag Reykjavíkur nyti jafnmik- illa styrkja og Þjóðleikhúsið gætu þeir haft frítt inn á leik- sýningar og boðið öllum gest- um sínum upp á kampavín í hléi! Það er dálítið einkennilegt, í Ijósi þess hversu miklu meira tap er á rekstri Þjóð- leikhússins en Leikfélagsins, Leikfélagsmenn segjast geta haft frítt inn á leiksýningar og boöið öllum upp á kampavín í hléi fyrir styrkinn sem Þjóðleikhúsið fær. að miðaverð hjá Leikfélaginu er örlitlu hærra, eða 1.600 krónur á almenna sýningu í stað 1.500 króna hjá Þjóðleik- húsinu. Hluti af ríkisstyrkjun- um til Þjóðleikhússins fer því í að halda miðaverðinu undir því sem samkeppnisaðilinn getur boðið upp á. 3 ÞÚSUND TIL AÐ FÁ EITTHVAÐ FYRIR 24 ÞÚSUND Eitt dæmi enn um niður- greiðslu á list er í Listasafni ís- lands. Þar er ókeypis á sýn- ingar. Rekstrarkostnaður safnsins er tæplega 43 millj- ónir. Ef ætti að láta gesti safnsins standa straum af þeim kostnaði þyrftu þeir að greiða um 550 krónur inn á sýningar. Ef markið væri sett lægra mætti innheimta fjórð- ung af rekstrarkostnaðinum með því að krefja gesti um 140 krónur fyrir að skoða sýningar safnsins. í umræðum um landbúnað- armál hefur verið deilt um hverjir njóti niðurgreiðsln- anna. Sumir halda því fram að þær tilheyri neytendum, aðrir bændunum og enn aðr- ir líta á þær sem stuðning við byggðina í landinu. Sjálfsagt eru svipuð viðhorf uppi um niðurgreiðslur á miðum á leiksýningar, tónleika og list- sýningar. Hægt er að líta á þær sem styrk til starfs- manna viðkomandi stofnana, styrk til sýningar- og tón- leikagesta eða styrk til handa listinni sjálfri. Hvernig svo sem litið er á málið lítur dæmið þannig út, frá skattborgaranum séð, að ef hann leggur til 3.000 krón- ur í aðgöngumiða á eina Sin- fóníutónleika og eina leik- sýningu í Þjóðleikhúsinu get- ur hann sótt þær rúmu 24 þúsund krónur sem hann var þegar búinn að greiða fyrir þessa þjónustu. Ef hann legg- ur ekki til þessar 3.000 krón- ur fær hann ekkert fyrir 24 þúsund krónurnar sínar. Gunnar Snnári Egilsson En svona hugsar maður reyndar i hverju jólabókaflóð- inu á eftir öðru. I fyrra, þegar Bubbi, Megas og allir hinir komu út, hélt maður að útgef- endur hefðu gelt sig. Nú væri það búið. Eftir þetta yrðu öll flóð aðeins sprænur. En hvað gerðist? Útgefendur hafa enn á ný galdrað fram flóð sem tekur öllum eldri fram. Á næsta ári munu þeir enn fara fram úr sjálfum sér. Þá komaþeirábyggilega með ævi- sögu Halla til að fylgja vel- gengni Ladda eftir. Og annað bindið i æviminningum Ómars Ragnarssonar sem verða ör- ugglega tíu bindi. Hann fer ekki að missa hárið fyrr en i sjötta bindi. Ævisaga Rósu ingóHs- dóttur, Næst á dagskrá — end- urminningar kynnis, kemur út ’lafsson með viðauka um Bjössa bollu. Heimir Steins- son mun sjálfur skrifa endur- minningar sínar frá Þingvöllum og fyrsta bindið i æviminning- um Hrafns Gunnlaugssonar litur dagsins Ijós, — þær verða tileinkaðar Ingmar Bergman, eins og þær séu honum að kenna. Næstu jól verða lika biskupajól þvi þá munu þrjár bókaútgáfgur gefa út endur- minningar þriggja biskupa. Þegar fer að líða að jólum gripur um sig gifurleg spenna um hvaða biskup er vinsælastur til gjafa meðal þjóðarinnar og um tíma liggur við að kirkjan klofni sökum þessa. Rúnar Júliusson verður meö sinar æviminning- ar og líka Raggi Bjarna, Ingi- marEydalog Valgeir Guöjóns- son. Jakob Frimann Magnús- son mun gefa út bókina Árið mitt í utanríkisþjónustunni og Hemmi Gunn sendir frá sér sjálfsævisögu. Þá kemur út bókin sem Garöar Cortes byrj- aði á í fyrra þegar Kristján Jó- hannsson fékk sína bók. Það kemur líka út bók um Helga Tómasson, Wathne-systur og Joe Grimson. Það verður hins vegar lítiö um skáldsögur sem endranær. Það er helst að einhverjar kon- ur sendi frá sér bækur, enda er skáldsagan svo illa borguö að skáldastéttin er orðin að kvennastétt. Það er helst að einhverjir drengir úr Voga-slömminu reyni að senda frásérbókogbók. Ogsvonátt- úrlega Jón Ottar. TVÍFARAKEPPNI PRESSUNNAR - 22. HLUTI Hérkoma tvifararsem báðireru herskáir. Generáll George Cust- er leiddi Bandaríkjaher inn i eina mestu auðmýkingu i sögu hans þegar indíánar stráfelldu hermenn við Little Bighorn. Jón Baldvin Hannibalsson leiddi íslendinga hins vegar í orrustunni um EES og hefur fengið mun mildari dóm i sög- unni en Custer, — enn að minnsta kosti. En báðireru þeir skeggjaðir (Jón Baldvin klippir sitt aðeins sneggra en Custer), báðir hafa þeir liðað hár, báðir eru þeir með hvasst nef og augnaráð og báðir gengu þeir með hatt, — Custer allt fram i andlátið en Jón Baldvin allt þar tilhann seldihattinn á uppboði. smaa letrið Hvern fjárann ætla þeir eig- inlega að gefaút um næstu jól? Er von að spurt sé? Nú þegar hrúgast yfir okkur æviminning- ar Jónasar Jónassonar, Ladda, Ómars Ragnarssonar, Errós og Heiöars snyrtis. Hefði ekki ver- ið vit í því að treina þetta dálít- ið? Láta einn og einn af bestu molunum um hver jól i stað þess að hrúga þeim öllum i einu á veisluborðið?

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.