Pressan - 28.11.1991, Page 33
u
JL iéraðsfréttablöðum fjölgar ört
þessa dagana. Verið er að undirbúa
nýtt biað í Húnavatnssýslum, þar
sem hinn reyndi
blaðamaður Jón
Daníelsson verður
ritstjóri. Þá hefur
nýtt blað, Sunn-
lenska fréttablaðið,
nýhafið göngu sína.
A sama tíma er eitt
smærri blaðanna að fara í frí, Graf-
arvogsblaðið. Ritstjóri þess er Guð-
mundur Sæmundsson. Blaðið fer
í frí þar sem undirtektir við það hafa
ekki verið nægilega góðar til að
halda útgáfunni áfram. Flest hefur
brugðist í útgáfu blaðsins, svo sem
sala, auglýsingar og dreifing, ef
marka má það sem segir í blaðinu
sjálfu. Eigi að síður er ritstjórinn
ekki uppfullur af svartsýni. Um eig-
in leiðaraskrif segir hann orðrétt: í
leiðaranum er fjallað um málin á
tæpitungulausan hátt og ákaflega
jákvæðan . . .
F
JLlinn kunnasti íþróttafréttamað-
ur landsins, Sigmundur Ó. Stein-
arsson á Morgunblaðinu, er að
undirbúa sýningu á
vatnslitamyndum.
Ekki hefur verið
ákveðið hvar sýn-
ingin verður, en
stefnt er að því að
hún verði opnuð um
miðjan desember.
Sigmundur, eða Sossi eins og hann
er jafnan kallaður, hefur ekki sýnt
verk sín áður, enda fyrst og fremst
verið frístundamálari. . .
I-leiftur á Ólafsfirði er þjálfara-'
laust eftir að Aðalsteinn Aðal-
steinsson sagði óvænt upp hjá fé-
laginu, en hann ætlar að ganga til
liðs við sitt gamla félag, Víking. Að-
alsteinn var fyrirliði Víkings þar til
hann flutti sig norður og þjálfaði og
lék með Leiftri í þriðju deildinni síð-
asta sumar og missti þar með af ís-
landsmeistaratitiinum. Leifturs-
menn ætla ekki að vera án þjálfara
og hafa þess vegna átt í viðræðum
við Sigurð Björgvinsson KR-ing
og Magnús Jónsson, sem hefur
þjálfað annan flokk Fram. Ekki er
búið að ráða þjálfara, en eins og
staðan er nú er líklegast að Magnús
taki við liðinu . . .
Öll hádegi og öll kvöld
frá 1. desember.
Við tökum smá forskot á jólin og
leggjum á borð að höfðingja sið.
Að sjálfsögðu er allt það besta úr
íslenska búrinu, til dæmis heitt
og kalt hangikjöt ásamt laufabrauði.
Við lumum einnig á klassískum
jólaréttauppskriftum frá útlöndum
og berum fram danska riflasteik,
sænska síldarrétti, gljáð grísalæri
og margt fleira girnilegt góðgæti
sem ómissandi er á höföingjaborðum,
Einnig jólaglögg að hætti hússins.
Kynnið ykkur
gistitilboð Holiday Inn
í desember.
Jólasælgæti efth
Sigtúni 38 -jMrar nánari upplýsingar i sima 689000 - Fax: 680675
m.a. Háteigur á efstu hæð
ILJSIÐ
LAUGAVEGI 178, SÍMI 686780
Dagskinna
frá degi til dags...
... er haukur í horni fyrir þá sem skipuleggja
vilja tíma sinn. Dagskinna er nýtt íslenskt dag-
bókarkerfi, klætt í fyrsta ílokks kálfskinn. Allar
upplýsingar eru á íslensku, lagaðar að íslenskum
aðstæðum og Dagskinnu fylgir fjögurra tíma
námskeið í tímastjórnun.
jj Dagskinna er árangurs-
ríkt dagbókarkerfi í glæsi-
leguin búningi. Hún er
góð gjöf og ekki síðri eign,
Dagskinnan fæst í þremur litum
og tveimur stærðum, sú minni á
7.900,- kr. og sú stærri á
7.900»" 1 9.900,- kr. Innifalið í
verði er gylling á nafni
eiganda Dagskinnunnar.
Kynntu þér Dagskinnu
frá Leðuriðjunni lif. [ |
Atso n-Le ð u ri ðj an
Hverdsgötu 52 • 101 Reykjavík
Sími 91-2 14 58 • Fax 91-2 14 54
LEÐURVORUR 1