Pressan


Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 34

Pressan - 28.11.1991, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR PRESSAN 28. NÓVEMBER 1991 SVIKAFgAPPAR HREKMLÓMAR Namibíumaðurinn, Thorbjörn Gunnarsson, var dæmdur í fangelsi í fyrri viku fyrir að hafa haft fé og vörur af mönnum með blekkingum. Hann laug til um þjóðerni, ætterni, starfsmenntun og flest annað sem kunni að verða til að liðka fyrir viðskiptum hans. En hann er síður en svo sá fyrsti sem beitt hefur landann bellibrögðum og hrekkjum. Frægastur er sjálfsagt Einar Benediktsson sem einnig flutti hrekki sína og svik út, en til eru fleiri sögur af slíkum svikahröppum og hrekkjalómum. Einn réð sig sem lyfjafræðing í apótek, aðrir seldu afdankaða síldarbræðslu sem þeir áttu ekki og enn aðrir vísiteruðu frystihús víða um land og lifðu í vellystingum á kostnað eigendanna. Ýmsar sögur gengu um Einar Benediktsson og til voru þeir er sögðu hann vilja selja ísland út- lendingum. Namíbíumaðurinn Þorbjörn Gunnarsson. Hann sneri sig út úr vandrœðunum með því að höfða til samúðar fólks er hann sagði föður sinn nýlát- inn. í sídustu uiku birtist viötal hér í PRESSUNNI uiö Thor- björn Gunnarsson, hinri suo- kallada Namibíumann. Thorbjörn hefur verið dœmd- ur í sex mánada fangelsi uegna fjársuika, þar af helm- ingurinn skilordsbundinn. Hann þótti ekki mjög sann- sögull og suo viröist sem sög- urnar er hann sagdi af sjálf- um sér hafi verid nœr skáld- skap en sannleikanum. Alltaf ödru huerju birtast fréttir eda sögur ganga manna á milli um stórlygara. Menn sem hafa farid um og gabbad saklaust fólk upp úr skónum. Sumt afþessu hefur verid tiltölulega saklaust en annaö öllu alvarlegra. í sumum tilfellum hefur fólk nefnilega tapað umtals- verðum fjárhæðum þegar það lætur blekkjast af gylli: boðum ókunnugra manna. í öðrum tilfellum hafa engir eftirmálar orðið aðrir en þeir að þeir sem létu blekkjasF hafa mátt lifa með skömm- inni alla sína tíð. Og aldrei fengið tækifæri til að gleyma því þegar þeir létu Ijúga sig fulla. EINAR BEN Á AÐ HAFA SELT JARÐSKJÁLFTA OG NORÐURLJÓS Sögur af þessu tagi gengu um Einar Benediktsson skáld. Sjálfsagt eru einhverj- ar þeirra orðum auknar en hitt er víst að stundum tók skáldskapurinn völdin af Ein- ari þegar hann var að segja mönnum frá hugðarefnum sínum. Ákefð hans í að vinna menn á sitt band var stund- um svo mikill að lýsingarnar urðu tneiri en efni stóðu til. Þær sögur fóru um bæinn eins og eldur í sinu að Einar hefði selt útlendingum bæði jarðskjálftana á Islandi og norðurljósin. Hann átti að hafa fengið stórfé fyrir þessa sölu og hafa þarna haft er- lenda auðmenn að fíflum. Einnig var talað um að Ein- ar hefði selt Gullfoss útlend- ingum. Útlendingarnir hefðu staðið í þeirri trú að þarna væri um að ræða hinn eina sanna Gullfoss, en í Ijós kom- ið að þarna var um að ræða samnefndan foss í lítilli lækj- arsprænu. Á sömu forsend- um á Einar að hafa selt Geysi. Ekki þó hverinn, eins og kaupandinn taldi, heldur hús- ið Geysi, sem stóð við Skóla- vörðustíg i Reykjavík. Hvað sem hæft er í þessum sögum þá var Einar gæddur ótrúlegum sannfæringar- krafti og fólk undraðist hversu auðvelt hann átti með að sannfæra menn og fá þá til að leggja peninga í þau verk- efni sem hann hafði á prjón- unum hverju sinni. í ævisögu Einars, Vœringj- anum mikla eftir Gils Gud- mundsson, er saga sem stað- festir þetta. Þar er vitnað í samtal er Björn Th. Björns- son átti við Sigfús Blöndahl. Þar segir Sigfús frá því er Ein- ar hitti Svisslending á leiðinni frá París til Kölnar. Þeir höfðu aldrei fyrr hist en Svisslend- ingurinn lét Einar fá 25 þús- und þýsk mörk til kaupa á hlutabréfum í Titan, fyrirtæki Einars. Sigfús var konsúll Þjóðverja hér á landi og Svisslendingurinn kom hing- að til lands til að forvitnast um afdrif peninganna. Einar var ekki á landinu þegar þetta var og Svisslendingur- inn gat því ekki hitt hann. Sig- fús segist hafa gefið honum litlar vonir um að hann fengi nokkuð fyrir peningana sína. LÉTU BÆTA KAFFIAÐSTÖÐU STARFSFÓLKS Fyrir næstum því fjörutíu árum fóru þrír ungir íslend- ingar um landið og heimsóttu fiskvinnslufyrirtæki og kynntu sig sem starfsmenn sjávarútvegsráðuneytisins. Þeir kváðust vera að gera út- tekt á aðbúnaði starfsfólks og gerðu ýmsar athugasemdir. Þessum stórmennum úr ráðuneytinu var að sjálf- sögðu tekið kostum og kynj- um og haldnar veglegar veisl- ur. Sem fyrr sagði fannst þeim fyrirtækjunum í ýmsu ábóta- vant og létu meðal annars stórbæta kaffiaðstöðu starfs- fólks á einhverjum stöðum. Sagan segir að upp um þá hafi komist þegar einhver sá ástæðu til að síma til Reykja- víkur og athuga málið betur. Það þótti víst nefnilega grun- samlegt hvað slaknaði á kröf- um ungu mannanna þegar minnst var á peninga. Einn þessara ungu manna á að hafa verið Ómar Konráds- son tannlæknir. í samtali við PRESSUNA vildi Ómar ekk- ert um þennan atburð ræða. Hann kvað þetta löngu gleymd bernskubrek og frá- bað sér umfjöllum um þetta í blöðum. Annar var Þoruald- ur Sigurdsson, en hann frels- aðist fyrir mörgum árum og starfaði þegar síðast fréttist að trúmálum í Svíþjóð. Um þann þriðja er lítið vitað ann- að en það að hann var á þess- um árum kallaður Danni blakk. ÞÝSKUR HUNDASÉR- FRÆÐINGUR Á FERÐ UM LANDIÐ Um Ómar eru reyndar til fleiri sögur. Þannig á hann einhvern tíma að hafa farið um, við annan mann, og kynnt sig sem þýskan hunda- sérfræðing. Hann talaði tóma þýsku en félaginn túlkaði. Nú var haldið á sveitabæina og hundar skoðaðir. Þeim varð vel ágengt og virtust flestir bændur áfjáðir í að koma rökkum sínum í verð. Þeir fé- lagar þágu veitingar á bæjun- um og héldu síðan á brott með hundana, sem þeir borg- uðu með ávísunum. Sagan segir að oft hafi þeir fengið smáfjárhæð til baka. Þegar þeim þótti sem þeir væru búnir að kaupa nógu marga hunda, og þröngt var orðið í bíl þeirra félaga, var hundun- um einfaldlega hleypt út á hentugum stað og hlupu þeir þá rakleitt til síns heima. Ávísanirnar reyndust aftur á móti verðlausar. Önnur er á þá leið að ein- hverju sinni hafi Ómar verið staddur í sólarlöndum. Hann kom þá inn í leðurvöruversl- un og sá þar forláta leður- jakka sem hann ágirntist rnjög en verðið þótti honum heldur hátt. Hann talaði þá við eigandann og kynnti sig serri fararstjóra fyrir stórum hópi Islendinga. Honum þótti ekki ótrúlegt að auðvelt yrði fyrir sig að fá íslendingana tii að koma í búðina og þá yrði verulega verslað. Eigandinn sá þarna kærkomið tækifæri til mikilla viðskipta og það reyndist Ómari auðvelt að fá jakkann keyptan fyrir lítið verð. Hann gekk síðan út í sólina og kom aldrei nálægt þessari búð meir. Ómar vildi ekkert tjá sig um prakkarastrik sín í gegn- um tíðina við PRESSUNA og við seljum þessar sögur því ekki dýrar en við keyptum þær. En það breytir ekki því að allar eru þær sagðar um Ómar og eru nokkuð skemmtilegar. ÓLI KOMMI LYFJAFRÆÐINGUR í IÐUNNARAPÓTEKI Um Þorvald Sigurðsson, sem fyrr er nefndur, eru einn- ig til fleiri sögur. Þannig mun hann einhvern tíma hafa ver- ið staddur í Hveragerði einn síns liðs en var búinn að stofna til kunningsskapar við nokkuð af fólki. Þorvaldur var mælskur mjög og gæddur sannfæring- arkrafti miklum. Hann hafði gaman af að halda ræður og hélt þær við öll möguleg og ómöguleg tækifæri og kynnti sig þá oftar en ekki sem ann- an en hann var. Einn þeirra sem hann kynntist í Hvera- gerði mun hafa verið í tygjum við stúlku eina og höfðu þau hug á að gifta sig. Þorvaldur taldi það lítið mál og ekki nema sjálfsagt að gera þeim þann greiða að pússa þau saman og kvaðst hafa til þess öll tilskiiin leyfi. Á endanum hafði Þorvaldur gift þau nokkur pörin áður en upp

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.