Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 2

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 23.APRIL1992 EINAR KÁRASON. Formaöur Rithöfundasjóös fékk fimm ára laun úr Rithöfundasjóöi. STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR. Vara- formaöurinn fékk þriggja ára laun. FIMM ÁRA LAUN SEM RITHÖFUNDUR Nú er verið að gera ljós úrslit úthlutunamefndar Rithöfunda- sjóðs Islands. Samkvæmt heim- ildum PRESSUNNAR var einn hinna heppnu Einar Kárason, en hann fékk fimm ára laun úr sjóðnum. Einar er formaður Rit- höfundafélagsins. Varaformaður jjess félags, Steinunn Sigurðar- dóttir, fékk þriggja ára laun. Það skal þó tekið fram að hvorugt þeirra átti sæti í úthlutunamefnd- inni. Þetta var fyrsta úthlutun úr sjóðnum eftir að reglum hans var breytt þannig að hægt er að veita styrki sem samsvara meira en árslaunum. NAFNORÐAMYND- UN í TOKHARÍSKU OG FLEIRA GOTT ÚR _ RANNSÓKNARSJÓÐI Nýlega var úthlutað úr Rann- sóknarsjóði Háskóla íslands 65 milljónum króna til 71 verkefn- is. Þar kennir margra grasa og getur fólk farið að hlakka til nið- urstaðna úr þessum rannsókn- um. Erlendur Haraldsson fékk 150 þúsund krónur til að fram- kvæma sálfræðilega athugun á bömum með meintar minningar um tyrra líf. Gerður G. Ólafs- dóttir fékk 300 þúsund til að kanna námsferil nemenda í framhaldsskóla. Jón Torfi Jón- asson fékk hins vegar aðeins 200 þúsund krónur tii að kanna feril framhaldsskólanemenda, hver svo sem munurinn er. Guð- ný Guðbjörnsdóttir fékk 300 þúsund til að skoða menntun og kynferði í kvennafræðilegu ljósi. Sigrún Stefánsdóttir fékk 250 þúsund krónur til að svara spum- ingunni hvort fréttir endurspegli raunveruleikann. Þorbjörn Broddason ætlar að skoða böm og sjónvarp á íslandi og fær til þess 200 þúsund krónur. Helga Kress fékk 240 þúsund til að rannsaka kynferði sem upp- sprettu orðræðu í íslenskum fombókmenntum. Jörundur Hilmarsson fékk sömu upphæð til að kanna nafnorðamyndun í tokharísku, sem mun hafa dáið út tyrir þó nokkmm öldum. Páll Skúlason fékk 100 þúsund kall til að rannsaka ltfsskoðanir. Og Jóhann Ágúst Sigurðsson fékk 200 þúsund krónur til að kanna áhrif sumarvinnu á heilsufar unglinga. Hér hefúr fátt eitt verið talið af réttum þeim sem há- skólamenn munu bera á borð tyrir þjóðina á næstu ámm. KRISTÍN ÞARF AÐ SKIPTA UM NAFN Á MYNDINNI Kvikmynd Kristínar Jó- hannesdóttur, „Svo á jörðu sem á himni“, verður fmmsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í byrjun næsta mánaðar. Myndin mun ekki bera þetta nafn þar. Belgísk kvikmyndagerðarkona mun hafa gert kvikmynd fyrir nokkmm ámm og nefnt hana eftir þessari tilvitnun úr Faðir- vorinu. ÓLAFURVILL UM- MÆLI PÉTURS DAUÐ Ólafur Sigurgeirsson, lög- maður vaxtarræktarmanna, hef- ur höfðað mál á hendur Pétri Péturssyni, lækni á Akureyri, fyrir ummæli sem höfð vom eftir Pétri eftir að upphaflegu máli vaxtarræktarmanna gegn honum vegna ummæla um hormóna- lyfjaneyslu þeirra var vísað frá. Meðal ummæla sem Ólafur vill Guffi á Gauknum býöurtil skemmti- siglingar á sumardaginn fyrsta. Sumar- sigling um sundin blá Veitingahúsið Jónatan Livingston Mávur hyggst fagna sumri með siglingu um sundin blá á gamla flóabátnum Baldri. Farið verður með lúðrablæstri og fánum niður að gömlu höfninni og að lokinni siglingu efnt til sumarkvöld- verðar, sem er þó ekki innifalinn í boðinu. Sendur hefur verið út fríður gestalisti í tilefni þessa og má þar sjá margt þekktra manna og kvenna. Hópurinn sem boðið er fer vítt og breitt um þjóðfélagið og má sjá á listanum forstjóra, þingmenn, bankaritara, arkitekta, skrifstofudömur, fjöl- miðlafólk, veitingamenn, nema og líkamsræktarfólk, svo eitthvað sé nefnt, að ógleymdum fjölmörgum ónafn- greindum tfúm. Það vekur athygli að suma virðist skorta foðumafn og eru aðeins Jón eða Addi, á meðan aðrir njóta fúllrar nafn- giftar og heimilisföng fylgja. Það má einnig lesa úr listan- um hverjir eru ólofaðir og má þar á meðal nefna Eyjólf Kristjánsson, Pétur Kristjánsson og Sóleyju Jóhanns- dóttur dansara. Davíð Oddsson er forsetisráðherra og F riðrik er orðinn Sófus- son. Tveimur er boðið úr Schram-ættinni en eru nefndir Scramarar. að verði dæmd dauð og ómerk em þessi, sem Pétur lét falla í út- varpsfféttum: „Að vísu ber þetta náttúrlega að þakka Ólafí Sigur- geirssyni í fyrsta lagi fyrir að hafa undirbúið stefnu sína svona illa og ófagmannlega að málútu var vísað frá vegna vanreifunar." Einnig: „Mér skilst að lögmaður stefnenda sé flúinn á tjöll og hafi lokað farsímanum. Hann hefur ekki vemlega ánægju af þessu máli." Og Ólafur stefnir einnig vegna þessarar klausu í Degi: „Sjálfseyðingarhvötin er sterk hjá honum," sagði Pétur Péturs- son um þá fyrirætlan lögmanns vaxtarræktarmanna að halda málinu áfram. „Það er minn hag- ur að málið haldi áfram og nið- urstaðan á föstudag segir sína sögu um hæfileika Ólafs Sigur- geirssonar til að reka mál fyrir dómi.“ Og úr DV: „Ólafur kem- ur mér ekki lengur á óvart. Ég lít svo á að hann sé í einhverjum ógöngum, blessaður maðurinn.“ HRAFN LÍKA ÓSÁTT- URVIÐ PRESSUNA Eins og PRESSAN skýrði frá fyrir viku hefur Hrafn Gunn- laugsson hótað málaferlum gegn Helgarblaðinu ef blaðið dregur ekki ummæli um hann til baka, en tilgreind umrnæli em úr frétt blaðsins fyrir um mánuði. En Hrafn er í málarekstri við fleiri. Hann hefur sent PRESSUNNI bréf þar sem hann tilgreinir þrenn ummæli úr palladómi sem birtist um hann undir fyrirsögn- inni ,Álafoss kvikmyndannnar í dálkinum „Menn". Hrafn ®úar að kæra þessi ummæli til siða- nefndar Blaðamannafélagsins og segist íhuga málsókn- PRESSAN skrifaði þó nokkuð um Hraín og deilur innan féhlSa kvikmyndagerðarmanna í kjöl- far síðustu úthlutunar Kvik- myndasjóðs. Palladómurinn & þó það eina sem fór fyrir bijósúð áHrafni. SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR. Fékk styrk til aö svara spurningunni hvort fjölmiölar endurspegli raunveruleikann. PÁLL SKÚLASON. Fékk 100 þúsund kall til aö kanna lífsskoðanir. PÉTUR PÉTURSSON. Enn í málavafstri vegna ummæla sinna um vaxtarræktarmenn. ÓLAFUR SIGURGEIRSSON. Stefnir Pétri fyrir ummæli sem Pétur lét falla eftir aö dómstólar vísuöu síðustu stefnu frá. HRAFN GUNN- LAUGSSON. í máli viö Helgarblaöiö, PRESSUNA og ef til vill fleiri. KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR. Getur ekki notað nafniö „Svo á jöröu sem á himni" í Cannes. LÍTILRÆÐI af páskaprestum Svavar, er ekki hægt að fá leigt herbergi til aldamóta áður en Ferðamálasjóður tekur reksturinn yfir? „Nei. Þaðfyrirtœki sem er búið að reka þetta hótel síðan 1988 var sérhlutafélag og bróðir minn samdi við það um leiguna. Veröld hefur aldrei séð um reksturinn á þessu hóteli, það er bara misskilningur. “ Svavar Egilsson er fyrrverandi eig- andi Veraldar en núverandi starfs- maöur Hótels HötOa. BróOir Svav- ars, Egill Egilsson, hetur nú tekiö reksturinn á leigu til aldamóta. Ég er jafnan í mjög merkilegu sálarástandi þegar ég er að losa svefninn á morgnana. Þetta er víst kallað að vera milli svefns og vöku og sálarástandið helgast af því að ekki er fyllilega ljóst hvort maður er í draumalandúiu eða blákaldur veruleikinn blasir við í allri sinni dýrð. Við höfðagaflinn á rúminu mínu er útvarpið og eiginlega bregst það ekki að í morgunsár- ið kveiki ég ósjálffátt á því áður en ég kemst til fúllrar meðvit- undar. Eftú að kviknað er á tækinu fer það að taka virkan þátt í draumum mínum þannig að um lengri eða skemmri tíma fæ ég að njóta þeirra forréttinda að upplifa morgunútvarpið í draurrú. Ég verð sjálfur píanistúin ef Hóróvits eða Asla'nasí eru í morgunútvarpinu, sveifla tón- sprotanum þegar symfóníur hljóma, Verdí umhverfú mér í il grande tenore og svona mætti lengi telja. Talað mál getur líka orðið snar þáttur í þessum stórmerki- legu morgunútvarpsdraumum mínum. Ég kemst í morgunútvarps- draumarús. Þannig var það tildæmis á skírdagsmorgun — eða var það á föstudagsmorguninn langa? — að ég greúidi milli svefns og vöku að eúihver kvenmaður var í morgunútvarpinu að ræða við einhver hjón — ég held að aust- an. Hjónin vom bæði prestar og auðvitað gráupplagt að tala við þessa blessaða þjóna guðs við upphaf helgustu hátíðar krist- inna manna, þegar þess er minnst hvemig frelsarinn var smánaður, svikinn, píndur og krossfestur og hvemig hann reis upp aftur á þriðja degi og settist við hægri hönd guðs föður al- máttugs. Svo undarlega vildi til að ég glaðvaknaði þegar umræðan milli útvarpskonunnar og prest- anna tveggja var komúi á skrið. Ég hrökk eiginlega upp við það að útvarpskonan vildi fá að vita hvort ekki væri bindandi að vera presmr um páskana, hvort ekki væri svekkjandi fyrir presta að komast ekki á skíði. „Við getum nú kannski skot- ist,“ sagði kvenpresturinn og presturinn maður hennar tók undúþað. En útvarpskonunni hélt áfram að renna það til rifja hvemig páskahelgin væri prestum ger- ónýt af því þeir kæmust ekki á skíði. Hvort ekki væri hugsanlega hægt að vera meúa á skíðum ef múina væri að gera í kirkjunum. Já og meúi snjór. Nota páskahelgina til að biðja guð um fannfergi ffamá sumar. Til þess líka að vinsælustu fermingargjafimar um þessar mundir — vélsleðamú — kæmu að notum. Og svo héldu þau áfram að ræða það í morgunútvarpinu við upphaf páskahelginnar, kven- presturinn, presturinn og út- varpskonan, hvort það væri ekki afskaplega bindandi að vera prestur á helgidögum sérstak- lega ef nógur væri snjórinn. En ég kleip mig í handlegginn og hugsaði sem svo: — Mig hlýtur að vera að dreyma að ég sé vakandi. Svo rann mér í bijóst og var óðar orðúrn prestur á bæn fyrú altarinu á helgustu hátíð krist- inna manna, páskunum. Og ég bað: Blessaður lausnarinn blíði þess bið ég af heitri þrá , að skotist ég geti á skíði skamen og Italelújá.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.