Pressan - 23.04.1992, Page 17
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992
17
Þ,
ótt síðustu fjármálaráðherrar hafi
þrýst á um að allir þjónustuaðilar tækju
UPP sjóðvélar lögum samkvæmt eru
enn margir sem þijósk-
ast við. Stundum er þar
erfiðum aðstæðum um
að kenna. I Alþýðu-
blaðinu er meðal ann-
ars bent á að á stöðum
eins og Kolaportinu,
Undralandi og Bæjarins bestu pylsum
séu sjóðvélar ekki notaðar. Sérstaklega
er tekið fram að hjá Bæjarins bestu, þar
sem veltan sé veruleg, sé sjóðvél en
hún sé ekki notuð. Því má bæta við að
eigandi Bæjarins bestu er Kristmund-
11 r Jónsson. Hann er faðir Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur og því um
leið tengdafaðir Friðriks Sophussonar
fjamiálaráðherra...
N
1 ýlega var Kristján Björn
Snorrason ráðinn bankastjóri Búnað-
arbankans í Borgamesi. Búnaðarbank-
inn gerir vel við sitt fólk því hann festi
kaup á einu reisulegasta einbýlishúsinu
í Borgarnesi, á Höfðaholti 5, fyrir
Kristján. Kaupverðið er talið hafa verið
um 13 milljónir króna. Annars ætti
Kristján að nýtast Borgnesingum til
fleiri hluta en bara að fá lánaða peninga
hjá honum, því hann er í hinni kunnu
sveit Upplyftingu og spilar listavel á
harmonikku...
i^ífeyrissjóðir landsins kaupa nú
hlutabréf í gríð og erg og fylgja þar for-
dæmi þeirra Guðmundar H. Garðars-
sonar, Víglundar
Þorsteinssonar og fé-
laga í Lífeyrissjóði
verslunarmanna. Gott
dæmi um þetta eru
hlutafjárkaup í hinu
hálfopinbera Utgerðar-
félagi Akureyringa. A
síðustu mánuðum hafa komið þar inn
sem nýir hluthafar lífeyrissjóðir versl-
unarmanna, Dagsbrúnar og Framsókn-
ar, bænda, trésmiða á Akureyri og Lff-
eyrissjóðurinn Sameining. Samanlagð-
ur eignarhlutur þessara sjóða er nú 4,12
prósent...
s
em kunnugt er hafa Matthías
Mathiesen og Hafnarfjarðarbær átt í
hörðum deilum vegna Einarsreits í
Hafnarfirði. Málið er nú hjá Matsneíhd
eignarlandsbóta og er úrskurðar að
vænta innan fáeinna vikna. Einarsreitur
er erfðafestuland og þar á að vera rekin
fiskverkun, en slfk starfsemi hefur ekki
farið þar fram ámm saman. Guðmund-
ur Benediktsson bæjarlögmaður færir
þau rök að aldrei fengist leyfi til rekstr-
ar fiskverkunar í húsunum því þau full-
nægi engan veginn nútímakröfum.
Hann telur húsin verðlaus að mestu og
býður Matthíasi, fyrir hönd bæjarins,
13 milljónir. Matthías lítur aftur á móti
öðruvísi á málin og vill fá 98 milljónir.
Aður en málið fór í hart höfðu samn-
ingaviðræður milli Matthíasar og bæj-
arins siglt í strand. I þeim viðræðum
bauð bærinn Matthíasi mun hærri upj>-
hæð en hann er tilbúinn að borga nú...
T)
-M-Jjörk Guðmundsdóttir og félag-
ar hennar í hljómsveitinni Sykurmolun-
um eru nú undir smásjá ríkisskatta-
nefhdar. Astæðan er sú
að er molamir voru á
hljómleikaferð erlendis
á síðasta ári fengu þeir
greidda dagpeninga.
Skattyfirvöld draga í
efa að þama hafi verið
um raunverulegar dagpeningagreiðslur
að ræða heldur annað og meira. Vegna
þessa rannsakar ríkisskattanefnd nú
gaumgæfilega allt sem viðkemur tón-
leikaferðum molanna...
S
A
1. JLhugamenn um landbúnað bíða
nú með eftirvæntingu skýrslu svokall-
aðrar sjömannanefhdar, sem gera á til-
lögur um breytta skipan landbúnaðar-
mála fyrir gildistöku nýs búvömsamn-
ings. Það sem snýr að sauðfjárrækt er
löngu afgreitt, en mjólkin virðist ætla
að standa í nefndinni. Hún ætlaði fyrst
að skila af sér fyrir áramót og síðan fyr-
ir páska, en nú herma fregnir að tillögur
um skipulag mjólkurframleiðslu verði
tilbúnar eftir helgina...
SOLUBGS&wt
sctóMP
Vantar kraftmikil sölubörn í
hin ýmsu hverfi Reykjavíkur
og nágrennis.
GÓÐ SÖLULAUN
Upplýsingar í síma 62-13-13
PRESSAN
ÁTAK FYRIR AFRÍKU
MILLJÓNIR SVELTA!
Þessi drengur þarfnast hjálpar þinnar.
Gíróseðlar í bönkum og sparisjóðum.