Pressan - 23.04.1992, Page 24

Pressan - 23.04.1992, Page 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. APRÍL 1992 r Norræna getur flutt 1050 farþega og 300 bíla.. Öll aðstaða um borð er eins og best verður á kosið. Lúxusklefar með tvöföldu rúmi, tveggja manna klefar, fjögurra manna klefar eða svefnpokapláss. Leikherbergi fyrir bömin, sólbaðsþilfar - og verslanir með mikið úrval af tollfrjálsum vamingi. Fyrsta flokks veitingastaður og ágætur skyndibitastaður. Notalegur bar og næturklúbbur með lifandi tónlist fyrir nátthrafna. Sigling meö Norrænu - ævintýralegt sumarfrí. og frekar fyrr en síðar ! Hvers vegna ekki að láta nú drauminn rætast og drífa sig með Norrænu í sumar ? Norræna siglir frá Seyðisfirði vikulega 4/6-1/9 til nágrannalanda okkar, Færeyja, Danmerkur, Hjaltlands og Noregs. Og nú bætist einn áfangastaður við, Skotland, með gamla góða Smyrli, sem siglir frá Seyðisfírði til Aberdeen og til baka frá Scrabster á norðurströnd Skotlands. Sigling með Norrænu er ævintýri, sem allir ættu að láta eftir sér, að aka af landi brott... með Norrænu ? NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN Öll almenn farseblasala Laugavegi 3, Reykjavík, sími 91-626362 og Fjarðargötu 8, Seyðisfirði, sími 97-21111 ndanfarið hefur mikið verið rætt um réttmæti þess að taka fyrir inn- heimtumál vegna Þjóðlífskrafnanna svokölluðu. Hafa margir, þar á meðal Vilhjálmur Ingi Arnason, formaður Neytendafélags Ak- ureyrar, gagnrýnt það að dómarar skyldu árita aðfararstefnur vegna innheimtumálsins. f viðtali við Valtý Sigurðsson, formann dómarafé- lagsins, í Morgunblaðinu ver hann þessar aðgerðir. Valtýr virðist hins veg- ar ekki vita af því að við stærsta dóm- stól landsins, borgardóm Reykjavíkur, var strax í upphafi tekin sú ákvörðun að krefja kröfueiganda um frumrit af samningnum umdeilda á milli Þjóðlífs og Uteyjar. Ef aðrir hefðu gert þetta hefði mátt komast hjá miklum erfið- leikum... P 1 J nn eitt réttindamálið er risið vegna starfsleyfis hér á landi. Það er vegna snyrtiskóla Línu Rutar Karls- dóttur, sem ætlaði að kenna allskyns förðun. Þess má geta að 40 milljónir króna hafa farið frá Lánasjóði íslenskra námsmanna á undanfömum þremur ár- um vegna þessa merkilega fags... I dag er 90 ára afmæli Halldórs Kiljans Laxness og að sjálfsögðu ekk- ert tíl sparað að minnast þess. Líklega hefur ekkert íslenskt skáld náð annarri eins útbreiðslu. Eftir því sem komist verður næst hafa bækur hans verið þýddar á 42 tungumál og í 500 mismunandi útgáfum. Þá vekur athygli hve glæsilega Ólafi Ragnarssyni, útgef- anda Halldórs, hefur tekist að nýta sér þetta tækifæri til nýs markaðsátaks... F A yrir skömmu var sagt frá ferli Páls Þorgeirssonar, nýs stjómanda Asiaco, sem nú er í greiðslustöðvun. Ný- lega fréttist af Páli þar sem hann var að skoða einbýlishús á Arnarnesinu og spurði menn þá gjam- an hvort þeir myndu sætta sig við að hann greiddi í erlend- um gjaldmiðli... Lausn á krossgátu á bls. 36 HHaiiEra HnaanH EEBGaEEi nnaaEtai lu ól TT71 B K2QEHEH Sfc 'nTTi l aÍ' £ X £ T r Æ £ I 0 r r ) rJ y A / rt Gr U ri u A H': A M A W>

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.