Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 25

Pressan - 23.04.1992, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23.APRIL1992 25 að velta sér upp úr vandamálum. En ef betur er að gáð er ekki svo ólíklegt að leit fólks eftir því að verða elskað geti orðið svo óstöðvandi að hún ræni fólkið öllum ffiði og ánægju. ER ÁST PÍN ÁST EÐA ER HÚN KANNSKILÍFS- HÆTTULEG FÍKN? Bandaríski sálfræðingurinn Brenda Schaffer hefur skrifað bók sem hún nefnir Js it love or is it addiction?" sem mætti á ís- lensku kalla ,,Er þetta ást eða er þetta fíkn?“ í bókinni setur hún fram staðhæfmgar sem hún segir að einkenni annars vegar ástar- sambönd, þar sem fólk er háð ástinni eins og hverri annarri fíkn, og hins vegar staðhæfingar sem einkenna það sem kalla mætti heilbrigð ástarsambönd. Lítum á nokkur dæmi sem lýsa ástandi í sambandi þar sem svo- kölluð ástarfíkn ræður ríkjum. 1. Þeir eru gagnteknir af hin- um aöilanum. 2. Þeir geta ekki skilgreint mörkin á milli sjálfselsku og ástar sinnar á öörum. 3. Þeir sýna kvalalosta og sjálfspíslarhvöt. 4. Þeir hræöast skilnaö vegna tilhugsunarinnar viö einsemdina. 5. Þeir óttast áhættu, breyt- ingar og hiö óþekkta. 6. Þeir staöna í þroska sem einstaklingar. 7. Þeir geta ekki upplifaö eöa notiö innilegs sambands. 8. Þeir stunda þaö sem kalla mætti sálfræöilega leiki, sem geta m.a. annars falist í því aö gera ögrandi tilraunir til aö sjá hvort ekki megi breyta einhverju f fari hins aöilans sem ekki hefur fallíö hinum ástsjúka f geö. 9. Þeir gefa meö þaö aö leyndu markmiöi aö fá eitt- hvaö á móti. 10. Þeir reyna á margvísleg- an hátt aö breyta hinum aöil- anum. 11. Þeir þarfnast hins aöil- ans til aö finnast þeir heil- steyptir og öruggir sem manneskjur. 12. Þeir leita úrlausnar á vandamálum sínum annar- staöar en í eigin hegöun. 13. Þeir fara fram á og búast viö skilyrðislausri ást. 14. Þeir neita aö skuldbinda sig. 15. Þeir leita til annarra eftir viöurkenningu og viröingu. 16. Þeir óttast stööugt aö veröa yfirgefnir vegna endur- tekinnar og biturrar reynslu af aöskilnaöi og brostnum samböndum. 17. Þeir endurvekja ítrekaö gamlar og neikvæðar tilfinn- ingar. 18. Þeir þrá, en óttast þó, innilegt samband viö ákveöna manneskju. 19. Þeir leitast viö aö bera ábyrgö á tilfinningum ann- arra. 20. Stööug valdatogstreita á sér staö í sambandinu. Hvað sem öllu þessu líður þá er ástin væntanlega jafn einföld og hún er flókin. Þegar ástin hel- tekur fólk breytir allt um svip; himinninn verður blárri, grasið grænna og svo framvegis. Fólk verður óvinnufært, gleymir að borða og vandamál, sem að öllu jöfnu eru að sliga fólk, verða hlægileg og lítilfjörleg. Þess vegna ætti enginn að reyna að komast undan ástinni þegar hún bankar upp á, hefur ffægur spek- ingur sagt.—Jafnvel þótt snjallir menn og fjölfróðir hafi komist að því að ástin getur leikið menn grátt. Ástin, þessi einkennilega tilfinning sem allir þrá heitar en allt annað, getur reynst sumum lífshættulegur leikur. Þrátt fyrir það er ekkert að óttast, því nú er hægt að komast í meðferð til að vinna á þessari skelfilegu fíkn. ERÁSTINLIST? „Er ástin list? Sé hún það, krefst hún auðvitað bæði þekk- ingar og einbeitingar. Eða er ást- ín þægileg tilfmning, sem er und- 'r tilviljun einni komin — eitt- hvað, sem við verðum fangin af, ef við erum nógu heppin?" Á þessum orðum hefst einhver frægasta bók sem skrifuð hefur verið um ástina, ritið sígilda „Listin að elska“ eftir Erich Fromm. Síðan Fromm sendi bókina frá sér árið 1956 hafa komið út fleiri bækur um ástina en tölu verður á komið, og sitt sýnist hverjum um hvemig skil- greina beri ást. Hvort sem mönnum líkar bet- w eða verr er ástin staðreynd og enginn — hversu vel sem hann reynir að verjast — kemst undan því að verða fyrir áhrifum henn- ar- En ástin er ekki alltaf sú sæla sem fólk lætur sig dreyma um; hún getur snúist upp í slíka mar- jröð í lífi fólks að engin orð fá ’ýst þjáningunni. AÐ VINNA ÁST ANNARRA Karlar, jafnt sem konur, em meira og minna í stöðugri leit að leiðum til að vinna hylli og ást annarra. Fólk leitar Iausnar á þessum vanda oft með ótrúleg- um ráðum og einskis er látið ófreistað til að ná hylli þess sem fólk telur sig elska. Aðferðimar sem konur og karlar beita í þess- ari leit sinni em á margan hátt lík- ar, þau reyna að temja sér þægi- lega framkomu, vera viðkunnan- leg í samræðum, hjálpsöm, kurteis og svo ffamvegis. Þá er það alkunna að karlar beita ofitar en ekki þeirri aðferð að gera það sem í þeirra valdi stendur til að ná veraldlegri velgengni — með öðmm orðum að verða eins ríkir og voldugir og aðstæður leyfa — allt til að vinna hylli kvenna. Á sama hátt má segja að konur beiti sínum aðferðum með því að leggja sérstaka rækt við útlit, klæðaburð og þvíum- líka hluti. Leiða má líkur að því að fólk telji það ekki flókinn eða erf- iðan hlut að elska. Vandamálið sé fyrst og fremst fólgið í því að finna þá réttu eða þann rétta til að elska. Mörgum þykir sennilega bæði hlægilegt og ógeð- fellt að reyna að koma ástinni inn f eitthvert mynstur þar sem fastar og ákveðnar reglur gilda og lái þeim það hver sem vill. — Orð Chest- erfields lávarðar um ástina segja kannski það sem mest er um vert; að viljinn til að læra skiptir mestu. „Flestar listgreinar krefj- ast langs náms og mikillar ástundunar. Sú list, sem nytsöm- ust er, listin að vera öðrum að skapi, krefst aðeins þess, að mað- ur kjósi að leggja stund á hana.“ ÁSTARFÍKLAR Ástarfíkill er eitt af nýyrðun- um í fræðum fæim er fást við að skilgreina og í framhaldi af því aðstoða fólk sem ánetjast hefur hinum ýmsu kvillum sem hrjá nútímamanninn í svo ríkum mæli. Á síðustu árum hefur um- ræða um fíkn á öllum hugsanleg- um sviðum mannlífsins orðið æ fyrirferðarmeiri. Allir kannast við áfengisfíkla, margir þekkja af afspum eða eigin reynslu spila- fíkn og kynlífsfíkn hefur alla tíð verið jDekkt, þótt slík hegðun hafi verið kölluð ýmsum nöfnum, bæði jákvæðum og neikvæðum. Fyrir fáeinum ámm kom út í íslenskri þýðingu bók sem nefn- ist „Konur sem elska of rnikið". Bókin hefði eins getað heitið „Karlar sem elska of rnikið". Sumum hefur sjálfsagt þótt — og þykir enn — þetta eins og hver annar brandari og ekki ann- að en eitthvert væl í sálfræðing- um að reyna að búa til vandamál til að skapa sér vinnu. En í henni Ameríku — þar sem allt, bæði hugsanlegt og óhugsanlegt, mun víst vera til — hafa menn á síðustu árum veitt þessum málum sífellt meiri at- hygli og líta á ástarfíkla sem veikt fólk sem þarfnist hjálpar við að koma lífi sínu í eðlilegan farveg. Vera má að mörgum þyki þetta hlægilegt og aðeins dæmi um móðursýki og tilbúin vandamál sem hrjái fólk sem ekkert hefur fyrir stafni annað en Rithöfundurinn Oscar Wilde skrifaði um konuna og ástina af meiri kaldhæðni en flestir aðrir. Ymsar skilgreiningar hans hafa orðið æði lífseigar en ekki er þar með sagt að þær njóti hylli að sama skapi. Á einum stað segir Wilde t.d. um konuna: „Slæmar konur kvelja okkur, góðar konur þreyta okkur. Það er nú eini munurinn á þeim.“ Á öðmm stað segir hann um hjónabandið, sem að minnsta kosti stundum er af- leiðing ástarinnan ,Eftir tuttugu ára ástarævintýri líkist konan hrundum rústum. Tuttugu ára hjónaband mótar ytra útlit henn- ar á þann veg, að hún minnir mest á svipmikið stórhýsi." Og hann bætir við um hjónabandið: „Gagnkvæmur misskilningur er besti grundvöllur hjónabands- ins.“ Og um ástina, þessa einkenni- legu kennd sem menn og konur segjast svo fúslega vilja láta lífið fýrir, segir ffanska skáldið Balz- ac m.a.: „Hjartað hefur einkenni- lega sterka löngun til þess að kaupa hæsta verði, það sem fá- nýtast er.“ Og á öðmm stað: Jafnvel vonlaus ást er sæla.“ Rússneski rithöfundurinn Tol- stoi hefur lfklega verið í ástarsorg þegar hann sagði: „Hlutverk konunnar er aðeins það, að við- halda mannkyninu, og það er Hka það eina, sem hún er hæf til.“ Svo em aðrir sem skrifa um ástina af slíkri tilfinningasemi að flestum verður um og ó. Tyrk- neskt spakmæli gefur ástföngnu fólki t.d. þessa ábendingu: „Áður en þú ferð að elska skalm ganga í snjónum án þess að spor þín sjá- ist.“ Skáld, heimspekingar og raunar allir þeir sem lífsanda draga hafa í gegnum tíðina keppst við að skilgreina ást, sum- ir á svo rómantískan hátt að það veldur flestum þeim er dreypt hafa á beiskum bikar ástarinnar velgju. Aðrir hafa lýst ástinni á svo kaldranalegan hátt að m'stir í gegnum merg og bein. Fólk segir gjaman að ástin sé það mikilvægasta í lífinu og að sá lifi ekki sem ekki elskar. Óendanlega margar kvikmyndir og skáldsögur fjalla um ham- ingju og óhamingju í ástum og ástarsöngvar hafa alla tíð verið vinsælasta viðfangsefni þeirra sem semja lög og ljóð. Flestum finnst hins vegar að varla sé til neitt sem hann eða hún þurfi að læra um ástina. Vandamálið, sem sjálfsagt flestir telja sig glíma við, er að reyna að koma hlutunum þannig fyrir að þeir verði elskaðir, fremur en að þeim takist sjálfum að elska.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.