Pressan - 23.04.1992, Page 38
Þjóðhagsstofnun
SPÁIR EFNA-
HAGSBATA í
HAUST
Höfum spáö þessu í sex ár
og það er nánast tölfræðilega
ómögulegt að við klikkum enn
einu sinni, - segir Þórður Frið-
ónsson forstjóri
Póröur Friöjónsson spáir efnahagsbata
neö haustinu eins og fimm undanfarin ár.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykk-
ir að dreifa lista í öll hús
ÞESSIR ERU ENG-
IR VINIR HAFN-
ARFJARÐAR
Eryfirskrift listans sem inniheld-
ur nöfn þeirra sem ekki hafa gerst
vinir Hafnarijarðar
Vonum aö Hafnfirðingar beini viöskiptum
frá þessu fólki og reyni aö setja stein í götu þess
meö öörum hætti, - segir Guömundur Árni Stef-
ánsson bæjarstjóri.
THOR
VILHJÁLMSSON
EREKKI
NÍRÆÐUR
Sjónvarpið aflýsir sýningu heim-
ildamyndar um Thor eftir að hið
sanna kom í Ijós
Maöur hefur mátt þola aö Thor
stældi talanda Laxness í gegnum
árin en þetta er of langt gengið, -
segir Sveinn Einarsson, yfirmaöur
innlendrar dagskrárgeröar.
SÍMALÍNUR RAUÐA KROSS-
HÚSSINS RAUÐGLÓANDI
UM PÁSKANA
Mikið um að börn kvörtuðu undan of litlum páskaeggjum
Reykjavík, 23. apríl
,Jú, það er rétt. Það hefur
sjaldan verið meira að gera
hérna. Við þurftum að kalla út
aukavakt til að sinna öllum
símtölunum og höfðum samt
varla undan,“ sagði Hiidur
Garðarsdóttir, starfsstúlka í
Rauða kross-húsinu, í samtali
við GULU PRESSUNA en þar
var mikið annríki yfir hátíðis-
dagana.
„Langflestar kvartanimar
snerust um of lítil páskaegg. Það
má því segja að við höfum orðið
kreppunnar vör því flest bömin
sögðust hafa fengið mun stærri
páskaegg í fyrra," bætti hún við.
Hildur sagði það annars
ákveðna tilhneigingu að böm
fengju minni páskaegg eftir því
sem þau eltust.
„Þetta bætist síðan við erfið-
leika bamanna samhliða síauk-
inni ábyrgð
sem lögð er á
þau,“ bætti
Hildur við.
„Þetta er
grautfúlt,"
sagði Bergur
Ingjaldsson, 8
ára drengur í
Rauða kross-
húsinu, í sam-
tali við GULU
PRESSUNA.
„Eg var búinn
með þetta eina
egg fyrir há-
degi. Eg er
hættur að skilja
til hvers fólk er
að halda
páska,“ bætti
hann við.
Bergur Ingjaldsson sagöist ekki skilja til hvers
fólk væri aö halda páskana hátíölega fyrir
þessi iitlu egg.
OLAFUR G. EINARSSON REK-
INN ÚR RÍKISSTJÓRNINNI
Lýsti garð forsætisráðherra þjóðgarð
Reykjavík, 23. apríl
„Eg hef svo sem ekkert á
móti því að garðurinn hjá mér
sé þjóðgarður. En þessi
sleikjuskapur ráðherrans var
einfaldlega kominn út í öfgar,“
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra eftir að hann rak Ól-
af G. Einarsson menntamála-
ráðherra úr ríkisstjórninni.
Eftir að fór að halla undan fæti
hjá Ólafi greip hann til jress ráðs
að skipa ýmsa kunningja og vini
Davíðs í ólíklegustu stöður.
Þannig skipaði hann Guðmund
Magnússon þjóðminjavörð,
Hannes Hólmstein Gissurarson
formann þýðingasjóðs og loks
skipaði Ólafur Þorstein, son
Davíðs, formann Stofnunar
Davíðs Oddssonar. Loks lýsti
Ólafur garð forsætisráðherra á
Kvisthaganum þjóðgarð.
„Að sjálfsögðu hef ég ekkert á
móti því að vinum mínum vegni
vel. En ég kýs að veita þeim
sjálfur þær vegtyllur sem þeir
eiga skilið. Að minnsta kosti
býður mér við því að þeir skuli
þurfa að þiggja þær úr hendi Ól-
afs,“ sagði Davíð.
Vestmannaeyjar eru horfnar af líkaninu í ráöhúsinu.
Íslandslíkanið í ráðhúsinu
VESTMANNAEYJAR
HORFNAR AF KORTINU
Talið að einhver Vestmanneyinganna við opnunina
hafi stolið þeim
Reykjavfk, 23. aprfl
„Eg sá þetta þegar ég ætlaði
að leggja frá mér glas við opn-
unina. Ég iagði það úti fyrir
suðurströndinni og tók þá eftir
því að Vestmannaeyjar voru
horfnar,“ sagði Markús Örn
Antonsson borgarstjóri í sam-
tali við GULU PRESSUNA en
einhver boðsgesta við opnun
ráðhúss Reykjavíkur virðist
Ólafur G. Einarsson missti
sæti sitt í ríkisstjórninni eftir
aö hann breytti garði forsæt-
isráöherra í þjóögarö.
hafa stolið Vestmannaeyjum
af líkaninu af Islandi sem er á
neðstu hæð hússins.
„Jú, ég var við opnunina,"
sagði Ámi Johnsen þingmaður
þegar GULA PRESSAN hringdi
í hann í gær. „En ég vil ekkert
segja um frelsun Vestmannaeyja
annað en það að mér er ekki sorg
í huga vegna hennar. Þvert á
móti.“
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR mun
bæjarstjóm Vestmannaeyja hafa
borist skeyti í gær þar sem henni
var boðið líkan af Vestmanna-
eyjum til að skreyta skrifstofur
bæjarins.
„Auðvitað væri gaman að
hafa líkan af eyjunum á skrif-
stofu bæjarins," sagði Ámi John-
sen. „Þótt eyjamar séu litlar á lfk-
aninu þá væri piýði að jreim. Og
með því að gera enn minna líkan
af fastalandinu er hægt að vega
stærðina upp. Slíkt ætti að gefa
raunsannari mynd af vægi eyj-
anna en hryggðarmyndin sem
sett var upp í ráðhúsi Reykvík-
inga.“
Fulltrúi Framsóknar
í útvarpsráði
KREFST ÞESS AÐ
SJÓNVARPIÐ
TAKIUPP LEIK-
RIT EFTIR STEIN-
GRÍM HER-
MANNSSON
Reykjavík, 23. apríl
„Það er fáránlegt að for-
manni Sjálfstæðisflokksins
skuli líðast að nota Ríkissjón-
varpið á páskadag til að úthúða
Framsóknarflokknum og sam-
vinnuhreyfingunni. Ríkissjón-
varpið er varðborg um lýðræð-
ið og á að gæta hlutleysis og
ekki síst á stórhátíðum eins og
páskunum,“ sagði Markús Á.
Einarsson, fuiltrúi Framsókn-
arflokksins í útvarpsráði, en
hann hefur krafist þess að Rík-
issjónvarpið taki upp leikrit
eftir Steingrím Hermannsson,
formann Framsóknar.
„Leik-
ritið er
ekki full-
búið og
ég hef því
ekki lesið
það. En ef
ég þekki
Steingrím
rétt þá er
e n g i n
hætta á
öðm en
það verði
skemmti-
legt. Og
það er
h e I d u r
ekki hætta
á því að
hugsjónir
samvinnu-
hreyfing-
arinnar
verði afbakaðar," sagði Markús.
Markús A. Ein-
arsson krefst
þess aö Ríkis-
sjónvarpiö taki
upp leikrit eftir
Steingrím.
Í’” kIVT'-v
Brottför 15. apríl -
12 dagar
iVWf
Beint flug til Mallorca miðvlkudag
fyrlr skírdag, komlð heim
sunnudagskvöldið 26. april.
Aðeins 4 vlnnudagar.
MMBBÉHBBMBBBBMHttHlfifiÉtfKnlíaBBail
wB» v
.........■—■■■■........
VORFERÐ TIL MALLORCA .
Á GJAF
Brottför
27. apríl