Pressan - 06.08.1992, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. ÁGÚST 1992
15
Skoðanakönnun sem Skáís gerði fyrir PRESSUNA um ýmis atriði tengd kynlífi fólks
Fólk er fylgjandi kynlífi
fyrir hjónaband og
getnaðarvörnum en
nokkur andslaða er við
fóstureyðingar, mikil
andúð gagnvarf samkyn-
heigðum og enn meiri
gegn framhjáhaldi
eru íslendingar almennt fylgjandi kynlífi fyrir hjónaband og
því að getnaðarvörnum sé haldið að unglingum. Afstaðan til fóstureyðinga skiptist
hins vegar nokkuð í tvö horn þótt fylgjendur hennar séu fleiri. Samkynhneigð nýtur
hins vegar ekki velvildar og út úr könnuninni má lesa mjög neikvætt viðhorf stórs
hluta almennings. íslendingar eru fylgjandi því að skylda fólk til að mæta í eyðnipróf
en eru hins vegar mjög andsnúnir því að eyðnisjúklingar verði settir í sóttkví til að
hindra að þeir smiti aðra. Loks hefur landinn neikvætt viðhorf til framhjáhalds.
1 könnuninni voru lagðar átta
spurningar fyrir þátttakendur.
Þeir svöruðu með einkunnargjöf-
um þannig að 10 þýddi að þeir
væru mjög jákvæðir til viðkom-
andi þáttar eða sammála viðkom-
andi fullyrðingu. Á hinn boginn
þýddi 0 að þeir væru mjög nei-
kvæðir til viðkomandi þáttar eða
algjörlega andvígir fullyrðingunni.
Einkunnirnar á milli lýstu síðan
allt ffá ffekar jákvæðu viðhorfi til
ffekar neikvæðs.
FÓSTUREYÐINGAR
Fyrst voru þáttakendur í könn-
uninni spurðir um viðhorf sitt til
fóstureyðinga. 33 prósent eða rétt-
ur þriðjungur lýstu viðhorfi sínu
með því að gefa því einkunnina
10, eða sögðust með öðrum orð-
um vera algjörlega fýlgjandi fóst-
ureyðingum. 25 prósent eða réttur
fjórðungur gáfu viðhorfi sínu til
fóstureyðinga hins vegar núll eða
Sóley Bender lektor
Vandmeðfarið mál
Sóley Bender, lektor í hjúkrun-
arffæði við Háskóla íslands, hef-
ur sérhæft sig í svokallaðri fjöl-
skylduáætlun, þar á meðal mál-
efnum unglinga. Hún kveðst ekki
vera undrandi á háu hlutfalli
þeirra sem telja að halda beri
getnaðarvörnum að unglingum.
„Unglingar og kynlíf er afskap-
lega vandmeðfarið mál sem fjalla
þarf um af varkárni og erfitt er að
túlka niðurstöður spurningar
könnunarinnar þar sem hún er
margþætt. Auðvitað er það ákaf-
lega gott ef unglingar hafa vaðið
fýrir neðan sig og byija að nota
getnaðarvarnir um leið og þeir
hefja kynmök og auðvitað á að
uppffæða ungt fólk um þessi mál.
Hins vegar er nauðsynlegt að
greina á milli yngri og eldri ald-
urshópa unglinga þegar kynlífs-
mál eiga í hlut“.
Sóley telur að túlka megi við-
horf Islendinga til þessa máls
þannig að því sé tekið sem sjálf-
sögðum hlut hér á landi að ung-
lingar byrji mjög snemma að lifa
kynlífi. „Staðreyndin er þó sú að
svo er aðeins um lítinn hluta
yngri aldurshópsins, þ.e. að fjór-
tán ára aldri. öll uppfræðsla er af
hinu góða en þó ber að gæta að
hinum ýmsu þáttum í þroska
unglingsins þegar slík fræðsla er
veitt. Sjálf er ég hlynnt því að
eldri aldurshópur unglinga fái
góða fræðslu og ráðgjöf um getn-
aðarvamir“.
Að mati Sóleyjar er viðhorfið
til kynlífs fýrir hjónaband sem
fram kemur í könnuninni í fullu
samræmi við það frjálsræði í
kynlífi sem ríkir hér á landi. Því
komi það ekki á óvart að lang-
stærstur hluti aðspurðra sjái ekk-
ert athugavert við kynlíf fyrir
hjónaband. „Það er ánægjulegt
hve mikil áhersla virðist lögð á
heilindi gagnvart maka. Sjálf
hefði ég ég ekki trúað því að hlut-
fallið væri svo hátt en ef þessar
niðurstöður könnunarinnar eru
staðreynd þá er það lofsvert.
Ómögulegt er þó að segja hver
ástæðan er; hvort það er ham-
ingjan sem veldur eða breyttir
tímar og ótti við kynsjúkdóma“.
Samkvæmt könnuninni
voru með öðrum orðum algjör-
legaandvígirþeim.
Ef teknar eru hærri einkunnir,
eða á bilinu 8 til 9, þá komu þær
frá 24 prósentum þátttakenda.
Það er því hægt að segja að 57
prósent séu frekar fylgjandi eða
algjörlega fýlgjandi fóstureyðing-
um.
Hins vegar gáfu ekki nema 7
prósent viðhorfi sínu 1 til 3 í ein-
kunn. Það má þvl segja að 32 pró-
sent hafi verið frekar andvíg eða
algjörlega andvíg fóstureyðingum.
11 prósent gáfu fóstureyðing-
um síðan miðlungseinkunnir sem
má túlka sem hlutlausari afstöðu.
Og af þeim voru heldur fleiri
fremur jákvæðir en neikvæðir.
Ef reiknuð er út afstaða þáttak-
enda í heild og fundin út meðal-
einkunn, er hún 6,1. Almennt er
fólk því frekar fýlgjandi fóstureyð-
ingum. Það ber hins vegar að hafa
í huga að stór hópur fólks, 25 pró-