Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 28

Pressan - 06.08.1992, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR PRCSSAN 6. ÁGÚST 1992 í Þ R Ó T T I R Leikurinn við Samveldið íkvöld Sagan segir að við töpum B í kvöld klukkan 19 leika Afslendingar gegn Sam- veldi sjálfstæðra ríkja í Barcelona. Vinni fslendingar þann leik leika þeir til úrslita um gullverðlaunin gegn sigurvegar- anum úr leik Svía og Frakka. Fyrirfram verða möguleikar okkar manna að teljast litlir. f það minnsta ef sagan er skoðuð. Frá Gevihnattasport liiMi'iWil'Ma 10.00 Keila Screensport. Frá al- þjóölegu móti I Palma á Mallorka. 17.00 Mótorsport Sky Sports. Sýndir verða hápunktarnir úr arg- entlska rallýinu ásamt einhverju fleíru. 19.00 Frjálsíþróttir Eurosport. Meðal annars úrslitakeppn- in [ langstökki. Carl Lewis og heimsmethafinn Mike Po- well eigast við. Það er mjög mikilvægt fýrir Lewis að sigra Ilangstökkinu því það var eina greinin sem hon- um tókst að vinna sér þátt- tökurétt í. Fall þessarar stjörnu verður hátt komi hann heim verðlaunalaus. ■a.gaaiM.jaEMMM 9.00 Tennis Eurosport. Bein út- sending frá úrslitaleiknum ( tvlliðaleik karla á Ólymplu- leikunum. 17.00 Góðgerðarskjöldurinn Sky Sports. Leikurinn um Góð- gerðarskjöldinn er upphaf keppnistlmabilsins í fót- bolta á Bretlandi. f þessum þætti verður leiknum gerð skil á ýmsan máta. 18.00 Fótbolti Eurosport. Bein út- sending frá leiknum um þriðja sætið á Ólympluleik- unum. 19.00 Sjósklði Sky Sports, Evrópsk- ir atvinnumenn á sjósklðum keppa. Sýnt frá keppnum á Spáni, ftallu, Frakklandi og Englandi. LAUGARDAGUR 11.45 Tennis Eurosport. Sumum finnst ógurlega spennandi að horfa á tennis. Aðrir botna hvorkí upp né nlður og finnst þetta taka alltof langan tlma. Bein útsend- ing frá úrslitum I einliðaleik karla. 13.00 Góðgerðarskjöldurinn Sky Sports. Keppnistlmabiliö I Englandi hefst formlega með leiknum um Góðgerð- arskjöldinn. Á Wembley eig- ast viö Leeds United og Li- verpool. Leeds er Englands- meistari en Liverpool vann bikarlnn. Hinn franski Can- tona vakti lukku hjá Leeds I fyrra og getur rústað hvaða vörn sem er. 15.00 Handbolti Eurosport. Kom- ist Islendingar alla leið I úr- slitaleikinn horfa milljónir á þá I þessari beinu útsend- ingu. Rfkissjónvarpið sýnir llka beint. 18.00 Fótbolti Eurosport. Bein út- sending frá úrslltaleiknum á ÓlympTuleikunum. Gæti orðið I slðasta sinn sem fót- bolti verður keppnisgrein á leikunum en Alþjóðaknatt- spyrnusambandinu finnst litið gert úr þessari vinsæl- ustu fþróttagrein f heimi á leikunum. 20.00 Körfubolti Eurosport. Bein útsending frá úrslitaleikn- um. Draumaliðinu er spáð sigri en fer Jordan á pallinn I Reebokgalla? SUNNUDAGUR 12.00 Snóker Screensport. Frá keppni atvinnumanna ITæ- landi. 14.30 Sundknattleikur Eurosport. Einskonar handbolti I vatni. Einu sinni áttu fslendingar lið á Ólympluleikunum I þessari dálltið skrýtnu en oft spennandHþrótt. 20.00 Lokaathöfnin Eurosport. Þá er Ólympluleikunum lokið. Sumum finnst gaman að sjá opnunar- og lokaathafnirn- ar en blessunarlega er búið að ákveða að stytta þessa athöfn. Hún verður þvl kannski skemmtilegri fyrir vikið. 1965 til 1992 léku Islendingar og Sovétmenn 28 landsleiki. Einung- is 3 leikir unnust, 2 enduðu með jafhtefli en 28 sinnum fóru Sovét- menn með sigur af hólmi. I þe- sum leikjum skoruðu íslendingar 527 mörk eða 18,82 mörk í leik. Við fengum hins vegar á okkur 627 mörk eða 24,18 í leik. Stærstu töpin eru 15 marka ósigur, 17-32, í Tiblishi 1970 og 15 mörk skildu aftur að í Graasten árið 1986, þá skoruðum við 12 mörk en Sovét- mennirnir 27. Stærsti sigur íslendinga var í Reykjavík árið 1973, lokastaðan varð 23 mörkgegn 19. En hverjir eru möguleikar okkar núna? „Ég hef staðið í þeirri mein- ingu að það henti okkur betur að spila við Samveldið en Frakkana. Það hefur sýnt sig í gegnum árin að þeir sprla bolta sem hentar okkur betur en sá sem Frakkarnir Markmennirnir Guðmundur Hrafnkelsson og Bergsveinn Berg- sveinsson hafa varið frábærlega á Ólympíuleikunum. spila. Frakkarnir eru spútnildið núna og við vitum ekki að hverju við göngum með þá“ segir Rögn- vald Erlingsson handknattleiks- dómari. „Eg myndi telja mögu- leika okkar vera 40 prósent á móti 60 prósentum. Á góðum degi ef allt gengur upp hjá okkur og rúss- neska maskínan hikstar eitthvað eigum við möguleika," heldur Rögnvald áffam. Viggó Sigurðsson handknatt- leiksþjálfari er ekki bjartsýnn á gott gengi í leiknum í kvöld. „Mér lfst náttúrlega ekkert vel á leikinn og held að þetta verði mjög erfitt og á brattann að sækja“ segir Vig- gó. Hann segir að þrátt fyrir að austantjaldslöndin hafi dalað upp á síðkastið hafi Samveldið haldið þeim styrkleika sem sovéska liðið hafði. „Ég held að það sé ekkert óraunhæft að tala um að 4 til 5 mörk skilji að. Samkvæmt bók- inni ættum við að spila við Frakk- ana um þriðja sætið og þá held ég að það sé mjög raunhæfur mögu- leiki á að við vinnum bronsið. Ég er kannski alltof svartsýnn en ég held að við eigum engan séns á móti Samveldinu, þeir eru alltof rútíneraðir og sterkir“ segir Viggó. Viggó og Rögnvald hrósa ís- lenska liðinu báðir fyrir sterkan varnarleik og góða markvörslu, Rögnvald segir reyndar að fyrri hálfleikurinn hjá Islendingum á móti Ungverjum sé kennslubók- ardæmi um hvernig eigi að spila varnarleik. Dómarinn Rögnvald er á því að Danimir sem dæmdu Svíaleikinn komi til með að dæma úrslitaleik- inn í karlaflokki, par frá Spáni dæmi úrslitaleikinn í kvenna- flokki og Litháinn og Rússinn leikinn um bronsið hjá körlunum. Ekki vildi hann segja á hverju hann byggði þessa spá en lofaði að útskýra formúluna ef spáin gengi eftir. POWELL STORSTIGUR Eins og flestir þeirra sem fy/gjast með fjálsum íþróttum vita setti Mike Powell ævintýralegt heimsmet í langstökki á heimsleikunum i Tokyo síðasta sumar. Stökk hans mæidist 8,95 metrar en Powell, sem er / bandariska liðinu sem keppir á Ólympíuleikunum i Barcelona, hyggst bæta um betur i landstökkskeppninni. Til að gefa lesendum I f—fTp PRESSUNNAR hugmynd um hve langt heimsmetsstökk Powells er sýnum við á myndinni hér að ofan hversu langt yfir Austurstrætið hann kæmist. Lesendur geta siðan reynt með sér niður íAusturstræti. Hverjir verða bikarmeistarar? í kvöld fara fram und- anúrslitaleikirnir í ' • Mjólkurbikarkeppn- inni, Fylkir leikur við Val og KA mætir ÍA. Hver hefur árangur þessara liða verið í bikarnum undanfarin ár? Árið 1987 vann Valur Þrótt á Neskaupstað í 16 liða úrslitum, 2-0, og sigraði Völsung 4-3 í 8 liða úrslitum. f undanúrslitum mættu Valsmenn Víði í Garði og töpuðu 1-0. KA datt út í 16 liða úrslitum, tapaði 6-1 fyrir Þór, ÍA féll sömuleiðis út strax en þeir biðu Iægri hlut fyrir fBK, 1-2. Fylkir komst ekki í 16 liða úrslitin 1987. Árið 1988 mættust ÍA og KA í 16 liða úrslitum og vann ÍA 1-0. Skagamenn töpuðu síðan fyrir ÍBK í átta liða úrslitum 1-0. Valur fór hins vegar alla leið og varð bikarmeistari. Valsarar unnu Ein- herja 6-0, Fram 3-1, Víking 1-0 og ÍBK í úrslitaleiknum 1-0. Fylk- ir komst ekki í 16 liða úrslitin. vítaspyrnukeppni. ÍA vann KA 2- 0 í 16 liða úrslitunum en tapaði 3- 0 fyrir KR í 8 liða keppninni. Fylkismönnum tókst ekki að að komast í 16 liða úrslitin. Valsarar unnu líka Bikarinn í fyrra og eiga því titil að verja. Þeir unnu IK 2-1 í 16 liða úrslitum, síðan Breiðablik 4-3 eftir víta- spymukeppni, þá Þór 4-3 einnig í vítaspymukeppni og loks FH í úr- slitum 1-0 en tvo leiki þurffi til. fA tapaði fyrir KR strax í 16 liða úr- slitum og KA beið lægri hlut fyrir Stjörnunni 3-0. Sem oft áður komust Fylkismenn ekki í 16 liða úrslitin. Valsarar hafa því staðið sig best undanfarin fimm ár; unnið titilinn þrisvar. Fylkismenn hafa á hinn bóginn aðeins einu sinni á þessu fimm ára tímabili komist í 16 liða úrslitin og töpuðu þar. Þeir hafa því staðið sig miður vel í bikarn- um en kannski verður annað upp á teningnum þetta árið. Árið 1989 tapaði KA fyrir Fram, 0-1, í 16 liða úrslitunum og Fylkir fyrir ÍBK 2-0. Skagamenn unnu FH 6-1 og Valsmenn unnu Vík- inga 2-0, bæði liðin duttu síðan út í 8 liða keppninni. fA tapaði 2-4 fyrir fBV og KR vann Val 1-0. Valsarar fóru alla leið 1990 og unnu Bikarinn. Unnu Fram 7-5, Breiðablik 2-0, Víkinga sömuleið- is 2-0. Og KR í úrslitaleik 4-5 eftir Valur besta bikarliðið Ef árangur liða í Mjólkurbikarkeppninni er skoðaður frá 1987 til 1991 kemur í Ijós að Valur er besta bikarliðið. Valsmenn mæta Fylki í kvöld klukkan 19 á Árbæjarvelli en Fylkismönnum hefur gengið illa í bikarkeppnum síðustu ára. Skagamenn spila við KA á Akureyri klukkan 19 í kvöld. ÍA er í 10.-11. sæti af þeim liðum sem best hafa staðið sig en KA er í því 15.-17. BESTU BIKARLIÐIN Röð Félag Stig 1 Vak* 54 2 Fram 35 3 KA 27 4 BK 26 5 VHr 19 6 FH 16 7 Þór 15 8 Vldngir 14 9 Lcltir 12 10-11 (AjBV 10 12-13 UBKStjaman 6 14 Sefcss 5 15-17 VötsusguvTrtdastókKA 4 18 ÞlóttuR. 3 19-21 HÞtóUuhUteynr 2 22-28 KBihei}iKS£indiGrindavit HutjrrvFyfór i Gefiö var eitt stig fyrir aö komast í 16 liöa úrslit, tvö fyrir aÖ komast í8 liöa úrslit, 3 fyrir fjögurra HÖa úrslit, 4 fyrir undanúrslit og fimm fyrir titilinn sjálfan. Olympíu- leikarnir í afsökunum „íslenska keppnisfólkið hér á Ólympíuleikunum í Barcelona kvartar sáran yfir þeim mikla hita sem verið hefur hér um slóðir undanfarna daga.“ DV 27. júlí. „Á góðum degi heíði Helga getað gert betur, en í þessu sambandi verður að hafa í huga að 100 metra skriðsundið er aukagrein hennar.“ Guðfinnur ÓlaTsson formaður Sund- sambands (slands IDV eftir að Helga Sigurðardóttir lenti 140. sæti af 48 keppendum 1100 metra sundi. „Ég er viss um að opnunarhá- tíðin á laugardagskvöldið situr almennt í keppnisfólki...“ GuðfinnurÓlafsson eftir 100 metra skriðsundið en sigurvegarinn þar, kínversk stúlka, setti Ólympíumet. „Hún var skorin upp vegna meiðsla á hægri olnboga þegar hún var yngri, hendin varð ekki eins sterk og áður og lík- lega þess vegna fór hún að beita henni öðruvísi en æski- legt er í sundinu.“ Jonty Skinner I Morgunblaðinu um Helgu Sigurðardóttur. „Fyrir um einum og hálfum mánuði synti hún of hratt, og hefur kannski verið hrædd um að gera það einnig hér.“ Jonty Skinner, þjálfari Ragnheiðar Runólfsdóttur, I Morgunblaðinu eftir að hún lenti 127. sæti af 40 kepp- endum 1200 metra bringusundi. „Það getur vel verið að ég sé ekki nógu vel hvíld en mig virt- ist vanta alla snerpu og byijun- in var alltof hæg.“ Ragnheiður Runólfsdóttir IDV eftir 200 metra bringusundið. „Það tók sinn tíma að læra inn á hann því maður fer sjaldan til Asíu að spila og hefur því litla reynslu á móti Asíubúum.“ Broddi Kristjánsson badminton- maður I Morgunblaðinu eftir að hafa tapað fyrir Chiangja frá Tælandi og fallið úr keppni. „Ég er óánægð með frammi- stöðuna en það er alveg ljóst að æfingarnar í Ekvador voru of erfiðar fyrir mig.“ Ragnheiður Runólfsdóttir IDV eftir að hún lenti 119. sæti af43 kepp- endum 1100 metra bringusundi. „Ég fékk mikinn hjartslátt, mun meiri en ég er vanur. Það getur verið af miklum hita, ég er alltaf sveittur hér. Þessi mikli hjartsláttur var aðalástæðan fyr- ir því að mér gekk ekki betur.“ Carl J. Eirlksson skotmaður I Morg- unblaðinu eftir að hann lenti 150. sæti I enskri keppni. „Undirbúningurinn var ekki í lagi hjá mér vegna meiðslanna, en lúkan hélt þegar til kom og mér leið betur og betur í hverju kasti. Ég hefði þurft að fá tvö til viðbótar til að ná betri ár- angri.“ Pétur Guðmundsson I Morgunblað- inu eftir hafa kastað 19,15 metra I kúluvarpskeppninni en lágmarkið I úrslit var 19,80. Við vissum að við áttum mögu- leika en það munaði miklu hvoru megin netsins við spiluð- um fýrst loftræstingin var á.“ Broddi KristjánssonBadmin- tonmaður I Morgunblaðinu eftir að hann og Árni Þór Hallgrímsson féllu úrkeppni ítvíliðaleik. „f svona stuttri sundgrein má ekkert út af bera en svo virðist sem ég hafi ekki verið nógú hvíld. Ég „toppaði“ fyrir fimm vikum og mér finnst mjög leið- inlegt að hafa ekki náð betri ár- angri hér á Ólympíuleikun- um.“ Helga Sigurðardóttir IDV eftir að hafa lent 142. sæti af 50 keppend- um 150 metra skriðsundi.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.